Dagblaðið - 16.12.1977, Side 6
I
►
q _____________ DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1977.
Oddsskarðsgöng opnuð til umferðar
—sn jóþyngsti hluti Oddsskarðs því úr sögunni
Vegagerðarmenn frá Reyðar-
firði voru að leggja síðustu hönd á
Oddsskarðsgöngin er fréttaritari
DB á Neskaupstað, Skúli Hjalta-
son, heimsótti þá nú í vikunni.
Verið var að sjóða saman volduga
grjóthrunshlíf sem er grind úr
stálbitum. Að sögn Páls Elías-
sonar verkstjóra er bergið nokkuð
laust í sér á þessum stað og er
grindin gerð tii þess að fyrir-
byggja hrun.
Göngin eru 650 metrar á lengd,
þar af eru 480 metrar sprengdir í
fjallið en síðan eru steyptir skálar
út frá fjallinu, sem eiga að koma
í veg fyrir að snió setji að opun-
um. Hurðir eru fyrir opunum svo
ekki skafi inn, og sími ef menn
þurfa að gera vart við sig.
Charles Magnússon, sem hefur
Nýjar vörur
rm
mm
nyjar vorur
Vorum aö taka
uppkjóla,
blússur, mussur
ogpeysur
Glæsilegt
úrval
IÐNAÐARMANNAHUSINU VIÐ HALLVEIGARSTIG.
haft umsjón með snjómokstri yfir
Oddsskarð, sagði í viðtali við DB
að mikill munur væri að þurfa
ekki að ryðja háskarðið, sem er
snjóþyngsti kafli leiðarinnar, og
he.fur snjórinn stundum verið 9
metrar á þykkt þar. Það er þvi
mikill sparnaður að þurfa ekki að
ryðja þann hluta.
Göngin eru um 5 metrar á hæð
og 4.5 metrar á breidd. Tvö útskot
eru fvrir mætingar bíla. Annað er
í steypta skálanum norðan megin
en hitt er sprengt inn í bergið og
þar er áðurnefnd stálgrind. Gerð
ganganna hófst árið 1972 og það
ár og næsta var unnið við spreng-
ingar. Skálarnir hafa veri steyptir
á tveimur síðustu árum. Eftir er
að setja bundið slitlag á gólfið og
stvrkja loftið. Þótt göngin verði
opnuð til umferðar nú verða þau
ekki formlega vígð að sinni.
SH/JH
"Oddsskarðsgöngin spara mikið í snjómokstri og bæta mikið samgóngur
við Norðfjörð að vetri til. Heildarkostnaður ganganna á núverandi
verðlagi er um 600-700 milljónir.
DB-mynd Skúli Hjaltason.
Krishnamurti/eysirupp Stjörnufélagid A mI■ oUAStIah^
/ Ommen 1929 jjfll lllCdlO VCl/.ldll
r
a Króknum
leikf élagið sýnir milli jóla og nýárs
verk eftir Pinter í leikstjóm
Hauks Jóns Guðmundssonar
Leikfélag Sauðárkróks hefur
tekið til sýninga leikritið
Afmælisveizlan eftir brezka
höfundinn Harold Pinter. Hann
hefur vakið hvað mesta athygli af
þeim höfundum sem fram hafa
komið eftir 1950r Pinter byrjaði
ungur að skrifa og skrifaði fyrsta
leikrit sitt 27 ára gamall. Það var
einþáttungurinn The Room. Leik-
rit Pintes einkennast af hvers-
dagslegum persónum í hversdags-
legu umhverfi. Þessar persónur
verða svo utanaðkomandi ógn-
völdum að bráð. 1 Afmælisveizl-
unni eru ógnvaldarnir tveir
skuggalegir náungar, Gyðingur-
inn Goldberg og írinn McCann,
sem notfæra sér dulinn ótta og
sketarkennd fórnardýrsins til
þess að buga það. Persónur
Pinters eru einangraðar og
ófærar um að veita eða þigg.ia
sanna ástúð.
Hlutverkin eru sex talsins. Með
þau fara Gunnlaugur Ölsen, Elsa
Jónsdóttir, Ölafur Jóhannsson,
Elísabet Arnarsdóttir, Jón O.
Ormsson og Hafsteinn Hannes-
son.
Leikstjóri er Haukur Jón
Gunnarsson. Hann hefur áður
verið á ferð í Skagafirði, setti upp
Litla Kláus og Stóra Kláus sem
sýnt var í Miðgarði sl. vetur.
Nýlega hefur Haukur leikstýrt
Skagaleikflokkmim sem setti
Höfuðbólið og hjáleiguna á svið.
Þótti sú sýning takast með
ágætum. Áhugaleikhópar víðs
vegar um landið hafa notið leið-
sagnar Hauks, svo sem í Þorláks-
höfn, á Húsavík og Höfn í Horna-
myndir
KRISHNAMURT
heldur því fram, að frelsi sé
einungis hægt að öðlast með
gjörbreytingu mannsandans og að
sérhver einstaklingur búi
yfir afli til að breyta sjálfum sér
frá rótum, ekki einhvern tíma
í framtíðinni, heldur á stundinni.
KRISHNAMURTI
hefur aldrei glatað þeim fögnuði
sem fyllti hann snemma á fjórða
tug aldarinnar og það er þessi
fögnuður sem hann þráir að deila
með öðrum. Hann veit að hann
.hefur fundið lækningu við
sorginni og eins og góðum lækni
sæmir langar hann til að láta
mannkynið njóta hennar.
ÞJÓÐSAGA
þJngholtstræti 27 • Símar 13510 • 17059
Aðstandendur leiksýningarinnar
á Sauðárkróki f.v., aftari röð:
Jóhann Ingimarsson, Sólveig
Stefánsdóttir, Jónas Þór Pálsson,
Elísabeth Arnadóttir, Guðmund-
ur Friðriksson, Helgi Gunnars-
son, Hafsteinn Hannesson, Gísli
Pétursson og Jón Ormar Ormsson
Sitjandi f.v.: Anton Ingimarsson,
Gunnlaugur Ölsen, ieikstjórinn
Haukur Jón Gunnarsson, Elsa
Jónsdóttir og Olafur Jóhannsson.
firði. Nýlega var sýnt sjónvarps-
leikrit eftir Davfð Oddsson, sem
Haukur Jón leikstýrði, en það
hefur verið ákveðið að það verði
einnig sýnt á Norðurlöndum.
Haukur hefur einnig séð um
þætti í útvarpi og einnig hefur
hann starfað sem aðstoðarleik-
stjóri í Þjóðleikhúsinu.
Næstu sýningar á Afmælisveizl-
unni verða milli jóla og nýárs.
Sýnt verður í Bifröst miðviku-
daginn 28. desember og föstu-
daginn 30. desember. Einnig
verður leikurinn sýndur í Mið-
garði þann 29. desember. KP