Dagblaðið - 06.02.1978, Qupperneq 14
18
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 6. FEBRÚAR 1978
Margt smátt gerir eitt stért:
Sjúkrabflakaup fjármögnuð
með öskudagsmerkjasölu
A öskudaginn, nk. miðvikudag,
er fjáröflunardagur Rauða kross
tslands um land allt. Hvarvetna
þar sem RÍK-deildir starfa selja
þær merki heildarsamtakanna og
deildirnar á hverjum stað afla
fjár til ýmissa verkefna hver fyrir
sig með merkjasölunni. Langal-
gengast er að deildirnar vinni að
söfnun til hagsbóta f.vrir sjúkra-
flutninga.
Á síðastliðnum tveimur árum
hefur Reykjavíkurdeild Rauða
kross tslands keypt þrjá nýja
sjúkrabíla sem kostað hafa um 12
milljónir króna. Er nú verið að
festa kaup á nýjum sjúkrabil en
þeir þurfa að eridurnýjast ört því
þeir eru í stöðugum ferðum.
Sjúkrabílarnir fara að jafnaði um
þrjátíu ferðir á dag.
Þessi sjúkrabílakaup hefur
Reykjavíkurdeildin fjármagnað
m.a. með ágóða af merkjasölu í
Reykjavík, sem fer fram á ösku-
daginn.
Reykjavíkurdeildin hefur
einnig rekið sumardvalarheimili
fyrir Reykjavíkurbörn að Sil-
ungapolli í samráði við borgar-
yfirvöld. Sú starfsemi var til
fjölda ára í Laugarási í Biskjjps-
tungum.
Deildin ráðgerir nú að hefja
aftur heimsendingu máltíða til
aldraðra og öryrkja.
Talsvert á annað hundrað sjálf-
boðalióar úr Kvennaskólanum og
Húsmæðraskóla Reykjavíkur
hafa á undanförnum árum að-
stoðað sjálfboðaliða úr Reykja-
víkurdeildinni við merkjasöluna
á öskudaginn.
Deildir Rauða krossins .um allt
land hafa jafnan notað öskudag-
inn sem sinn fjáröflunardag. Þar
eru merkin afhent í skólum, eins
og í Reykjavík. Merkin kosta 200
kr. og fá sölubörn 10% í sölulaun.
Þau söluhæstu fá einnig bóka-
verðlaun.
Vilja deildir Rauða krossins um
allt land hvetja foreldra til þess
að leyfa börnum sínum að selja
merki og gæta þess einnig að
börnin verði hlýlega búin ef kalt
verður í veðri.
- A.Bj.
«c
Það þarf oft að endurnýja sjúkra-
bílana því þeir eru í mörgum
ferðum daglega. Nýir og glæsileg-
ir sjúkrabílar vekja jafnan at-
hygli þegar þeir eru kvaddir á
vettvang. DB-mynd Sveinn Þor-
móðsson.
Eldvarnir í heimahúsum oft litlar:
5% afsláttur á brunatryggingu til
þeirra sem éiga handslökkvitæki
Margir hugsa sem svo þegar
eldvarnir ber á góma: „Það kvikn-
ar ekki í hjá mér, slíkt gerist bara
hjá öðrum.“ En svo gott er ástand-
ið víst ekki. Eldurinn er eins og
aðrir skaðvaldar með þeim ósköp-
um gerður að hann fer ekki í
manngreinarálit.
Eldvarnir á heimilum eru því
oft ekki miklar þó þær séu sífellt
að aukast að sögn eldvarnarfull-
trúa Reykjavíkur.
Tvenns konar eldvarnatæki er
helzt um að ræða fyrir heimilið. I
fyrsta lagi eru það handslökkvi-
tæki og í öðru lagi reykskynjarar.
Hafi menn fullgild slökkvitæki á
heimilum sínum þykir að því svo
mikið öryggi að tryggingafélög
veita 5% afslátt af brunatrygg-
ingum. Reykskynjarinn er hins
vegar ekki með í útreikningum
þeirra og út á hann fæst enginn
afsláttur. Þetta er komið til af því
að reykskynjarinn veitir vita-
skuld ekkert gagn við að slökkva
eldinn heldur lætur hann fólk
aðeins vita af honúm fyrr en ann-
ars myndi verða og hindrar
þannig að menn brenni inni í
svefni. Litið er á reykskynjarann
sem slysavarnatæki en ekki sem
eldvarnatæki.
Hjá sumum fyrirtækjum eru
reykskynjarar sem eru tengdir
beint við Slökkvistöðina og er
veittur verulegur afsláttur af
tr.vggingum fyrir svoleiðis verk-
færi.
Eflaust hafa einhverjir þegar
rekið augun í auglýsingu hér í
blaðinu sem er allóhugnanleg að
sjá. Hún sýnir betur en mörg orð
hverju tjóni eldur getur valdið á
fólki ekki siður en eignum þess.
Er ekki ráðlegt að hafa meiri
eldvarnir heima hjá þér?
Slíkar afleiðingar getur logi á
kerti haft í för með sér ef óvar-
lega er farið og engin eldvarnar-
tæki eru við höndina.
- DS
Vérzlun
Verzlun
Verzlun
Kramh'iðum eftirtaldar'gerðir:
HRINGSTIGA, TEPPASTIGA, TRÉÞREP, RIFLAJÁRN,
ÚTISTIGA ÚR ÁLI OG PALLSTIGA.
Margar gerðir af inni-'ög útihand-
riðum. VÉLSMIÐJAN JÁRNVERK
ARMÚLA :!2 — SÍMI IMI
KYNNIÐ YÐUR OKKAR HAGSTÆÐA VERÐ
URVAL
Skrifborðsstólar
í mjög
f jölbreyttu úrvali.
Framleiðandi:
StáHöjan Kópavogi
KRÓM HÚSGÖGN
Smiðjuvegi 5,
Kópavogi — Sími 43211
Málverka-
innrömmun
Erlentefni—
Mikiöúrval
Opiöfrákl. 13.00
Rammaiðjan
Óðinsgötu 1 — Reykjavík — Sími 21588
MOTOROLA
Allernatorar í híla og háta, <>/12/24/32
volta.
’latinulausar Iransislorkveikjur i flesta
bíla.
HAUKUR & ÓLAFUR HF. Ánpúla 32. Simi 37700.
Höggdeyfarí
BENZ 309
og fleiri bfla
SMYRILL H/F Armúla 7, R. S. 84450.
UTIHURDIR
BÍLSKÚRSHURÐIR
SVALAHURÐIR
GLUGGAR 0G
GLUGGAFÖG
ÚTIHURÐIR
Dalshrauni 9, Hafnarfirði
Sími 54595.
STUÐLA-SKILRÚM er léttur veggur, sem samanstendur af
stuðlum, hillum og skápum, allt eftir þörfum á 1 erjum stað.
SVERRIR HALLGRÍMSSON
SmfOaitofa.Trönuhrauni 5. Slmi: 51745.
Sjálfvirk hurðaropnun
Meðeðaa'n
radiofjarstýríngar
Bíigeymslur
Einstaklinga
Fyrirtæki
Stofnanir
Stáltæki—Bankastræti 8 — sími27510
ALTERNAT0RAR
6 — 12—24 volt
35 — 100 amper
Teg: Delco Remy, Ford
Dodge, Motorole o.fl.
Passa í : Chevrolet,
Ford, Dodge,
Wagoneer, Land-Rover,
Toyota, Datsun og m.fl.
VERÐ FRÁ KR. 13.500.-
Varahluta- og viðgerðaþjónusta.
BÍLARAF H/F
B0RGARTÚNI 19.
SÍMI 24-700