Dagblaðið - 06.02.1978, Síða 1
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
;
4. ARíi. — MANUDAGUR 6. FEBRÚAR 1978. — 31. TBL. RITSTJORN SÍÐUMÚLA 12. AUGLVSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI U. — AÐALSÍMI 27022.
Dauðaslys á Reykjanesbraut íYtri-Njarðvík:
EKID A FÓTGANGANDI
REYKVÍKING
Tuttugu og eins árs gamall
Reykvíkingur Róbert Birgir
Sigurösson, lézt í umferðarslysi
á Reykjanesbraut í Njarðvík
aðfaranótt laugardagsins. Hann
var fótgangandi, á leið út úr
bænum, er bifreið kom aðvif-
andi og ók á hann.
Rannsóknarlögreglan í
Keflavík sagði í samtali við DB
í morgun, að ekkert væri vitað
um ferðir Róberts þar syðra.Þó
væri helzt hallazt að því að
hann hafi verið á dansleik í
félagsheimilinu Stapa. Enginn
hefur enn fundizt, sem kannast
við að hafa verið í félagsskap
hans á föstudagskvöldið.
Slysið varð á Reykjanes-
brautinni á móts við húsið Þórs-
höfn í Ytri-Njarðvik. Þar'er
götulýsing engin. Róbert Birgir
Sigurðsson var dökkklæddur og
mun ökumaður bifreiðarinnar
ekki hafa komið auga á hann
fyrr en um seinan. Ekkert
reyndist vera athugavert við
búnað bifreiðarinnar. AT
Engin gengisskráning:
NYTT GENGIA MIÐ-
VIKUDAGSMORGUN?
Gengisskráning hefur verið
lögð niður í bönkunum, meðan
beðið er formlegra fellingar
krónunnar. Gjaldeyrir er
aðeins afgreiddur í undan-
tekningartilvikum og þá gegn
aukagjaldi.
Talið var í morgun, að nýtt
gengi yrði ekki skráð fyrr en á
miðvikudagsmorgun, en margt
veltur á ákvörðun, sem kann að
verða tekin á ríkisstjórnar-
fundi í dag.
Frumvarp um hliðarráðstaf-
anir vegna gengisfellingar-
innar er í aðalatriðum tilbúið,
en búizt var við, að það yrði lagt
fyrir Alþingi í dag eða á
morgun.
IIH
Lögfræðingar
hlutfallslega
fleiri á íslandi
enínokkru
öðru landi
Hugsað með
átökum
Það er hugsað stíft á-Loft-
leiðahótelinu þessa dagana
og allar heilasellur í gangi.
Andrúmsloftið er þrungið
spennu. 1 ofsalegu tíma-
hraki vann Bandaríkja-
meistarinn, Browne,
Polugajevsky hinn rúss-
neska sem nýkominn er frá
áskorendaeinvígi við Karp-
ov. Sá sekúndubrota-
bardagi leysti úr læðingi
átök sem lengi munu í minn-
um höfð. Hér eru þeir
Browne (t.v.) og „Polú“ að
tafli og eiginlega má sjá
átökin í hugsun þeirra. Frið-
rik. sem lagði Larsen í 2.
umferð, og Helgi Ólafsson
f.vlgjast spenntir með. Sjá
um skákmótið bls. 4. og 5.
„DeepThroaf’
ídagsljósið
— sjá erl.
fréttir
ábls.6og7
DB-mynd Bjarnleifur.
| DB birtir „fimm valkosti” ríkisstjórnarinnar: | áun 1
Hálfar verðbæ tur á i og gengisfelUng?
— sjá baksíðu 1
„HEF EKKERT GREITT í BORGARSJÓD”
— segirPálllindal
Í langri yfirlýsingu sem DB
hefur borizt frá Páli Líndal,
fyrrum borgarlögmanni, neitar
hann því að hafa greitt nokkuð
til baka í borgarsjóð af þeim
rúmu 5 milljónum sem æðsta
stjórn borgarinnar segir hann
hafa dregið þar undan.
Páll neitar því ennfremur að
honum hafi verið gefinn kostur
á að vera viðstaddur leit að
skjölum í skrifstofu hans. Hann
segir að hann hafi ekki verið
beðinn um lykla að hirslum sín-
um.
I sjötta lið yfirlýsingar Páls
Líndals segir: „Svo segir að ég
hafi veitt móttöku bif-
reiðastæðisgjöldum, að fjár-
hæð kr. 5.069.729, er ekki hafi
verið skilað í borgarsjóð.“ Inn á
þessa fjárhæð greiddi Páll
Líndal 9., 14. og 15. des. samtals
kr. 1.973.704. „Eg greiddi enga
peninga í borgarsjóð 14. og 15.
des., frekar en 9. des.“
í skýrslu borgarendur-
skoðunar segir að hinn 9. des.
hafi Páll greitt sjálfur kr.
773.704,- krónur, en 14. og 15.
des. hafi verið greitt fyrir hans
hönd 1,2 millj. með tveimur 600
þúsund króna greiðslum.
Borgarlögmaðurinn fyrrver-
andi segir að það séu „.vísvit-
andi ósannindi" að hann hafi
ekki sinnt tilmælum endur-
skoðunardeildar um að koma
og gera grein fyrir málum sín-
um eftir að hann fékk skýrslu
endurskoðunardeildar að
kvöldi 31. janúar. Segir Páll að
ekkert standi um þetta í bréfi
borgarendurskoðanda sl.
fimmtudag. Páll segist hins
vegar hafa beðið sérstaklega
fyrir skilaboð til • borgarstjóra
og borgarendurskoðanda á
föstudaginn, um að hann væri
reiðubúinn að mæta hjá stjórn
borgarendurskoðunar.
Eins og frá var sagt í DB Á
Iaugardaginn hefur borgar-
endurskoðun gert borgarráði
grein fyrir þeim ellefu tilvikum
á undanförnum sjö árum, sem
Páll á að hafa dregið undan
þessar rúmu fimm milljónir.
Segir þar einnig, að Páll hafi í
þremur tilvikum borgað aftur
um tvær milljónir. 1 viðtali við
Pál Líndal í DB 28. janúar sl.
segist hann telja sig eiga stórar
fúlgur inni hjá borgarsjóði og
ætla að gera „stórar gagn-
kröfur“ á hendur borgarsjóði.
Þegar lréttamaður DB spurði
Pál beinlínis hvort satt væri að
hann hefði dregið undan þetta
fé, svaraði Páll: „Ég er ekki í
neinni vfirheyrslu hjá þér!“
-ÓV.