Dagblaðið - 06.02.1978, Blaðsíða 23

Dagblaðið - 06.02.1978, Blaðsíða 23
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 6. FEBRUAR 1978 Ci Utvarp Sjónvarp Útvarpid íkvöld kl. 19.40: „Eg ætla m.a. að ræða um skóla- mál og reyna að ræða lítillega tengsl þeirra við landbúnaðar- mál,“ sagði Kristján Friðriksson iðnrekandi er hann var inntur eftir því hvað hann ætlaði að ræða um í þættinum Um daginn og veginn í útvarpinu í kvöld. Sagðist Kristján hafa ákveðnar hugmyndir um hvernig þau tengsl væru. Annað atriði sem Kristján sagðist hafa í huga að ræða, væri Skólamál, landbúnaður og verðbólga verðbólgan og ráð gegn henni. Það hefur einkennt umræðu um verðbólguna, sem er mjög mikil, að allir tala um hana líkt og um veðurfarið en enginn gerir neitt. Þá er heldur ekkert rætt um hverjir séu aðalverðbólguvald- arnir og hvernig megi koma þeim fyrir kattarnef. Kristján sagðist hafa ákveðnar hugmyndir um það hvernig minnka mætti verðbólg- una. Hitt væri svo aftur annað mál að erfitt væri að kynna þær hugmyndir að ráði í svo stuttu Krist.ian FriðriKsson íonreKandi ætlar ao taia um daginn og veginn í útvarpinu í kvöld kl. 19.40. Sjónvarp í kvöld kl. 21.35: ALLIR í STRÆTÓ „Þetta er sænskt nútímaleikrit, sem fjallar um umburðarlyndi, þolinmæði og mannleg viðhorf al- mennt,“ sagði Jóhanna Jóhanns- dóttir okkur en hún þýðir sjón- varpsleikritið sem verður á dag- skrá sjónvarpsins i kvöld kl. 21.25 og nefnist Strætisvagninn. Sagan segir frá ungum manni, sem ekur strætisvagni i Stokkhólmi og virðist hann hafa nokkuð öðruvísi Ætli strætisvagnabílstjórar hér eigi við sömu vandamál að stríða og í Stokkhólmi? 'spjalli, sem þátturinn gæfi tíma til. Kristján hefur áður spjallað við útvarpshlustendur um hug- myndir sínar til betri hagstjórnar landsins. Einnig hefur hann ritað talsvert um þessi mál i blöðin og hefur t.d. Dagblaðið gefið út sér- blað til kynningar hugmyndum hans. Má til dæmis nefna að Kristjáni finnst sjálfsagt að tekin verði upp skipuleg stjórn- un á fiskveiðum, þannig að efla megi bæði iðnað og sjávarútveg hiiðviðhlið. -RK/DS viðhorf til lífsins, en margir af farþegum hans og yfirmönnum. T.d. leyfir hann sér að fara úr vagninum til þess að hjálpa gam- alli konu yfir götu. Þetta verður til þess að vagninn stenzt ekki áætlun og vesalings vagnstjórinn fær skammir, bæði frá farþegum sínum og vfirmönnum. Sýnd eru viðbrögð þeirra, sem við köllum „venjulega farþega" gagnvart hinum, t.d. drykkjumönnum og hippum. Vagnstjórinn gerir sér lítið fyrir og reisir við drukkinn farþega sem hefur fallið á gólfið. Það finnst hinum ekki tilhlýði- legt. Svona fólk á bara að fá að liggja þar sem það hefur dottið. Þessi vagnstjóri gerir sér einnig litið fyrir og mætir til vinnu í gallabuxum en ekki í einkennis- búningi og það má sko alls ekki. Jóhanna sagði ennfremur að þessi mynd lýsti vel ástandinu í strætisvögnunum úti. Þar er alltaf mikill troðningur, og hver þvælist um annan. Allir eru að flýta sér og enginn má vera að því að hugsa um annan en sjálfan sig. Þess má geta að þessi mynd er prófverkefni þriggja Svía, sem stunda nám við Dramatiska Institutet í Stokkhólmi. Þeir heita Kjell-Aake Andersson, Kjell Sundvall og Börje Hansson. Flutningur leikritsins tekur um 50 minútur og er i litum. \feentanlegir vinnir^shafar miðakaupum fyrir 1. flokk, hafa nú tækifæri til að tryggja sér miða. 2. flokkur 9 @ 9 — Hæsti vinningur er 2 milljónir 18 — 207 — eða 10 milljónir á Trompmiða. 306 — 8.163 — Gleymið ekki að endurnýja! 8.712 36 - Dregið verður föstudaginn 10. febrúar. 8.748 2.000.000.- 18.000.000,- 1.000.000,- 500.000.- 100.000.- 50.000.- 15.000,- 75.000,- 9.000.000.- 9.000.000.- 20.700.000.- 15.300.000,- 122.445.000.- 194.445.000,- 2.700.000.- 197.145.000.- HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS Hæsta vinningshlutfall í heimi!

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.