Dagblaðið - 06.02.1978, Síða 4
. _______-_______________ .. _____ ____________ l>Ar.lH-At>n>,MANUJ)A(n:K.(>.l’KB){l.!A14:ljLI^
lllllllllllllllllllllll STERKASTA SKÁKMÓT SEM HÉR HEFUR VERIÐ HALDIÐ
Browne, stórmeistarinn og pókerspilarinn, tekur forustuna:
Lék 8 leiki á mnútu gegn
Pólú og lagði Smejkal í gær
/Esileuasty viðureign fyrstu
umferðar Reyk.javíkurmótsins
varð á milli Walter Browne frá
Bandaríkjunum og Lev Polu-
gajevskys frá Sovétríkjunum,
sem er nýkominn frá áskor-
endaeinvígi við Kortsnoj.
Skákin fór rólega af stað en þó
með þungri undiröldu. Leik-
irnir voru fáir o« tíminn leið.
Þegar rúma mín. vantaði í
fýrri timamorkin átti Browne
Bandarikjameistari ólokið átta
leikjum. ,.Pólú“ hafði átta min-
útur á sína níu leiki.
Fjn það kom í Ijós að mikið
hafði verið hugsað og þá öllu
meir af Bandartkjamanninum.
Hann átti eldsnöggt svar við
hverjum leik Sovétmarinsins.
Svo hratt var leikið að það var
ekki fyrr en öllu var lokið að
áhorfendur i sal fengu að sjá á
töflu hvernig síðustu leikirnir
gengu fyrir sig.
Út úr þessari hraðskák, með
8 leiki á rúmri mínútu, kom
Browne með unna stöðu. Tíma-
hrakinu linnti en þá var staða
„Pölú“ vonlaus.
Ungi Bandaríkjamaðurinn,
sem elskar póker ásamt skák,
og sem alltaf lendir í tímahraki,
en fer þá hamförum við skák-
horðið með rykkjum og eld-
snöggum. hreyfingum. Slær
klukkuna óþ.vrmilega og jafn-
'vel hendir ..aflögðum skák-
mönnum af börðinu. var óvænt-
asti sigurvegari þessarar f.vrstu
Þeir gera hér að gamni sinu Hort og (iuðimindur Sigurjónsson.
Ilvort þeir eru að neða um skyr og aðrar landbimaðarvöriir skal
ósagt látið. — I)B-mynd Bjarnleifur.
Góð aðstaða
áhorfenda
Þriðja um-
ferðíkvöld
umferðar. Hann er titrandi og
skjálfandi að svona skák lok-
inni og vart viðmælandi. Hann
hlýtur með „töktum" sínum að
trufla aöra — og það tala mót-
herjar hans um og dómarar
viðurkenna bak við tjöldin.
I annarri umferð mætti
Browne Smejkal frá Tékkó-
slóvakíu. Sagan endurtók sig.
Allt fór í tímahrak og mikla
hraðskák á síðustu mínútu.
Klukkan féll á Smejkal áður en
hann lauk síðasta leik sínum.
Browne var aftur með vinn-
ing. Stendur einn með 2 vinn-
inga að tveimur umferðum
loknum. - ASt.
ATLI
STEINARSSON
W//'A m 1 m iU ■
ip k m
k É& k ■n
k Sií: * k m wm
........ m IIÉ
m.
£ 'S’ ii B
Si M
Lokastaðan í tafli Smejkals og
Browne sést hér. Tékkinn var
með biskup á lofti á leið til b3 er
klukka hans féll.
Þannig einheitir Browne sér að skákhorðinu. Hér er hann þungt
hugsi fyrir „hraðskákina" við Polugajevsky. sem lyktaði með
uppgjöf hins síðarnefnda. I)B-myndir Bjarnleifur.
TÍMAREGLUR FRIÐRIKS
AUKA FJÖRIÐ í SKÁKUNUM
Framkvæmd Re.vkjavíkur-
mótsins hefur að allra dómi tek-
i/.t vel. Auk rúmgöðs salar f.vrir
áhorfendur eru sjönvörp um
alla ganga og þar er.bæði hægt
að ræða um skákir manna á
milli og fluttar eru skýringar.
Það eina sem mönnum á
göngum hefur þött skyggja á
notin af sjönvörpunum úr aðal-
sal fram á ganga er að starfs-
menn og keppendur vilja
flykkjast að þeim borðum þar
sem pressa er mikil og lætin
eru. Skyggja þeir þá á sjón-
varpsvélarnar svo að frammi á
göngunt sjá menn ekki nema
breið bök eða vangasvipi. Þetta
þ.vrfti að laga. - ASt.
Þriðja umferð Re.vkjavíkur-
skákmótsins verðiír tefld i
kvöld og hefst kl. 6. Þá mætast
við skákborðin:
Lombardv — Guðmundur
Larsen — Helgi Ólafsson
Hort — Friðrik Olafsson
Ögaard — Ku/min
Browne — Margeir Pétursson
Jón L. — Smejkal.
Miles — Polugajevskv
Fvrri timapressan, það er
eftir 30 leiki. verður í síðasí
lagi klukkan 9 en getur orðið
mun fyrr. Teflt verður siðan til
kl. 11 ef einhver notar allan
t ímann.
milli prests og kandidats til formannsstöðu í alþjóða skáksamhand-
inu. Henni lyktaði ineð jafnlefli i 25. leik. Ódýr skák fvrir Skáksam-
handið.
„Bónus” fvrir unna skák. 50
dollarar, 15 dollarar fyrir tap
og minnst eða 10 dollarar f.vrir
jafntefli virtist hafa góð áhrif
til að fjörga skákirnar í fvrstu
umferðinni í Revkjavikurskák-
mótinu, sem hófst á laugardag-
inn.
Sömu sögu var að segja í gær
og ekki var ánægjan með nýju
tímamörkin minni meðal áhorf-
enda á Loftleiðahótelinu. Eru
þau samkvæmt tillögu Friðriks
Olafssonar og samkvæmt þeim
verða keppendur að hafa lokið í
það minnsta 30 leikjum á 90
mínútum og síðan næstu 20
leikjum á 6(Tmínútum.
Skákirnar þvkja vera óvenju
fjörugar og má segja að strax að
lokum fvrsta klukkutíma sé
komin spenna vegna tímaleysis
í einhverjar skákirnar á mót-
inu. Er þetta mikill munur frá
því á mótum með gamla laginu
— þar sem maður þarf ekki að
mæta f.vrr en á fjörðu klukku-
stund — eins og einn áhorfandi
á Loftieiðahótelinu sagðí í gær.
Hvernig keppendum fellur
hið nýja form er of fljótt að
segja enn sem komið er en fróð-
legt verður að fá að heyra
þeirra álit þegar líða tekur á
Reykjavíkurskákmötið.
- óí;
Bent Larsen er afar stillilegiir við skákhorðið. Hann gengur þó mikið um gólf milli leikja en gleymir
aldrei andsta'ðingi sínum. Hér sitja þeir móti hvor öðrum Larsen og Ku/min. Ku/min hafði nög að
gera i þessari skák — og tapaði i endataflinu. — DB-mynd Bjarnleifur.
Á