Dagblaðið - 06.02.1978, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 6. FEBRUAR 1978
17
Mikil
eftirsokn
eftir
kennslu í
svæða-
meðfeid
— norskur
sérfræðingur
kennirhér
Hér á landi er staddur sérfræð-
ingur frá Þrándheimi í svokall-
aðri svæðameðferð eða svæða-
nuddi og leiðbeinir hann fólki í
annað sinn. Hann kom hingað í
nóvember og hafði þá eitt kynn-
ingarnámskeið og heldur núna
annað og einnig framhaldsnám-
skeið.
Svæðanuddið er í því fólgið að
iljar manna og fætur eru nudd-
aðar og á það að vera öllum líkam-
anum til góðs. Talið er að i iljun-
um séu endar allra tauga sem
liggja um likamann og ef kvalir
séu í einhve-rjum likamshluta þá
hverfi þær oft með þvf að nudda
iljarnar. Þeir sem að þessu nám-
skeiði standa huga þó ekki fyrst
og fremst að þessari lækningu
heldur fvrirbyggjandi aðgerðir og
það að viðhalda þeirri góðu
heilsu sem menn oftast eru gædd-
ir.
Það er Geir Vilhjálmsson sál-
fræðingur sem er aðalhvata-
maður að námskeiðinu og fékk
hann sérfræðinginn frá Noregi til
að koma. Geir sagðist liafa orðið
var við mikinn áhuga á þessu hér
á landi. Dt hafa komið tvær
bækur um svæðameðferð i is-
lenzkri þýðingu og hafa þær selzt
vel og Geir sagðist þekkja marga
sem revndu að nota sér tæknina
eftir bókunum. Hitt er svo annað
mál að réttu handbrögðin verða
varla lærð af bókum. Til þess að
kenna þau var Norðmaðurinn
fenginn. Geir sagði að hann
kenndi það sem hann sjálfur teldi
rétt en það er að nudda ávallt
allan fótinn i stað þess að tak-
marka sig við ákveðin svæði.
Norðmaðurinn leggur áhérzlu á
að mönnum sé kennt að nota þess-
ar aðferðir sjálfir eða hver á
öðrum. Með því að nota revnsluna
sem kennara eftir að farið hefur
verið á eitt námskeið ætti beztur
árangur að fást og þá geta menn
kennt hver öðrum.
Kynningarnámskejðið tekur um
17 tíma og fvrir það hafa menn
greitt 25 þúsund krónur. Hafa því
komið inn nokkur hundruð þús-
undir króna. Geir sagðist gera sér
grein f.vrir að það væri nokkuð
mikið en af þessum peningum
þarf að greiða allar ferðir Norð-
mannsins. uppihald hans og laun
þeirra sem störfuðu með honum.
þar á meðal túlks.
Upppantað er á bæði nám-
skeiðin sem nú eru haldin og
sagði Geir að dregizt gæti að
Norðmaðurinn kærni aftur því
hann væri m.jög önnum kafinn.DS
ENDURSKINS-
MERKI ERU
NAUÐSYNLEC
FYRIR ALLA
UMFERÐARRÁÐ
Við framkvæmum véla-, hjóla-, Ijósastillingu
og ballansstillingu á hjólbörðum.
Kerti Oliusíur
Platínur Bensínsiur
Kveikjulok Loftsíur
Kveikjuhamrar Boddíhlutir
Kveikjuþéttar o.fl.
Vélastillingin okkarer
meira en bara að skipta
vm platínur og kerti l
viðyfirförumlS atriðif
STILLITÆKI
Bflastillingar—Varahlutir — Mælitæki — Rafsuðuvélar
Vélastilling sf.
Auðbrekku 51, Kttp.
Sími 43140
O. Engilberfsson hf
Þessi stúlka lenti í eldsvoða. Þrátt fyrir ítrekaðar skurðaðgerðir hefur ekki tekist að
bæta skaðann til fulls. Slysinu hefði mátt forða ef reykskynjari eðaslökkvitæki hefði
verið við hendina.
Junior Chamber Reykjavík