Dagblaðið - 16.12.1977, Blaðsíða 14

Dagblaðið - 16.12.1977, Blaðsíða 14
14 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1977. Munið Smámiöa- happdrætti RAUÐA KROSSINS + Kópavogsbúar Mikið úrval af barnafatnaði, leikförxg- um, gjafavörum og jólavörum. Góðbílastæði Verzlunin TRÖÐ Neðstutröð Kópavogi— Sími 43180 Kópavogsbúar! Verið velkomin í nýju fataverzlunina í miðbænum ★ A götuhœd er sérdeild með geysimikið úrvalaf barnafatnadi ★ A neöra palliersvofullbúd af alls konarfatnaöi á alla fjölskylduna ásam t sængun ærasettum, handklœöasettum o.Jl. Gjörið svo vel að líta inn til að sannfærast um að ekki er hagstætt að leita lengra Hamraborg - Fataverzlun Hamraborg 14 — Kópavogi Formaður útvegsmanna um Færeyjasamninga: UNDRAST SAMNINGA Á SAMA TÍMA OG AFLI OKKAR ER TAKMARKAÐUR „Við undrumst að sjávarút- vegsráðherra skuli gera nýjan samning við Færeyinga um veiðar á 7000 tonnum af þorski á sama tíma og dregið er veru- lega úr þorskafla islenzkra fiskiskipa," sagði Kristján Ragnarsson formaður Lands- sambands ísl. útvegsmanna i yiðtali við DB í gær. Kristján sagði að útvegs- menn hefðu mótmælt öllum fiskveiðisamningum við útlend- inga á þingi sinu í fyrra. Einnig hefðu þeir skorað á stjórnvöld að segja upp gildandi samning- um. „Samningur þessi við Færey- inga var ekki borinn undir LIU áður en hann var gerður og útvegsmenn hljóta að undir- strika enn andstöðu sína gegn samningum við útlendinga á meðan ástand fiskstofna er þannig að ekki er nægilegt fisk- magn fyrir islenzka flotann," sagði Kristján Ragnarsson að lokum. „Það er ófrávíkjanleg skoðun Farmanna- og fiskimannasam- bands íslands að enga samn- inga eigi að gera við útlendinga á meðan við höfurn ekki nógan fisk fvrir okkur," sagði Ingólfur Ingólfsson forseti sam- bandsins í gær. „Við höfum margítrekað þessa afstöðu okkar," sagði Ing- ólfur ennfremur „og sjávarút- vegsráðherra var og er skoðun okkar ljós,“ sagði hann að lok- um. A Fiski|)ingi, sem haldið var um síðustu mánaðamót, var lýst andstöðu við alla fiskveiði- samninga við útlendinga. Þó var þar fyrirvari um loðnu- veiðar Færeyinga. Ljóst er því að þrjú helztu samtök sjávarútvegsins eru t andstöðu við samninga ríkis- stjórnarinnar við Færeyinga um Jtorskveiðar. - ÓG Dansað með nikkunni fram undirmorgun Kvenfélag Villingaholtshrepps varð sextugt-27. október sl. Minnt- ust félagskonur afmælisins með þvi að bjóða öllum hreppsbúum til kaffisamsætis í Þjórsárveri sunnudaginn 23. okt. Þá var um leið opnuð sýning á handunnum munum úr sveitinni uppi á lofti í félagsheimilinu. Um kvöldið var skemmtun i Þjórsárveri, þar sem mikið var skrafað, ræður fluttar, gamlar félagskonur heiðraðar og félaginu færðar gjafir. I lokin var slegið upp balli og dansað við harmón- ikuundirleik fram á rauðanótt. Formaður Kvenfélags Villinga- holtshrepps er Halla Aðalsteins- dóttir í Kolsholti. - ÖV Meðal skemmtiatriða á kvöldskemmtun Kvenfélags Villingaholts- hrepps var upplestur úr gömlum fundargerðum. Austf irzkir sjómenn alltaf heima á ALAFOSSBUÐIN Vesturgötu 2—Sími13404 Höf um opnað nýja deild með innf luttum gjafavörum. Mikið úrval af smíðajárni, koparogtini og margt og margt fleira. Komið og skoðið stórhátíðum Hólmanesið kom til Eskifjarðar á mánudagskvöld með 65 tonn af þorski og átti skipið að fara aftur á veiðar á þriðjudagskvöld. Hólmatindur er væntanlegur til- Eskifjarðar á föstudag, en báðir togararnir fara aftur á veiðar eftir áramót. A Austurlandi er sá góði siður rikjandi að allir sjómenn hætta fiskveiðum ekki seinna en 20. des- ember og fara ekki aftur á veiðar fyrr en 4. eða 5. janúar. Það fer hrollur um mig þegar ég heyri i útvarpinu að blessaðir sjómenn- irnir eigi að fara á togarana á Þorláksmessu eða aðfangadag. Eg er ekkert hissa á því að útgerðar- menn séu á hvínandi hausnum þegar þeir skipa sjómönnum sín- um að vera á fiskveiðum vfir stór- hátíðar. S. desember lestaði Brúarfoss 35 tonn af freðfiski frá Hrað-. frystihúsi Eskifjarðar á Banda- ríkjamarkað. Daginn eftir lestaði Skógafoss 1851 tunnu af saltsild sem fór á Rússlandsmarkað. Fékk síldin mjög góða skoðun hjá mats- mönnum sem hingað komu rétt áður en sildin var lestuð. Regína Thor./abj.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.