Dagblaðið - 16.12.1977, Page 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1977.
Hlutabréfin hafa 120 Eim skip á nú 8,5% —430milljónkr. hlutaféerekki nema
faldazt ■'|X__ « hlutiafverði
ál5árum: ,,af sjalfu sei nýjasta skipsins
Eimskipafélag íslands á nú
36.8 milljónir ,,í s.iálfu sér,“ éöa
með öðrum orðum á félagið
sjálft þennan hlut í 430
milljóna króna hlutafé
félagsins. Allt hlutaféð nemur
ekki nema hluta af kaupverði
nýjasta skips félagsins en þau'
eru nú 24 talsins. Er þá ekki
minnzt á húseignir félagsins í
Reykiavík og annars staðar,
auk tóla og tækja.
Upplýsingar um hlutaféð
koma fram í nýútkomnu frétta-
blaði sem ber nafnið
„EIMSKIP“. Það er gamall
góðvinur blaðamanna sem þar
heldur um stjórnvöl, Sigurður
Magnússon fyrrum blaðafull-
trúi Loftleiða. Fyrsta eintak
fréttablaðs Eimskips ber með
sér að í því eigi að kynna inn-
viði félagsins, margháttaðar
deildir og víðfeðma starfsemi.
Er að mörgu að hyggja i 20
síðna vönduðu, myndskreyttu
blaði.
í kaflanum um hlutabréf
segir að hluthafar séu í dag
12600 talsins, eða um 5.5.%
allrar þjóðarinnar. Árið 1961
var nafnverð hlutabréfanna 1,7
milljónir. Á aðalfundum 1962
og 1967 var ákveðið að tvítug-
falda það og 1971 að þrefalda
með útgáfu jöfnunarhluta-
bréfa. 1976 var þáverandi upp-
hæð hlutafjár tvöfölduð. Eftir
allar þessar margfaldamr er
þúsund króna hlutabréf frá
1961 orðið að 120 þúsund króna
hlut í dag. Og eins og í upphafi
segir er heildar hlutafé félags-
ins ekki nema hluti af verði
nýjasta skipsins. Þess vegna
mætti kannski enn hundrað-
falda hlutabréfin eða meir.
í hinu nýja fréttablaði segir:
,,A þessu tímabili hefur hlut-
rtöfum verið gefinn kostur á að
auka eign sína með kaupum
nýrra bréfa og 1975 ákvað
félagsstiórnin að taka 10
milliónir króna af óseldu hluta-
fé félagsins og selja það í
smekklegum möþpum nýjum
hluthöfum. Varð þessi breyting
mjög vinsæl. Stjórnin hefur
jafnan kappkostað að koma í
veg fyrir að mikið hlutafé
safnaðist til fárra eigenda og
þannig verið trú þeirri stefnu,
sem i upphafi var mörkup, að
sem allra flestir ættu þess kost
að eiga litla en verðmæta
eignarhluta í Eimskipafélagí
íslands.
ASt.
TÍZKAN VIKULEGA
ískAlafelu
Í ■ J P iLJ •»*
*rt“ iffr i lllf* •“ ’Ur*®
Hótel Esja ætlar að veita borgarbúum og gestum í borginni tækifæri á
að kvnnast tizkunni í kven- og karlmannafatnaði núna í vetur. Eflaust
verður það vel þegið í skammdeginu að setjast niður í skemmtilegu
umhverfi Skálafells, efstu hæðar Hótel Esju, og horfa á það sem f.vrir
augun ber um leið og veitinga er neytt. Módelsamtökin undir stjórn
Unnar Arngrímsdóttur sjá um framkvæmd sýningarinnar. Myndin er
af sýningarfólki samtakanna við vínstúkuna í Skálafelli.
Hræddir við Hilmar?
„En ég er afskaplega
hræddur við Hilmar, sérstak-
lega vegna þess,- að hann sést
ekki fyrir.“ Þetta er haft eftir
Matthíasi Jóhannessen, rit-
stjóra Morgunblaðsins, á kápu-
nýrrar bókar eftir Hilmar Jóns-
son rithöfund.
Fleiri hafa sagt sitt um
Hilmar. Fáir eru jafnumdeild-
ir. Kristmann Guðmundsson
rithöfundur sagði: „Hann sker í
gegnum alla lygafroðuna.1'
Bók Hilmars nefnist Undir-
heimarnir rísa. Þarna er um að
ræða safn greina og erinda
Hilmars með meiru Margar
greinarnar birtust í Dag-
blaðinu.
Bókin kosar 2200 krónur. IHH
Hef ur einhver
týnt bátnum sínum?
Smábáturinn sem er í vörzlu
Þormóðsson.
lögreglunnar. DB-mynd Sveinn
1 vörzlu Rannsóknarlögreglu
ríkisins er bátkæna úr trefia-
plasti sem fannst á reki sunnu-
daginn 11. desember. 3-400 metra
undan Bakkavör á Seltiarnarnesi.
hann fannst en eigandi hans
hefur ekki gefið sig fram. Þeir
sem eitthvað vita um bát þennan
eru beðnir að hafa samband við
Jónas Hallsson hjá Rannsóknar-
lögreglu ríkisins.
Ef þú ert bókaormur og vantar bók til að gleypa í þig
þá gæti þetta verið bókin.
Ef þú ert reiður og vantar bók til að grýta, þá
gæti þetta verið bókin.
Búrið eftir OLGU GUÐRÚNU ÁRNADÓTTUR er
skáldsaga fyrir unglinga (og annað fóik) sem segir
sannleikann um viðkvæm efni — skólakerfið.
Verð kr. 3336,-. Félagsverð 2855.
Mál og mennfng
Laugavegi 18
Báturinn var mannlaus þegar
A.Bj.