Dagblaðið - 16.12.1977, Síða 13
DÁGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1977.
V*
Nýbók
eftir Halldór Laxness
SEISEIJÚ,
MIKIL ÓSKÖP
Um bókina segir K.K.
Það er viðburður á tslandi, þegar Halldór Laxness skrifar grein. Oft
er eins og annað blaðamál gleymist þá í svipinn með öllu. Ef litið cr
til baka, eru það heil undur, hve svo annríkur sagna- og Ieikrita-
höfundur hefir afkastað af ritgerðum og látið margt til sín taka í
ritgerðum: dægurmál, stjórnmál, fólk og fénað, mannasiði, tungu,
sögu og bókmenntir. Þess er skammt að minnast, að hann gerði
hinn ógæfusama bókstaf z að umtalsefni í grein, sem er svo
skarpleg og kjarnviss, að i hennar Ijósi virðist flest, sem um þennan
ómagastaf hefir verið ritað, verða aftaka raus (greinin er í'þessari
bók). Ég er ekki viss um, að vér gerum oss alltaf ljóst, hve dauf og
máttleysisleg svokölluð almenn eða opinber umræða í vorum að-
kreppta íslenzka andans heimi mvndi revnast, ef rödd Halldórs
brygði ekki margoft fyrir í ritgerðum og blaðagreinum. Auðvitað er
stundum ekki síður heilsusamlegt að vera honum andvígur eins og
sammála. Ég hefi ekki trú á því, að ég geri neinum rangt til, þó ég
fullvrði, að Halldór sé mest lesni ritgerðahöfundur á landi voru og
sá frumlegasti. í þessu safni, sem hér birtist, er höfuðgreinin
vafalaust Fáeinar athuganir um „kristinréttarákvæði elstu" og
fjallar um fornsöguleg efni, em H.L. hefir mjög látið til sin taka,
bæði frá nýstárlegum sjónarmiðum, út frá afskekktri þekkingu og
af mikilli fyndni.
Jólabók íslendinga
Helgafellsbók
Unuhús, Veghúsastíg 7
'ttftf* 4'M.
'?*i4
(“’ÍCíSWU....... - •
• VíaVh****-* »**VV..V^**
(4 «**«>*♦»*
**********
44 fiúi*i*** ***»!* *
•4if«***«*»*‘**««*** * *
i4ií)M***********«*»«*
. \é4'lt*-M*********tM**
V»#-#4*4*******i****is *