Dagblaðið - 06.02.1978, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 06.02.1978, Blaðsíða 6
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 1978 6 Lögf ræðingar hlutfallslega flestir í ísrael segir Reuter, en við þykjumst vita betur því ÍSLAND Á METIÐ Lögfræðingar eru flestir í Israel sé miðað við mannfjölda. Þessar upplýsingar komu fram í ísraelsku tímariti í gær. 1 tímaritinu sagði að 2500 lög- fræðingar væru fyrir hverja milljón Israelsmanna. Til samanburðar má geta þess að í Bandaríkjunum eru 2000 lög- fræðingar á hverja milljón íbúa en á Bretlandseyjum 600. Hætt er samt við að hinir mætu ísraelsmenn hafi ekki vitað um vinsældir lögfræðinga uppi á íslandi. Ef ganga má út frá þessum tölum kemur nefnilega í'ljós að lögfræðingar eru ekki hlutfallslega flestir í ísrael, heldur á íslandi. Sam- kvæmt lögfræðingatali, sem nær aftur til ársins 1975, eru lögfræðingar á íslandi 783 talsins. Sé sú tala margfölduð með 4.5 til að fá út fjölda miðað við milljón íbúa kemur í ljós að sambærileg tala miðað við milljónaþjóðir váeri 3523 lögfræðingar fyrir hverja milljón íbúa. Að vísu eru sumir þessara lögfræðinga, sem taldir eru í lögfræðingatalinu látnir en það jafnast aftur upp sé fjöldi þeirra sem skrifast hafa út eftir 1975 talinn með. Það er því ljóst að við stönd- um víða framarlega íslending- ar. A fsérstökum ástæðum er til sölu tvö ný sófasett frá Hollandi. Sófasettin eruí sérstökum gæðaflokki. Upplýsingarí síma 85933 BAKARI Stórt fyrirtæki í Keflavík óskar eftir bakara nú þegar. Fjölbreytt fram- tíðarstarf og góð laun fyrir góðan mann. Skriflegar umsóknir, sem til- greini aldur, menntun og fyrri störf, óskast sendar Dagblaðinu fyrir laugardaginn 18. febrúar nk. merktar ,,Bakari“. HSfum J fyrirliggjandi\ | * LOFT- ** DEMPARA og aðra dempara í flestar tegundir bifreiða Verðið mi’óg hagstœtt Póstsendum um ollt land HÖGGDEYFAR Dugguvogi7 — Sími 30154, Reykjavík Finnland: HALD LAGT Á MIKIÐ AF EGYPZKUM APPELSÍNUM — innihalda of mikið af rotvarnaref num Appelsínur, þeir ágætu ávextir, eru skyndilega eitt aðalfréttaefn- ið í heiminum. Skemmst er að minnast frétta af því að börn í Hollandi hafi veikzt af eitruðum appelsínum frá Israel og óþekkt palestinsk samtök hafa lýst sig ábyrg fyrir þeim aðgerðum í því skyni að eyðileggja þennan út- flutningsatvinnuveg ísraels- manna. En nú hafa þær fréttir borizt frá Turku í Finnlandi að yfirvöld hafi lagt hald á 31 þúsund kassa af appelsínum frá Egyptalandi, þar sem of mikið hafi verið af rotvarnarefnum í þeim. Yfirvöld í Finnlandi lýstu því yfir í útvarpi að þetta mál tengdist á engan hátt hinum eitruðu ísraelsku appelsínum. En sala á appelsínum dróst mikið saman í síðustu viku í Finnlandi eftir að fréttir bárust um að sprautað hefði verið kvikasilfri í ísraelskar Jaffaappelsínur. Al- menningur hefur þó verið full- vissaður um að slíkar appelsínur hafi ekki komizt á markað í Finn- landi. Appelsínur hafa skvndilega veriö mjög i sviðsljósinu og svo virðist sem þær eigi endanlega að ganga tra ísraelsriki. En nú hafa vandræði einnig skapazt með egvpzkar appelsínur. ENN UM APPELSÍNURNAR Tólf ára stúlka hefur nú fengið að fara heim af spítala en grunur lék á að hún hefði borðað eitraða appelsínu. Samkvæmt upp- lýsingum heilbrigðisyfirvalda bar -lúlkan engin merki þess að hafa orðið fyrir kvikasilfurs- eitrun, en eins og komið hefur fram hafa fundizt appelsínur frá israel sem kvikasilfri hefur verið sprautað í. Líkur benda til þess að maga- verkirnir sem hrjáðu stúlkuna hafi stafað af saltvatni sem móðir hennar gaf henni eftir að hún borðaði appelsínu á heimili sínu. Rannsóknarstofnun sem rannsakaði appelsínuna, sagði að greina hefði mátt kvikasiifurs- magn í appelsínunni, en hún kom frá Spáni til Þýzkalands. ENNÞÁ FRÉTTNÆMT! — að vænta megi gengisfellingar á íslandi eun421 epb344 2322 : currency — icelsnd: reykjavik, feb 5, reuter — the icc-Landic centraL bank tonight announced the suspension of foreign currency trading tofiiorrow in preparation for an expected devaLuation. financiaL circLes expected a tíevaLuation of between 1° and 23 per cent. businessmen predicted between 13 and 14 pe'r cent. a growing-fear of' deva Luation was marked in finariciaL circLes Last friday when banks rushed to make transactions into foreign currencies. reuter dp/gm Þóll mcrkilegt megi virðasl, virðisl það enn Iróttnæml að von sé á gengislækkun á hinu verðhölgu- hrjáða íslandi. Þelta litla fréttaskevti barst frá Reuters-fréttastofunni. þar sem greint er frá væntanlegum efnahagsráðstöfunum hérlendis og ótta manna við gengisfellingu.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.