Dagblaðið - 06.02.1978, Page 24
r[ DB birtir „fimm valkosti” ríkisstjómarinnar:
Hálfar verðbætur á
laun og gengisfelling?
DB hefur aflað sér
uppiýsinga um, hvaða
„valkosti" ríkisstjórnin bar
undir aðila vinnumarkaðarins á
fundum á föstudag. Nú er talið,
að ríkisstjórnin hallist helzt að
5. valkosti B, sem felur í sér að
verðbætur á laun verði skornar
niður um heíming allt árið. Þar
er einnig reiknað með allt að 15
prösent gengisfellingu, sem
kann að verða eitthvað minni
vegna hins hraða gengissigs
síðustu daga.
Fleira hangir á spýtunni i
þessum „fimmta valkosti". Til
að bæta hinum lægst launuðu
upp niðurskurð verðbóta að
einhverju leyti er þar gert ráð
fyrir 10 prósent hækkun barna-
bóta og eitt prósent lækkun
vörugjalds. Þá skal 10 prósent
sk.vldusparnaður lagður á félög,
það er atvinnureksturinn.
Niðurgreiðslur skulu auknar
um 1,9 milljarð og útgjöld tii
opinberra framkvæmda skorin
niður um tvo milljarða.
Verðtrygging útlána skal aukin
og vextir hækkaðir. í þessum
valkosti er reiknað með 10%
hækkun saltfiskverðs.
í valkostinum eru gefnir
aðrir möguleikar á niðurskurði
verðbóta á laun, annars vegar,
að engar verðbætur verði
greiddar fram til 1. des. nema
5% á iaun undir 150
þúsundum. Hins vegar að
áhrif væntanlegra gengis-
breytinga verði dregin frá
verðbótunum og ekki bætt.
STÖÐVUN LAUNA —
0G VERÐHÆKKANA?
Fjórir aðrir valkostir eru
nefndir i plöggum ríkis-
stjórnarinnar. I 3. kosti er gert
ráð fyrir algerri stöðvun á
kauphækkunum og þá ekki
nema 8% gengislækkun. Á
móti kemur nokkur lækkun
skatta og hækkun trygginga-
bóta. Tíu prósent skyldu-
sparnaður skal lagður á félög.
Niðurgreiðslur hækka um
milljarð og opinberar fram-
kvæmdir minnka um milljarð.
Verðstöðvun verður. Leyfa skal
þó einhverjar hækkanir vegna
gengisbreytinga og launa-
hækkun síðla ársins.
í 2. valkosti er gert ráð fyrir,
að kjarasamningar haldi gildi
sínu, en skattar verðahækkaðir.
meðal annars brúttóskattar.
Vörugjald lækkar. Vextir
hækka og verðtrygging útlána
vex. Gengislækkunin verður
10% samkvæmt þessum val-
kosti.
í 4. valkosti skulu allar
verðbætur á laun felldar niður.
Hins vegar lækka skattar og
tryggingabætur hækka. 10%
skyldusparnaður verður lagður
á félög. Niðurgreiðslur hækka
um 1,9 milljarð og opinber út-
gjöld minnka um þrjá
milljarða. Vestir hækka og
verðtrygging útlána eykst. í
þessum valkosti verður gengis-
felling tuttugu prósent.
Loks er í plöggum ríkis-
stjórnarinnar nefndur 1. val-
kosturinn, að stefnan verði
óbreytt, en engum mun þykja
það fýsilegt.
Þriðji og fjórði valkostur fela
í sér 2-3% skerðingu kaupmátt-
ar, en fimmti valkostur lítils-
háttar aukningu kaupmáttar.
að því er tillögusmiðirnir telja.
-HH „
Bolla, bolla, bolla. Það er bollu-
dagur í dag, Það hefur líklega
ekki farið framhjá néinum,
margir hafa verið vaktir í morgun
með b.vlmings bolluvandarhögg-
um. Annars er bolludagurinn
gamall siður, fyrsti mánudagur í
föstuinngangi. í bókinni Saga
daganna er sagt að það hafi verið
norrænir bakarar sem komu
siðnum á. Bollurnar kosta hátt á
annað hundrað króna. Það hefur
mikið vatn runnið til sjávar síðan
bollurnar kostuðu ekki nema eina
litla krónu — en sú króna gat
heldur ekki flotið á vatni. —
DB-mynd
Ragnar Th. Sig.
Loðnan:
TÍU ÞÚS. T0NN í GÆR
Sjálfstæðisflokkur með
óbreyttan lista
til alþingis á Reykjanesi
28 bátar lönduðu um tíu
þúsund tonnum af loðnu í gær
og höfðu fjórir tilkynnt sig til
loðnunefndar snemma í morg-
un með slattaafla.
Veður er að ganga niður en
talið er að til storma kunni að
koma og hafa veiðar orðið fvrir
verulegum töfum vegna
veðurs það sem af er.
Loðnunni var landað á hafnir
milli Siglufjarðar og Seyðis-
fjarðar, en um þróarrými sögðu
þeir hjá loðnunefnd, að erfitt
væri að spá því afkastageta
verksmiðjanna væri misjöfn.
HP
Sjálfstæðismenn í Reykjanes-
kjördæmi munu bjóða fram sömu
menn í þrem fyrstu sætum fram-
boðslista síns til alþingiskosninga
næsta vór ef ráða má af úrslitum
en hann varð hlutskarpastur i for-
kjöri, sem haldið var þar fyrir
prófkjörið.
í fimmta sæti fékk Salome Þor-
kelsdóttir gjaldkeri Mosfellssveit
flest atkvæði eða 3433. Sigurgeir
Sigurðsson bæjastjóri á Sel-
tjarnarnesi varð í sjötta sæti með
3079 atkvæði og í sjöunda sæti
varð Ásthildur Pétursdóttir,
félagsmálafulltrúi í Kópavogi
með 2752 atkvæði.
t síðustu alþingiskosningum
fengu sjálfstæðismenn tvo
kjördæmakosna þingmenn í
Reykjaneskjördæmi. Þriðji
maðurinn á lista þeirra hlaut
uppbótarþingsæti.
Röð fyrstu þriggja manna á
listanum til alþingiskosninga í
vor verður óbreytt en mestar
líkur virðast á, að Eiríkur
Alexandersson verði í fjórða
sætinu. Það skipaði Axel Jónsson
í Kópavogi í síðustu kosningum.
Hann gaf ekki kost á sér að þessu
sinni.
í prófkjörinu um helgina
greiddu 7647 manns atkvæði þar
af voru 299 atkvæði auð eða ógild.
-ÖG.
Magnús símstöð varstjóri
áf ram í f yrsta sæti hjá
krötunum í Eyjum
Magnús H. Magnússon, sím-
stöðvarstjóri og fyrrverandi
bæjarstjóri varðefstui í prófkjöri
Alþýðuflokksins til undirbúnings
bæjarstjórnarkosninga i Vest-
mannaeyjum.
Fékk hann 144 atkvæði í fyrsta
sætið. Guðmundur Þ.B. Ólafsson
húsasmíðameistari fékk flest at-
kvæði í annað sæti, hlaut 83 at-
kvæði. Guðmundur sem er nýr í
bæjarmálunum í Eyjum, vann
nauman sigur á Tryggva Jónas-
syni rennismíðameistara sem
fékk 80 atkvæði í annað sætið.
Tryggvi varð aftur á móti hlut-
skarpastur um þriðja sætið með
128 atkvæði. Agúst Bergsson
hafnarvörður var efstur í fjórða
sæti með 167 atkvæði og i fimmta
sæti kemur Fríða Hjálmarsdóttir
læknaritari með 151 atkvæði.
í prófkjörinu greiddu 267
manns atkvæði, ógildir seðlar
voru 13. Dræm aðsókn var á laug-
ardaginn, þá kusu aðeins rúmlega
70 manns. Mest var kosið seinni
hluta sunnudags.
í síðustu bæjarstjórnarkosning-
um fékk A listinn, listi jafnaðar-
manna, 528 atkvæði og þrjá menn
kjörna i Vestmannaeyjum. -ÖG.
prófkjörs þeirra sem fram fór um
helgina.
Matthías A. Mathiesen fjár-
málaráðherra féj<k flest atkvæði í
fyrsta sæti 2103. Oddur Ólafsson
læknir og alþingismaður fékk
flest atkvæði í annað sætið 2530
og Ólafur G. Einarsson alþingis-
maður flest atkvæði í þriðja sætið
2739.
Matthías fékk atkvæði 53,9%
þeirra sem greiddu atkvæði og er
því kosning hans bindandi sam-
kvæmt prófkjörsreglum Sjálf-
stæðisflokksins. Svo er einnig
með Odd Ólafsson, sem hlaut
tilnefningu 63,2% kjósenda, og
Olaf G. Einarsson en hann hlaut
54,2% greiddra atkvæða.
í fjórða sæti í prófkjörinu varð
Eiríkur Alexandersson bæjar-
stjóri í Grindavík. Fékk hann
2838 atkvæði í fjórða sætið. Hann
var studdur beint og óbeint af
stjórnum og fulltrúum sjálf-
stæðisfélaganna á Suðurnesjum,
fifálst, óháð dagblað
MANUDAGLR 6. FEBR. 1978.
Langferðabifreið
ogeinkabíll
óku útaf
nokkurslysurðu
Tveir menn slösuðust er bifreið
þeirra lenti út af í beygju vestan
við Bláskeggsá í Hvalfirði aðfara-
nótt sunnudags. Þar sem slysið
varð er nokkur bratti og hrapaði
bíllinn niður í fjöru.
Lögreglunni á Akranesi var til-
kynnt um slysið klukkan hálfþrjú
um nóttina. Farþega í bílnum
tókst að komast að olíustöðinni í
Hvalfirði og láta vita um at-
burðinn. Er lögreglan kom á
staðinn var ökumaðurinn fastur í
bílnum, sem er mikið skemmdur.
Greiðlega gekk að losa hann.
Mennirnir tveir voru siðan fluttir
í sjúkrahúsið á Akranesi.
Ekki tókst Dagblaðinu að fá
upplýsingar um það á sjúkra-
húsinu á Akranesi, hvort
mennirnir væru mikið slasaðir.
Varkárni sjúkrahússfólks í slík-
um upplýsingum er oft þvílík, að
út í öfga gengur. Sömuleiðis lágu
upplýsingar um, hvaðan af
landinu mennirnir tveir væru,
ekki á lausu. Bifreiðin sem þeir
óku var með Reykjavikur-
númerum og á leið frá
höfuðborginni en að sögn lög-
reglunnar eru mennirnir ekki
þaðan.
Á föstudaginn lenti langferða-
bifreið út af veginum í Hvalfirði,
skammt frá Ferstiklu, og steyptist
fram af allhárri vegarbrún. Sjö
manns slösuðust í óhappinu og
voru fluttir i sjúkrahús. Sex
þeirra fengu að fara heim eftir að
gert hafði verið að sárum þeirra,
en einn þarf að dvelja þar í
nokkra daga.
Mikil hálka var á vegiiium, er
slysið varð, og er það rakið til
hennar. -AT-
„Aldrei á sunnudögum”
Kópavogsgötur
aðeins sandbornar
virka daga
Gífurleg hálka var á götum
Kópavogs í gær og óvenjumargir
árekstrar þar eða fimm talsins.
Ekki urðu slys á fólki i þessum
árekstrum. Orsök þessara
árekstra sagði lögreglan að væri
hálkan, en götur bæjarins eru
ekki sand- eða saltbornar nema á
virkum dögum.
A.Bj.
Prófkjör Sjálf stæðis-
f lokksins í Njanð vík:
AKIGRANS
EFSTUR
I prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins til bæjarstjórnar-
.kosninga í Innri-Njarðvík kusu
366 manns. Áki Gráns varð efstur
með 88 atkvæði í fyrsta sæti.
Ingólfur Aðalsteinsson kom
næstur með 58 atkvæði í fyrsta
sæti og 72 í annað sætið (130 at-.
kvæði alls) Þriðji varð Ingvar
Jóhannsson með 84 atkvæði í
fyrsta sæti, 44 í annað og 36 í
þriðja (164 alls). Fjórði varð
Júlíus Rafnsson með 58 atkvæði í
fyrsta sæti, 38 í annað, 43 í þriðja
og 47 í fjórða (186 alls).
Kosningin er bindandi fyrir þessa
fjóra menn.
I fimmta sæti varð Helga
Óskarsdóttir, í 6. Karl Sigtryggs-
son, í 7. Ingólfur Bárðarson, í 8.
Ardís Tómasdóttir og í 9. Ólafur
Júlíusson.
t síðustu kosningum til bæjar-
stjórnar í Innri-Njarðvík fékk
Sjálfstæðisflokkurinn 424 at-
kvæði og 4 menn kjörna.
-DS.
*
I
í
I