Dagblaðið - 07.02.1978, Blaðsíða 4
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1978.
...
Fimm milljónirí verðlaun fyr-
ir skipulagið í Mosfellssveit
LÖGÐ VERÐIÁHERZLA Á ÚTISVÆÐIN.
VIÐ VIUUM HAFA ÞAÐ ÖÐRUVÍSIEN AÐRIR, SEGIR ODDVITINN
Teigahverfi er næst, en fjær Holtahverfi og Tangahverfi.
„Hreppurinn er víölendur og
landslagið margbreytilegt og
þess vegna gera hreppsbúar sér
kannski örlítið öðruvísi hug-
myndir um hvernig skipulag
þeir vilja en aðrir,“ sagði Jón
M. Guðmundsson oddviti Mos-
fellshrepps er hann kynnti út-
boð á samkeppni um skipulag f
Mosfellssveit.
„Fólk í þéttbýli notfærir sér i
auknum mæli útivistarsvæði og
í Mosfellssveit eru slík svæði
mörg og hentug bæði fyrir
gangandi og ríðandi fólk. Má
nefna fellin, heiðarnar og Leir-
voginn, þar sem fjarar mjög
langt út,“ sagði Jón.
Verðlaunin sem í boði eru í
samkeppninni eru vegleg,
fjmm milljónir króna, og
verða fyrstu verðlaun 2,5
milljónir. Tillögunum skal skila
fyrir 17. maí næstkomandi.
Allir Islendingar og einnig út-
lendingar sem starfa hér á
landi hafa rétt til þátttöku í
keppninni. öll gögn varðandi
hana fást hjá Ölafí Jenssyni
framkvæmdastjóra að
Kjartansgötu 2 í Reykjavík
gegn 10 þúsund kr. skila-
tryggingu. Er hann trúnaðar-
maður dómnefndarinnar.
I dómnefndinni eiga sæti
Aðalsteinn Júlíusson vita- og
hafnarmálastjóri frá skipulags-
stjórn ríkisins og er hann for-
maður nefndarinnar,
arkitektarnir Helgi Hjálmars-
son og Gylfi Guðjónsson frá
Arkitektafélaginu, Jón M.
Guðmundsson oddviti . og
Magnús Sigsteinsson formaður
skipulagsnefndar hreppsins.
Varamenn eru Sæberg Þórðar-
son og Anna S. Gunnarsdóttir.
Einnig starfa með nefndinni
Jón Baldvinsson sveitarstjóri,
Magnús Ólafsson byggingar-
fulltrúi, Róbert Pétursson
arkitekt og Zóphonías Pálsson
skipulagsstjóri.
MIKIL FÓLKSFJÖLGUN
Fólksfjölgun í Mosfellssveit
hefur verið gifurlega mikil á
undanförnum árum. Á árunum
frá 1970-76 fjölgaði ibúum um
100%, en 1. des. 1976 voru
íbúarnir nærri tvö þúsund. —
Núverandi þéttbýliskjarni í
hreppnum er byggður sam-
kvæmt bráðabirgðaskipulagi og
taldi þvf bæði hreppsnefnd og
skipulagsnefnd hreppsins að
rétt væri að efna til samkeppni
um nýtt aðalskipulag fyrir
hreppinn.
Mosfellshreppur hefur öll
skilyrði til þess að verða eins
konar „draurna" byggð. Þar eru
skilyrði til útivistar með mikl-
um ágætum, gamlar og nýjar
reiðgötur eru um dali og fell.
Einnig er hin mikla fjara f
Leirvognum tilvalinn staður
bæði til útreiðatúra og einnig
til þess að vaða í volgum sjón-
ura á sólbjörtum dögum. Leir-
vogsá er ein af betri laxveiðiám
og telja kunnugir að Varmáin
myndi fyllast af fiski ef Ala-
fossverksmiðjan hætti að láta
frárennslið frá verksmiðjunni
beint í hana. Er það raunar
mjög furðulegt að verk-
smiðjunni skuli ekki hafa verið
gert að skyldu fyrir löngu síðan
að ganga betur frá frá-
rennslinu. En Mosfellshreppur,
sem er eitt af minnstu sveitar-
félögunum á Suðvesturlandi,
hafði forgöngu í umhverfis-
verndarmálum og lét gera rot-
þró fyrir þéttasta íbúða-
kjarnann, Holtahverfið.
Hitaveita er komin í flest ef
ekki öll hús í hreppnum en til
skamms tima bar á kaldavatns-
skorti. En nú hefur verið ráðin
bót á því og hreppsbúar hafa
ágætt vatn, sem að vísu verður
aldrei almennilega kalt.
Forráðamenn hreppsins vilja
sporna við því að Mosfellssveit
verði að svefnbæ frá Reykjavik
og vilja þvi stuðla að léttum
iðnaði í sveitinni. Ráðgert er
iðnaðarhverfi norðanviðHamra-
hlíðina, fyrir ofan íbúðar-
hverfið í Hliðartúni. Verður þá
lagður vegur beint af Vestur-
landsvegi og upp í iðnaðar-
hverfið. Nú þegar hefur ein
lítil trésmiðja tekið til starfa
þar, en að vfsu í bráðabirgða-
húsnæði. I sveitinni eru eins og
kunnugt er tvö stór iðnfyrir-
tæki, Álafoss og Reykjalundur.'
Vinna á fimmta hundrað
manns hjá þeim fyrirtækjum.
Mikil ásókn hefur verið
í byggingarlóðir í Mosfellssveit.
I vor er ráðgert að úthluta 50
einbýlishúsalóðum þar. Lóða-
gjöld í hreppnum eru svipuð og
í Reykjavík en fasteignamat á
húsum er Iægra en þar.
-A.Bj.
Ef eldur kviknarað nóttu til:
HVAÐ Á AÐ
GERA - EF
MENN VAKNA?
Flestallir eldar sem verulega
hættulegir verða og valda mestu
tjóni koma upp að nóttu til. En
ekki er þar með sagt að
upptakanna að eldinum sé ekki að
leita strax að degi til.
I heimahúsum getur eldur
kraumað í bólstuðum húsgögnum
í marga klukkutíma áður en hann
brýzt út af fullum krafti. Mjög
auðvelt er að kveikja slíka elda.
Ekki þarf annað en að^missa glóð
úr sígarettu og þá er voðinn vís.
Fólkið fer svó að sofa þegar
sjónvarpinu er lokið og vaknar
ekki aftur fyrr en seint og um
síðir, ef það þá vaknar. Sumir
gera það ekki.
En hvað getur fólk gert ef það
nú vaknar og öll íbúðin er orðin
full af reyk og undankomuleiðir
eru lokaðar eða tepptar? Bezt er
að hafa fyrirfram gert áætlun um
þessa hluti. Strax og börnin eru
orðin það stór að geta gert sér
grein fyrir þessum hlutum á að
hafa þau með í áætluninni. Hún
getur falið í sér skipulag um und-
ankomu út um glugga ef leiðin að
dyrunum er ógreið. Lokið þó á-
vallt herberginu sem útgöngu-
glugginn er á áður en hann er
Börnin eiga að vera með í áætlun
um björgun úr eldsvoða strax og
þau hafa vit til.
opnaður þvi eldurinn blossar upp
nái hann sér f það aukna súrefni
sem þá kemur inn. Ef glugginn er
ofar en jarðhæð má henda út
samanbundnum lökum og síga
niður eftir þeim. Ef börnin eru of
lítil til þess að geta klifrað sjálf er
bezt að binda þau á bak sér.
Ákveðinn staður á að vera fyrir
utan húsið sem allir hittast á svo
ganga megi úr skugga um hvort
allir eru heilir á húfi.
Er áætlun um björgun úr elds-
voða til heima hjá þér?
Sögulegum minjum f rá SVFÍ stolið úr sýningarglugga
Aðfaranótt laugard. var brotin
rúða i sýningarglugga í Karnabæ
í Austurstræti þar sem Slysa-
varnafélag íslands hafði sýningu
á ýmsum björgunartækjum í
tilefni hálfrar aldar afmælis síns.
Úr glugganum var stolið gömlum
línuriffli og tveimur merkja-
byssum.
Þessi áhöld geta ekki með
nokkru móti orðið neinum að
gagni en eru aftur á móti
sögulegar minjar fyrir Slysa-
varnafélagið. Sagði Hannes Haf-
stein hjá SVFl að sérstaklega
væri eftirsjá í línurifflinum, því
slíka riffla er fyrir löngu hætt að
framleiða. Ef einhverjir verða
varir við þessa gripi eru þeir
beðnir að láta Slysavarnafélagið
eða lögreglu tafarlaust vita. -A.Bj.
Austurbæjarbfó brást við hart og
MAÐURINN Á ÞAKINU ER K0MINN
— byrjað verðurað sýna myndina þegar útvarpssagan erbúin
Maður uppi á þaki nefnist
miðdegissaga útvarpsins um þess-
ar mundir og var hún kynnt
nokkuð í blaðinu á mánudaginn
var. Þá var líka getið um kvik-
mynd sem gerð hefur verið eftir
þeirri sögu og var því yjað að
kvikmyndahúsum eða sjónvarpi
að reyna að fá hana til sýningar
hér á landi. Nú hefur Austur-
bæjarbíó fengið myndina og
hefjast sýningar á henni um það
leyti sem lestri sögunnar lýkur.
Myndin „Maður uppi á þaki“ er
gerð af Bo Widerberg og er hún
ein.stærsta og viðamesta mynd,
sem Svíar hafa lengi gert. Hingað
kemur myndin frá Danmörku þar
sem hún gekk í þrjá mánuði og
þykir það mjög gott. Enda er
myndin sögð afar spennandi og
skemmtileg og er ekki að efa það
ef Widerberg hefur náð anda
höfunda sögunnar, þeirra Maj
Sjöwall og Per Wahlöö.
Maður uppi á þaki er þriðja
kvikmyndin sem gerð var eftir
sögum þeirra. Hin fyrsta var
Rósanna sem gerð var eftir
sögunni Morðið á ferjunni sem
kom út hér á landi fyrir jólin. Þá
mynd hefur hins vegar ekki verið
hægt að sjá hér á landi.
Eins og í öllum sögum Sjöwall
og Wahlöö er það leynilöggan
Martin Beck sem leikur aðalhlut-
verkið. Martin þessi er alger and-
stæða við ofurmenni þau sem oft-
ast hafa verið gerð úr leyni-
löggum. Hann er með magasár og
reykir eins og strompur. Oftast
gengur honum hægt að leysa
málin í byrjun, en hefur það þó
alltaf af að lokum. Stígandinn er
því hægur til að byrja með en
eykst eftir því sem á líður.
-DS.
Áhrifamiklir atburðir í Maður uppi á þaki.
-DS.