Dagblaðið - 06.02.1978, Qupperneq 2
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 6. FEBRÚAR 1978
Hemámslið í þágu vama
Bandaríkjanna
—Sigga f lug svarað vegna hersins á
Keflavíkurflugvelli
Helgi skrifar:
Ég leyfi mér að gera athuga-
semd við skoðun Sigga flugs,
sem hann lýsir í greinarkorni í
Dagblaðinu 27. 1 1978, viðvíkj-
andi hvað tslondingar eiga að
kallabandariskaherliðið sem er
í landi okkar. Fyrst vil ég
þakka Sigga flug fyrir þær fjöl-
mörgu góðu greinar sem hann
hefur skrifað. Siggi bendir á að
bandarísku hermennirnir hafi
tekið við af enska hernáms- og
setuliðinu 1941 eftir að við
vorum LATNIR biðja um það.
Þá er mér spurn, ef bandarískt
herlið tekur við hlutverki ensks
setuliðs, er þá ekki rökrétt að
hið bandaríska. sé kallað
SETULIÐ? Einnig má segja að.
þeir taki við hlutverki ensks
iR AKA MEÐ
ltK>
A ÍSLANDI í DAG
2Vi ÁRS REYNSLA HÉRLENDIS AF PLATÍNULAUSU TRANSISTORKVEIKJUNNI
ER ÓSLITIN SIGURGANGA
. í:
STAÐREYNDIR
I Platlnulaus kveikjubúnaður var á stnum
tima kynntur I sjónvarpsþættinum ..Nýj-
asta tækni og visindi" og þar kom fram,
að slikur búnaður er algjör bylting að þvi
er varðar benzinnýtingu og almennan
reksturskostnað
j Platinulauskveikjubúnaður var lögleiddur
i Bandarikjunum 1975 eftir að opinber
rannsókn sannaði. að óþörf mengun ( =
benzineyðsla) vegna ástandsbreytinga á
platinum var úr sögunni við notkun sliks
búnaðar.
I Með notkun LUMENITION er ..veikasti
hlekkur" kveikjurásarinnar úr sögunni.
vegna þess að Photocella kemur i staðinn
fyrir platinur og þétti. Slik stýring er
margfalt nákvæmari;
| I LUMENITION eru engir hlutir, sem
slitna eða breytast við núning. auk þess
sem kertin endast 2—3 sinnum lengur
með notkun búnaðarins.
í Lumenition kveikjubúnaður er algjör
lega ónæmur gagnvart raka eða bleytu
Gangsetning er auðveldari og rykkjóttur
kaldakstur er úr sögunni.
D Bensinsparnaður er staðreynd, svo fremi
að mótorstilling sé rétt. Eftir 2Vi árs
reynzlu hérlendis. hefur fjöldi ánægðra
viðskiptavina staðfest, að meðal, bensin-
sparnaður (miðað við kr. 1 13/ltr) er allt
frá 9 krónum og yfir 20 krónur á lítra.
UMSAGNIR ÖKUMANNA
Eirfkur Ásgoirsson forstjóri SVR. Bifreið Volvo:
Betra viðbragð og öruggari gangsetning. auk þess
sem mér finnst á buddunni að hann eyði minna.
Björn B. Steffensen eigandi Bilastillingar:
Reynsla mín af LUMENITION er mjög góð og ég get
hiklaust mælt með notkun búnaðarins.
Gunnar Gunnarsson eigandi va'rahlutaverzlunar á
Egilsstöðum:
Reynslan hefur sannað ágæti þessa búnaðar.
Jón Þorgrímsson bifvélavirki og eigándi bifreiða-
verkstæðisá Húsavik. Bifreið Volvo 144 GL:
Ákaflega jákvætt.
Egill Óskarsson eigandi bifreiðaverkstæðis. Bifreið
Blazer 8 cyl.:
Eyðslan er ca. 10% minni, Þetta er það sem kemur.
Guðbjartur Sturluson framleiðslustjóri hjá Halldóri
Jónssyni hf. Bifreið Bronco.6 cyl.:
Öll atriði sem ég merki eru jákvæð
Ólafur Pálsson afgreiðslumaður hjá BP Bifreið
Saab 99:
Eftir að ég setti þennan búnað i bilinn minn varð
geysileg breyting á honum hvað gang og gangsetn-
ingu snertir.
Jón H. SigurSsson forstjóri Slippfélagsins. Bifreið
VolvoGL:
Billinn gjörbreyttist þannig. að hann er mikið við-
bragðssneggri. auk þess sem hann fer alltaf i gang á
fyrsta snúningj. jafnvel t mestu frostum.
Geir Óskarsson. Bifreið Cortina 1600.
Fer með 1 „5 ,ti( .2 Itr minna á hundraðið Tel þetta
vimælalaust framtiðina.
Reynir Kristjánsson Bifreið Cortina:
Þó' að ég feglnn. vlldi gét ég ekki fundið þeSsu neitt
til foráttu
Friðþjófur Friðþjófsson bifvélavirki. Lykill h.f.
Kópavogi:
Við höfum sett LUMENTION i fjölda bíla og erum
sannfærðir um ágæti búhaðarins.
HABERG hf
SkelSunni 3e Slmi 3 33*45
hernámsliðs, og er þá óeðlilegt
að þeir séu kallaðir HER-
NÁMSLIÐ? Sú staðhæfing
Sigga að við vorum LÁTNIR
biðja um veru bandarísks her-'
liðs í stað þess að eiga frum-
kvæðið sjálfir vegna eigin
þarfa, styrkir rökin fyrir
heitunum SETULIÐ og HER-
NÁMSLIÐ....BANDAR1SKT
VARNARLIÐ hlýtur þó einnig
að vera rökrétt heiti á herliðinu
því það er óneitanlega hér til
varnar ■ Bandaríkjunum.
Hugtakið verður að skiljast
rétt, þ.e. Varnarlið Banda-
ríkjanna ogveragreinilegaekki
skilið sem VARNARLIÐ ÍS-
LANDS, því reynslan frá
þorskastríðunum sannar meðal
annars að bandarísku hermenn-
irnir eru ekki til að verja hags-
muni íslendinga. Eins hefur
komið fram eru Bandaríkin
ékki samningsbundin til að
verja ísland ef á það er ráðizt,
aðeins bandarískir hagsmunir
ráða þar um. Ýmislegt sem
fram hefur komið skapar grun
um að íslenzkir ráðamenn hafi
ekki verið og séu ekki SJÁLF-
RÁÐIR er þeir samþykkja veru
hins erlenda herliðs á fóstur-
jörð vorri. Niðprstaðan hlýtur
því að vera sú að Islendingar
geta með réttu kallað HER-
NÁMSLIÐIÐ sem SITUR í
þágu VARNA BANDARÍKJ-
ANA, hvað sem er, annað en
varnarlið íslands. Að kalla her-
mennina á Suðurnesjum
varnarlið Islands hlýtur að vera
svívirðilegt ÖFUGMÆLI....
Frídarspillir
99
eins og rotið
epli í tunnu”
andstæðingar Dagsbrúnarstjórnar
deila innbyiðis
Mikil var undrun min og ann-
arra starfsfélaga minna er við
rákum augun í grein á forsíðu
Dagblaðsins laugardaginn 21.
janúar. Bar hún yfirskriftina
„Slógu vopnin úr eigin hönd-
um“. Fjaílar hún um nýaf-
staðna tilraun óánægðra verka-
manna í Dagsbrún til framboðs
á móti núverandi stjórn. Þessi
tilraun þeirra var dæmd ómerk
af kjörstjórn sem i eiga sæti
m.a. formaður Dagsbrúnar.
Heimildarmaður greinarhöf-
undar, Hermann Ölason, sem
var 7. maður á lista þessum,
ræðst þar heiftarlega á félaga
sína á listanum og viðhefur stór
orð um þá. Ég verð að segja að
með grein þessari opinberar
framangreindur Hermann Óla-
son sinn eigin fáránlega og
félagslega vanþroska svo notuð
séu hans eigin orð. Því að auð-
heyrt er að hann hefur ekki
hugmynd um hvernig verka-
lýðsbarátta fer fram.
Ég efa ekki að honum mun
verða tekið tveim höndum af
félögum sínum sem skipa
núverandi stjórn Dagsbrúnar
því að greinilegt er af orðum
hans og athöfnum að hann fyll-
ir þeirra flokk. Það hefur svo
lengi sem sögur herma þótt
snjallt að koma fyrir friðar-
spilli i herbúðum andstæðing-
anna til þess að skapa ringul-
reið og sundurþykkju, en í
þetta skipti hefur friðarspillir-
inn komið upp um sig og er það
hið eina sem Dagsbrúnarverka-
menn geta verið honum þakk-
látir fyrir.
Ég vil benda Hermanni Óla-
syni á atriði sem hann minntist
á í áðurnefndri grein: (Tilvitn-
un) Þetta framferði þeirra að
slá vopnin úr eigin höndum lýs-
ir fáranlegum og félagslegum
vanþroska enda skal það undir-
strikað að þessir kumpánar
höfðu aldrei samráð við með-
frambjóðendur sína né neina
stuðningsmenn listans. (Til-
vitnun lýkur).
Mér er ekki kunnugt um að
Hermann Ólason hafi haft sam-
band við meðframbjóðendur
sína né nokkra aðra af stuðn-
ingsmönnum listans um að for-
dæma félaga sína á opinberum
vettvangi, enda hefur hann
sennilega grunað að hann fengi
fáa í lið með sér við þetta at-
hæfi, þvi að verkamenn vita
sem er að sameinaðir standa
þeir en sundraðir falla þeir. Og
þeir vita einnig að ef eitt rotið
epli er í tunnunni þá ber að
taka það og fleygja út á hauga
áður en það skemmir út frá sér.
Til Dagsbrúnamanna sem
studdu listann vil ég senda bar-
áttukveðjur og hvetjá þá ein-
dregið til áframhaldandi bar-
áttu, vanda undirbúning og
skipulagningu vel fyrir næstu
kosningar því að þið töpuðuð
bara einum bardaga en ekki
orrustunni.
Stuðningsmaður.