Dagblaðið - 10.03.1978, Síða 1
friálst,
úháð
AanMatí
RITSTJORN SÍÐUMCLA 12. AUGLYSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11. — AÐALSÍMI 27022
„VIÐ GEFUMST EKKI
UPP STRAX ÞRÁn
FYRIR MJÖG DÖKKT ÚTLIT í ÁR”
— segir Alf reð Elíasson, f orstjóri—bókanir lofa enn góðu—breiðþotukaup verða að bíða
DC-þota frá Flugleiðum — þær munu enn um sinn þjóna
farþegum félagsins milli Evrópu og Ameríku.
„Utlitið er mjög dökkt, en við
fylgjumst vel með og það
verður ekki ljóst fyrr en eftir
svo sem einn tii tvo mánuði
hvaða stefnu þessi mál taka,“
sagði Alfreð Elíasson, einn for-
stjóri Flugleiða í viðtali við DB
í gær, er hann var spurður um
stórharðnandi og skyndilega
samkeppni á Norður Atlants-
hafsflugleiðinni.
Svo sem DB hefur skýrt frá,
hefur félagið þegar fækkað
ferðum um eina ferð til New
York. miðað við sama tíma í
f.vrra, en hins vegar fjöigað um
eina ferð til Chicago. Þá sagði
Alfreð að þrátt fvrir allt væru
bókanir, frá deginum í dag og
út ágúst, fleiri nú en i fyrra.
þótt of snemmt væri að spá um
hversu margar þeirra stæðust.
Þar sem árið í ár er óneitan-
lega tímamótaár i sögu Norður-
Atlantshafsflugs Flugleiða og
sú sérstaða félagsins að geta
boðið lægstu fargjöld á leiðinni
er úr sögunni. var Alfreð
spurður til hvers vrði gripið ef
stórfelldur samdráttur yrði a
farþegaflutningum í ár. Hann
sagði: „Við gefumst ekki upp
strax, fyrst yrði sjálfsagt gripið
til þess að fækka ferðum og
skoðað hvort færri ferðir gætu
staðið undir sér.“
I nýjasta hefti starfsmanna-
blaðs Flugleiða ritar Sigurður
Helgason, einn forstjóra Flug-
leiða, grein er hann nefnir:
Hugleiðing á tímamótum. Þar
segir orðrétt: Varðandi útlitið
f.vrir 1978 þá verður að segja að
það er því miður ekki bjart.
Vaxandi erfiðleikar eru ■ á
Atlantshafsflugleiðunum
vegna algjörrar ringulreiðar í
fargjaldamálum. Fargjöld ,hafa
farið lækkandi á þessari leið
frá sl. hausti og þótt um við-
námsaðgerðir af okkar hálfu
hafi verið að ræða í formi
samræmingar og einföldunar á
fargjöldum er ekki von til þess
að það flug komi út jákvætt
árið 1978.
Sigurður heldur áfram: Við
gerum okkur að sjálfsögðu öl!
grein fyrir því að þau
flutningatæki sem við notum í
dag í rekstrinum geta ekki enzt
til eilífðar. Hins vegar er þáð
staðreynd að kaup og rekstur á
nýjum flugvélakosti. t.d.
breiðþotum. er svo gífurlegt
fvrirtæki að ekki verður tekizt
á við slíka encjurný.jun nema
því aðeins að ’ árangurinn af
rekstri okkar á þessu ári og
áfram verði eftir atvikum
viðunandi."
-G.S.
Hún kann að meta
hvfldarstundina
Flugleiðir geta ekki lengur boðið
lægstu Atlantshafsfargjöldin og
samkeppnin harðnar daglega:
4. ARG. — FÖSTUDAGUR 10. MARZ 1978 — 52. TBL.
Karlar mun meiri hrakfalla
bálkar en kvenfólk . .
Spilverksmaður hlaut
listamannalaun
Vaigeir Guðjónsson kom fram
á Stjörnumessu Dagblaðsins og
Vikunnar. Þar veitti hann
ásamt félögum sínum viðtöku
verðiaunum fyrir piötu ársins,
lag ársins og að vera í hljóm-
sveit ársins. DB-mynd: Ragnar
Th.
Hún fékk sér sætan blund þessi
litla stúlka i Aðalstrætinu í gær.
Hvort sem var gat hún engin
áhrif haft á ákvarðanir varðandi
miðbæinn en það er þó hún og
hennar jafnaldrar sem um hann
eiga að ganga í næstu framtíð.
Blundurinn sem litla stúlkan tók
í Aðalstrætinu minnir okkur hina
eldri á að við erum ekki aðeins að
skipuleggja fyrir okkur.
Akvarðanir okkar móta næstu
kvnslóð ekki síður. Okkur er
vandi á höndum. DB-m.vnd.
Valgeir Guðjónsson, meðlim-
ur Spilverks þjóðanna, er sá
popptónlistarmaður sem hlýtur
listamannalaunin í ár. Magnús
Þór Jónsson — Megas — varð
þess heiðurs aðnjótandi i fyrra
og Gunnar Þórðarson árið þar
áður.
Valgeir hafnaði í svonefnd-
um neðri flokki listamanna-
launanna. Fjórtán aðrir fá þar
laun í fyrsta skipti og vekur
nafn Auðar Bjarnadóttur list-
dansara þar einna mesta at-
hygli.
Alls hlutu 144 listamanna-
laun að þessu sinni. Tólf eru í
heiðurslaunaflokki, 68 í efri
flokki og 64 í neðri flokknum.
Lesendur Dagblaðsins völdu
Spilverk þjóðanna, hljómsveit
Valgeirs Guðjónssonar, vinsæl-
ustu hljómsveit síðasta árs.
Auk þess sendi sveitin frá sér
vinsælustu plötuna og vinsæl-
asta lagið. Bæði Gunnar Þórðar-
son og Megas komu einnig við
sögu í vinsældavalinu. Skoðan-
ir almennings og úthlutunar-
nefndar listamannalauna
virðast því fara meira saman en
margan grunar í fljótu bragði.
- AT -