Dagblaðið - 06.02.1978, Blaðsíða 9
DA'C'BItAÐIÍI MANl'I)ACl'H H. KKBRI’AH 19TH
Nótt hinna stóru rúðubrota:
FJÓRAR STÓRAR RÚÐUR
FÉLLU í VAUNN
Aðfaranótt sunnudagsins
virðist hafa verið nótt hinna stóru
rúðubrota í miðbæ Reykjavíkur.
Alls voru mölvaðar fjórar rúður í
verzlunum og f.vrirtækjum. Ekki
var gerð tilraun til þjófnaðar á
neinum staðnum heldur virðist
skemmdarfýsnin ein liggja þar að
baki.
Rúðurnar sem féllu í valinn
voru í húsnæði Happdrættis Há-
skóla Islands að Tjarnargötu 4, í
Blómabúðinni Flóru við Aðal-
stræti, í Miðbæjarmarkaðinum og
loks í bókaverzlun Sigfúsar Ey-
mundssonar í Austurstræti.
Síðar um nóttina var maður
handtekinn er hann var að reyna
að brjótast inn i veitingahúsið
Ask við Laugaveg. Að sögn Iög-
reglunnar játaði hann að hafa
brotið rúðuna hjá Háskólahapp-
drættinu en harðneitaði að hafa
komið nálægt hinum. Síðar um
nóttina játaði sautján ára gamall
Seltirningur, vel við skál, að hafa
mölvað rúðuna í Flóru. Hin tvö
voru enn óupplýst í gærdag.
Þegar frá eru talin rúðubrotin
var óvenju friðsamt í miðbænum
um helgina að sögn lögreglunnar.
Alltaf er eitthvert fjör í kringum
Hallærisplanið, þó að ekki sé það
eins fyrirferðarmikið og þegar
hlýrra er í veðri. Þar kom ekki til
neinna átaka að þessu sinni. - At -
SKIN OG SKURIR A HELLIS-
HEIÐIUM HELGINA
— ölvaður ökumaður stöðvaður þar í skaf li á föstudagskvöldið
Umferð um Hellisheiði var
mikil í gær. Færðin var ágæt, en
mikil hálka að sögn lögreglunnar
á Selfossi. Engin teljandi um-
ferðaróhöpp höfðu þó orðið vegna
hennar.
Það var strax á föstudagskvöld-
ið sem færð fór að þ.vngjast veru-
lega á heiöinni og var hún alveg
ófær um nóttina. Hún var síðan
opnuð um hádegi á laugardaginn.
Er Arbæjarlögreglan ók uppeftir
aðfaranótt laugardags sá hún til
bíls sem var að brjótast í gegnum
einn skaflinn á veginum. Öku-
manninum tókst að komast í gegn-
„Sjá bræöurmunu
berjast”
Nefbraut
vinnu-
félaga
smn
Tveir vinnufélagar, sem
hugðust bvrja sjö vikna föstuna
með ölteiti og tilheyrandi gleð-
skap, urðu ósáttir í miðjum klíð-
um á laugardagskvöldið. Þeir
höfðu lagt leið sína á Hótel Loft-
leiðir og þaðan barst lögreglunni
tilkynning um áflog nokkru eftir
miðnættið.
Er lögreglan kom á staðinn var
þar fvrir annar helmingur slags-
málagarpanna og bar sig aum-
lega. Hinn var horfinn af staðnum
en fannst fljótlega. Sá fyrrnefndi
var fluttur í sl.vsadeild og þar kom
í ljós að hann var nefbrotinn.
- AT -
um skaflinn, áður en lögreglan
náði að stöðva hann, en varð að
gefast upp við næsta skafi.
í ljós kom að ökumaðurinn,
ungur að' árum, var dável undir
áhrifum áfengis. í för með honum
voru tveir kunningjar hans, nokk-
uð gáðari, en voru þó gallharðir á
því að halda í skemmtiferð á
Hellisheiði. Eftir nokkrar rök-
ræður sáu ungu mennirnir þó
fram á að lífshættulegt gæti verið
að lenda þarna í sjálfheldu.
- AT -
Samkeppni um ódýrar
Norðurlandaferðir:
ÚTSÝNogFÍB
keppa nú víð
Norræna félagid
Ferðaskrifstofan Útsýn
hefur ákveðið að efna til sam-
vinnu við Félag íslenzkra bif-
reiðaeigenda um ódýrar ferðir
til Norðurlanda. Munu þessar
ferðir falla inn í áætlun skrif-
stofunnar um almennar ferðir
til Norðurlanda. Skilyrði er að
ákveðinn fjöldi manna sé á leið-
inni út en síðan geta menn
ferðast sem einstaklingar heim
og njóta þá sömu skil.vrða og
aðrir farþegar.
Ingólfur Guðbrandsson for-
stjóri Útsýnar boðaði blaða-
menn á sinn fund fyrir helgi til
þess að segja þeim af þessu og
notaði tækifærið til þess að
mótmæla því sem komið hefur
fram um það að Norræna
félagið m.vndi á næstunni efna
til ódýrari ferða til Norður-.
landa en nokkur annar aðili.
Taldi Ingólfur að slíkt gæti
ekki staðizt og nefndi að
Norræna félagið hefði ekki
ferðaskrifstofuleyfi og mætti
því ekki gefa út farseðla né
annast aðra ferðaþjónustu. Út-
sýn hefur undanfarin ár annazt
þess konar þjónustu við
Norræna félagið og fannst
Ingólfi nærri Útsýn höggvið
þegar félagið talaði um að
ferðir m.vndu lækka meö því að
slita þessu samstarfi og fannst
honum jafnframt gefið i skyn
að Útsýn hefði selt þjónustu
sína of dýrt, sem hann taldi
firru.
Með samvinnu við FÍB
hyggst Ingólfur sýna og sanna
að Utýn sé hagstæðasta aðili
hvað svona ferðir varðar.
- DS
VIÐ ÞJONUM
STÓR-REYKJAVÍKURSVÆÐINU
LEE COOPER
golla- og flauelsbuxur — ný snið — fróbœr framleiðsla
CINNIG:
Nýjar skíðaúlpur
U.F.O. grófrifflaðar
buxur í nýju sniði
Mussur, ný sending,
mikið úrval
m
Crum stöðugt að taka
upp nýjar vörur
Ath.
Verð oggæði
Verzlunln
Strandgötu 31
Hafnarflról, $lml 53534