Dagblaðið - 17.02.1978, Side 1
frjálst,
úháð
dagUað
4. ARG. — FÖSTUDAGUR 17. FEBRUAR 1978 — 41. TBL. RITSTJÖhN SÍÐUMULA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11. — AÐALSÍMI 27022.
——
Ríkisstjórnin „bakkai*
með óbeinu skattana
Geir Hallgrímsson forsætis-
ráðherra kvaddi sér hljóðs,
þegar þingfundur hófst í efri
deild í gær, og las upp yfir-
lýsingu frá rikisstjórninni. Þar
var „bakkað“ fyrir launþega-
samtökunum í einu atriði frum-
varps stjórnarinnar um efna-
hagsmál. Sú grein, þriðja grein,
sem segir að óbeinir skattar
skuli teknir úr vísitölunni um
næstu áramót, verður nú felld
úr frumvarpinu.
Forsætisráðherra sagði með-
al annars:
„Fulltrúar launþegasamtaka
hafa af ýmsum ástæðum lýst
ákveðinni andstöðu við þetta
ákvæði. Skoðun og rök ríkis-
stjórnarinnar fyrir þessari til-
lögu eru skýr og þarf ekki að
endurtaka þau. Núverandi vísi-
töluákvæði hafa óæskileg áhrif
á stefnuna f skattamálum, auk
þeirrar hættu á hækkun kaup-
gjalds og verðlags sem þau fela
í sér.
Það er athyglisvert að nær
allir, sem til máls hafa tekið i
umræðum um þetta mál, telja
vísitölukerfið meingallað.
Ríkisstjórnin telur því rétt að
taka vísitöluákvæði í kjara-
samningum til allsherjarendur-
skoðunar og þar með vísitölu-
grúndvöllinn og vill vinna að
þessu máli að höfðu samráði við
samtökin á vinnumarkaðinum,
þannig að ný skipan gæti komið
til framkvæmda frá upphafi
næsta árs.
I samráði við ríkisstjórnina
hefur meirihluti fjárhags- og
viðskiptanefndar lagt til að
þriðj^ grein frumvarpsins um
ráðstafanir í efnahagsmálum
verði felld burt og vill ríkis-
stjórnin með því sýna að hún er
reiðubúin til samráðs um fram-
tiðarskipan þessa mikilvæga
málstaðar f ár...“
Er Geir Hallgrímsson hafði
lokið máli sínu tók Halldór
Asgrímsson (F), formaður
nefndarinnar, til máls og rök-
studdi nánar ákvörðun meiri-
hlutans en í honum eru auk
Halldórs þeir Jón Helgason
(F), Axel Jónsson (S), Jón G.
Sólnes (S) og Albert Guð-
mundsson (S).
Miklar umræður spunnust
um mál þetta á Alþingi, sem
ekki er rúm að greina frá hér,
en greint er frá viðbrögðum
verkalýðsleiðtoga annars staðar
hér í blaðinu.
- HP
Blaðaleysi
— blaðamenn í annað verkfallið í 80 ára
sögu Blaðamannafélags íslands
„Hver skollinn, allur
harðfiskurinn búinn,“ sagði Bragi
Guðmundsson, ritstjórnarfulltrúi
og formaður launamálanefndar
Blaðamannafélagsins, þegar hann
kom fyrstur manna á samninga-
fund hjá rikissáttasemjara í
Tollstöðinni klukkan þrjú f gær. I
stuttu máli sagt var lítið
samningahljóð í mönnum og
flestir virtust búa sig undir verk-
fall sem átti að skeila yfir á
miðnætti síðastliðnu. öll dag-
blöðin koma út í dag en verkfallið
nær til fleiri fjölmiðla en þeirra.
Blaðamenn á Alþýðublaðinu,
Dagblaðinu, Morgunblaðinu,
Tímanum, Vísi, Þjóðviljanum,
Vikunni, Æskunni, Akureyrar-
blöðunum Degi, Norðurlandi,
Alþýðumanninum, íslendingi og
hjá tímaritum Frjáls framtaks
leggja niður störf. Blaðamenn
hófu verkfallsvörzlu klukkan átta
í morgun og um miðjan dag í gær
töldu talsmenn útgefenda og
blaðamanna litlar líkur til
samninga en sögðust vona hið
bezta. Vegna fréttar í DB í gær er
rétt að taka fram að Kristinn
Finnbogason framkvæmdastjóri
Tímans sór af sér öll tilboð til-
starfsmanna Tímans eða Blaða-
prents um ókeypis sólarlanda-
ferðir. Hins vegar tók fram-
kvæmdastjórinn fram að hann
væri nú sem ávallt áður að
liðsinna öllu góðu fólki varðandi
utanferðir sem annað eftir beztu
getu. -ÖG.
n
Tveir fulltrúar við sáttatilraun-
irnar hjá sáttasemjara í gærdag,
Kristinn Finnbogason, fram-
kvæmdastjóri Timans, og Bragi
Guðmundsson, ritstjórnarfuiltrúi
Vísis (til vinstri). Það ber mikið
á milli þessara aðila en efiaust
treysta flestir því að fljótt semjist
þannig að dagblöðin haldi áfram
striki sínu. — DB-mynd Ragnar
Th. Sig.
Lögbrot
löggjafans
— sjá föstudags-
kjallara
Vilmundar
Gylfasonar
á bls. 10 og 11
Heimsfrægur
rokk-
söngvari í
Reykjavík
— baksíða
Ammoraak-
geymirsprakk
— þykkirveggir
kurluðust— baksíða
Þetta undanhald breytir
ekki hinu minnsta Jónsson
„Þetta breytir ekki hinu
minnsta um fyrirhugaðar
aðgerðir okkar,“ sagði Björn
Jónsson, förseti Alþýðusam-
bandsins, um ákvörðun rikis-
stjórnarinnar að falla frá frum-
varpsgreininni um óbeinu
skattana.
„Þótt þessi grein fari út
stendur eftir sú gífurlega kjara-
skerðing allt samningstímabilið,
fram til 1. des., sem frumvarpið
felur í sér.
Við lítum á þetta sem visst und-
anhald vegna mikillar andstöðu
og einingar í okkar röðum,“ sagði
Björn.
Hann sagði að þessi afstaða
túlkaði afstöðu ASÍ, BSRB og
Farmanna- og fiskimannasam-
bandsins. Fulltrúar úr stjórnum
þessara samtaka hefðu þegar rætt
þetta undanhald og verið á einu
máli um að það breytti engu.
-HH.