Dagblaðið - 10.03.1978, Síða 2
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 10. MARZ 1978.
Það eru engin tengsl milli
ráðningar rekstrarstjóra
og bæjarmála á Reyðarfirði
Það fór eins og til var ætlast
að framsóknarmenn hafa
fengið öran hjartslátt eftir
skrifin og umtalið um stöðu-
veitingu rekstrarstjóra VR. Ég
tek ekkert til baka af því sem
ég hef þar um skrifað og mætti
bæta þar miklu við. Strax vil ég
taka það skýrt fram að persónu-
lega er ég ekki að ráðast að
Einari Baldurssyni. Ég tel hann
vera að gera það sem af honum
er ætlast, þ.e. vegna for-
mennsku sinnar í Framsóknar-
félaginu. Það er að koma fram
algjörlega nýtt í máli þessu að
„Forleikurinn að vegagerðar-
deilunni" sé gamall klofningur
í Framsóknarfélaginu. Þessa
forskrift fyrir grein formanns-
sins skilur ekki nokkur maður
hér. Það eru engin tengsl þar á
milli.
Staðreyndin fyrir þessari
stöðuveitingu er stórpólitísk
sjónarmið þar sem öllum stað-
reyndum er varpað fyrir borð.
Það er eftirtekíarvert i þessu
sambandi að rafvirkinn er skip-
aður í þessastöðu en ekkisettur
sem hefði einhverntíma verið
gert. Það sýnir aðeins þá neðan-
Raddir
lesenda
Hringið
ísíma
27022
millikl.
13ogl5
jarðarstarfsemi sem þarna
hefur farið fram. Ráðherra og
þingmenn hafa vitað að þá yrðu
möguleikarnir ekki fyrir fram-
sókn í þessu starfi síðar.
Við sem þekkjum til þessara
mála hér vitum að aðeins óvið-
eigandi atkvæðasmölun réð
ferðinni og það að þingmenn
framsóknar hér réðu veiting-
unni en ekki ráðherra. Ráð-
herra vissi með hverjum yfir-
menn VR mæltu og ætla má að
hann fái að minnsta kosti
spurnir af bréfum sem til hans
berast, en mótmæli ráðandi
manna innan VR voru honum
send svo og starfsmanna VR
hér á Reyðarfirði. Ekki getur
það verið daglegt að fjöldi hátt-
settra manna innan VR sendi
ráðherra mótmæli eins og gert
var Það eru allir sammála því,
vænti ég, að hæfustu menn séu
ráðnir hverju sinni en ráðherra
brýtur þá sjálfsögðu reglu mél-
inu smærra.
Framsókn titrar hér af ótta
við að missa þriðja mann á
þingi og telja þingmenn raf-
virkjann geta þar einhverju
bjargað. Það mun vera skýring-
in á þessari forkastanlegu
stöðuveitingu.
Það væri ekki úr vegi að
reyna að líta á grein formanns
Framsóknarfélagsins. .Þar er
slegið á allt aðra strengi, eins
æg áður segir, en á að vera svar
við grein minni frá 9. feb. og
segir mig „vaða elg eins og hans
er vani og eys úr skálum reiði
sinnar yfir þingmenn Fram-
sóknarflokksins.“ Það vill svo
til að ég tala ekki fyrir fámenn-
an hóp, þá hefði ég aldrei
skrifað neitt.
„En svo kom bomban" en það
ætlaðist ég til, að eftir grein-
inni yrði tekið á þann hátt að
þessi óviðeigandi ráðning
gleymdist ekki, og ráðamenn,
sem misnota það vald sem þeir,
hafa hlotið hjá kjósendum, fái
helst þá ráðningu sem þeir
þurfa, þ.e. í þessu tilviki að
þriðji þingmaður framsóknar
falli.
Ég held að ekkert af því sem
um þetta hefur verið skrifað sé
slúður eða kjaftasögur en aðal-
vandamálið sem ég er að glíma
við þegar ég rita þetta er
hversu stutt greinin þarf að
vera. Kannski væri rétt að
hefja útgáfu blaðs hér til vors
og reyfa málin. Það er alltaf
erfiðara þegar allt öðru er
blandað inn í mál sem verið er
að tala eða skrifa um en hjá því
verður ekki komist úr þessu. Ég
vil taka það fram að sálar-
ástand mitt er takk fyrir ágætt
sem stendur en um planið veit
ég ekkert nema stöðuveitingu
rekstrarstjóra VR á Reyðarfirði
sem er á mjög lágu plani, eða
alla vega þeir sem að henni
standa.
Við sem hér búum vitum það
að Reyðarfjörður hefur ekki
áður átt því láni að fagna, fyrr
en síðari ár, að framfarir séu
með eðlilegum hætti. Aður var
hér meiri stöðnun en eðlilegt
er, það vita allir, en er ekki því
miður tækifæri til að fara út I
nánar. Það að sveitarstjórnir
geti ráðið því hversu pillan sé
mikið notuð hef ég ekki heyrt
getið um fyrr en væri kannski
athugandi, að einhver stjórnun
yrði þar á. Sjálfur legg ég til að
hver ráði fyrir sig.
Þessi ákveðni hópur, sem for-
maður segir ekki haf a unað hlut-
skipti sínu, það eru menn sem
hvað mestan þátt eiga I fram-
förum hér. Það vita allir og
viðurkenna. Þeir fram^óknar-
menn sem formaður ber fyrir
brjósti geta tæplega fengið rós í
hnappagatið fyrir athafnir
þegar þeir áður höfðu aðstöðu
og völd til að byggja hér upp.
önnur sjónarmið voru þar sett
á oddinn.
Síðasti hluti greinar for-
manns er með endemum. Er
það virkilega hugmyndin að
reyna að telja okkur trú um að
umdæmisverkfræðingur hafi
brotið þá reglu að mæla með
hæfasta umsækjanda til starfs
rekstrarstjóra. Atti hann að
mæla með rafvirkja frekar en
reyndum starfsmanni VR. Ráð-
herra hefur kannski reynt að fá
hann til að breyta afstöðu sinni.
Umdæmisverkfræðingur braut
enga reglu og á heiður skilið
fyrir að halda fram því sem rétt
er og hægt er að standa á. Þing-
menn hafa sennilega átt erfitt
með að sætta sig við það að
hann, sem hafði verið fram-
sóknarmaður, skyldi ekki taka
pólitíska ákvörðun og mæla
með framsóknarmanni.
Það svar ráðherra í Morgun-
blaðinu að rafvirkinn hefði
stjórnað verki er útúrsnún-
ingur. Hann hafði verið vakt-
formaður hjá SR meðan lá
bræðslu hefur staðið nokkrar
vikur á ári og kemur örugglega
lítið að gagni í starfi rekstrar-
stjóra VR. Að hann hafi unnið
hjá VR er einnig haldlitið
vegna þess að það hafa margir
unnið I vegagerð án þess að það
sé verulegt framlag sem
reynsla þegar sótt er um þetta
ábyrgðarmikið starf hjá VR og
sennilega hefur hann verið
unglingur þegar það var unnið.
Sem undirverktaki hefur raf-
virkinn aldrei unnið, en við iðn
slna hefur hann af og til unnið
hjá VR og er það furðulegt að
halda því fram að hann hafi þar
með öðlast reynslu sem starfs-
maður VR. Það er staðreynd að
í öllum þessum skrifum finnast
hvergi rök fyrir þvf að embætt-
isveiting þessi sé réttlætanleg.
Einnig tel ég það vafasamt að
ráðherra hafi heimild í lögum
til að gera svona því í 7. grein
vegalaga segir: „Ráðherra sá,
er fer með samgöngumál hefur
yfirstjórn allra vegamála. Til
þess að stjórna framkvæmdum
í þessum málum skipar forseti
Islands vegamálastjóra, er
veitir Vegagerð ríkisins for-
stöðu, en ráðherra skipar
honum verkfræðinga og aðra
starfsmenn eftir þörfum, að
fengnum tillögum hans.“
Setja verður fram þá kröfu
að athugað verði hvort ekki
verði að endurskoða ráðningu
þessa.
Reyðarfirði 7. marz 1978
Gunnar Hjaltason
kaupmaður
Stef nuljósanotkun er komin í algjört lágmark
— skrifar langþreyttur bílstjóri
Bílstjóri skrifar:
„Stefnuljósanotkun öku-
manna í höfuðborginni er nú
komin í algjört lágmark. Fólk
er almennt latt við að inna af
hendi alls konar smáviðvik og
það að gefa stefnuljós virðist
flokkast til slíks. Sér i lagi
virðast atvinnubílstjórar og
ökumenn stórra og dýrra
ökutækja tregir til að gefa
öðrum til kynna hvert þeir
hyggist beygja.
Svipað virtist vera komið upp
á teninginn áður en allar
umferðarsektir voru stór-
hækkaðar síðast. Það væri at-
hugandi fyrir Iöggjafann, hvort
ekki væri tími til kominn að
hækka sektir fyrir að nota ekki
stefnuljósin. Þá er viðbúið að
einhverjir fengju vitamín-
sprautu í fingurna, næstu
mánuði að minnsta kosti.
Fyrst ég er nú á annað borð á
skrifa þá langar mig einnig að
minnast á aumingja bílstjórana
sem geta alls ekki fengið það
inn í hausinn að þeir eiga
almennt að aka á hægri vegar-
helmingi. Vinstri hlutinn er
ætlaður til framúraksturs. Svo
er nú komið að ekki duga orð til
að koma þessum silakeppum á
Svona raðir geta myndazt í umferðinni vegna skussanna, sem ekki
taka tillit til neins.
réttan kant í umferðinni. Gæti
lögreglan ekki farið að beita
áminningum og/eða sektum til
að koma minni þeirra I lag?“
Raddir
lesenda
Þegarallterað
faraíkaldakol:
Hver
borgar
þessa
prófkjörs-
vitleysu?
0454 0423 hringdi:
„Þar eð ég bý skammt frá
Valhöll eða Albertshöll eða
hvað þeir nú kalla sjálfstæðis-
höllina sina komst ég ekki hjá
því að verða vitni að þeim hild-
arleik, sem þeir kalla frjálsar
kosningar, núna um helgina.
Mér er spurn: Hver borgar
þessa vitleysu alla? Hver borg-
ar allar þessar hringingar,
bæklingaútgáfu og bíla, sem
flokkarnir eru farnir að senda
fólki til höfuðs í þessum.
kosningaáróðri sínum?
Það er djöflast í fólki daga og
nætur með hringingum og
áróðursbæklingum og verið að
nauða I fólki að taka þátt í
þessari vitleysu sem þeir kenna
við lýðræðislegar kosningar og
allt er þetta gert á meðan ekki
er hægt að borga fólki sem
; vinnur hörðum höndum mann-
sæmandi kaup. Það dynja á
landslýð allar hugsanlegar
verðhækkanir, verið er að loka
frystihúsum og svo hefur þessi
lýður, stjórnmálaflokkarnir,
ekkert þarfara að gera en að
standa í þessari vitleysu meðan
allt er að fara í kaldakol.
Ég vil leggja á það áherzlu að
þeir leggi fyrir sig eitthvað
annað þarfara!
„Göldrótt” amma
Umbi skrifar:
Strákurinn minn var með
vörtur á fingrunum og olli það
honum miklu angri og
leiðindum. Mánuðum saman
bárum við á hann vörtueitur
einu sinni og tvisvar á dag.
Ekkert dugði.
Einn daginn sagði amma
hans við hann: Ég skal gefa þér
dálítið ullarband væni minn.
Þú skalt binda á það jafnmarga
hnúta og vörturnar eru, setja
bandið undir stein og þá hverfa
í vörturnar þegar bandið er orðið
að engu.
Þetta gerði stráksi — og það
var ekki liðin vika þegar
vörturnar voru horfnar. Nú
vottar ekki fyrir þeim — en í
augum stráksins er amma
næstum því göldrótt!