Dagblaðið - 18.04.1978, Síða 3
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 18. APRlL 1978.
Mosfellssveit
Mosfellingur skrifaði:
Nú get ég ekki setið auðum höndum
lengur og verð að skrifa um það fyrir-
bæri sem heitir hundahald í Mosfells-
sveit. Eins og margir vita og allir verða
varir við, sem eiga heima í þéttbýlis-
kjarnanum í Mosfellssveit, er hunda-
hald leyfilegt þar.
Er það bundið ýmsum skilyrðum,
svo sem að ekki mega þeir ganga lausir
og á að hafa eftirlit með þeim. Einnig
verða eigendur að greiða ákveðna
upphæð fyrir hundaleyfi árlega. Allt
er þetta gott og blessað, nema hvað
hundaeigendur og viðkomandi yfir-
völd virðast ekki hafa nokkurn áhuga
á að framfylgja settum reglum.
í fyrsta lagi er ekkert eftirlit með þvi
hvort hundur er skráður eður ei og
allir eða flestir virðast þeir ganga
lausir.
Er nú svo komið að fólk sem hefur
ímugust á hundum og börn óvön þeim
eða hrædd við þá eiga erfitt með að
komast á milli húsa án þess að mæta
tveimur, þremur hundum. Ef menn-
voga sér út í betri fötunum þarf oft að
senda þau í hreinsun eftir
gönguferðina því varla bregst að
maður mæti nokkrum stykkjum
sem flaðra upp um mann, sem hunda
er gjarnan vani.
Þá er ekki laust við að það fari um
mann þegar maður mætir ókunnugum
hundi á stærð við meðalkálf, sem sýnir
svo tennurnar og urrar ef maður
vogar sér að mótmæla vinahótum
þeirra. Svo ekur lögreglan (sem kemur
alla leið úr Hafnarfirði til eftirlits-
ferða) um hverfin með geltandi hunda-
skara á eftir sér án þess að aðhafast
nokkuð.
Alvarlegast í þessu er að mörg
dæmi eru um að hundar biti eða glefsi
í börn og er nú mál að linni. Vil ég hér
með skora á viðkomandi yfirvöld að
fylgja nú eftir lögum um hundahald i
Mosfellssveit.
Eins og derið gefur til kynna er þessi hundur ekki i vanhirðu enda horfir hann rólegum yfirveguðum augunum tii
tíðarinnar.
fram-
Verkamaður í Dagsbrún kom:
Ég vil koma þeirri fyrirspurn á
framfæri við forstjóra Tryggingastofn-
unar ríkisins hvort rétt er að þegar
tveir alþingismenn og reyndar fleiri
háttsettir embættismenn fóru á
Freeport sjúkahúsið í New York hafi
þeir þegið farareyri hjá almanna-
tryggingum svo sem aðrir sem á þetta
sjúkrahús fara. Vil ég fá að vita hversu
mikið alþingismennirnir fengu til
ferðarinnar.
Mín skoðun er afdráttarlaust sú, að
slikir hátekjumenn, sem þar að auki
njóta lengri jóla-, páska- og sumarleyfa
en nokkur annar í landinu og það á
fullum launum, þurfi ekki á slíkum al-
mannabótum að halda.
Öðru gegnir um menn sem þurfa að
taka sér ólaunuð leyfi frá störfum til
fararinnar. Þaðan af síður finnst mér
þessir hátekjumenn geti leyft sér
þetta með tilliti til að um leið eru þeir
með lagasetningu og öðrum aðgerðum
að rýra enn hlut þeirra lægstlaunuðu.
Þetta er of langt gengið. Vil ég taka
fram að ég hef síður en svo á móti að
háir scm lágir leiti sér lækninga þarna
ytra, ef þeir geta ekki ráðið við
drykkjusýki sína sjálfir eða fengið
lækningu hér heima.
Að lokum vil ég taka fram að það er
mín skoðun og margra annarra að
Tryggingastofnunin sé fyrst og fremst
hugsuð til að hjálpa þeim sem minna
mega sín í þjóðfélaginu og þvt vil ég
líta á framferði þingmannanna sem
misnotkun. Það má sjálfsagt segja að
þeir hafi einhvern lagalegan rétt til
þessa en ekki siðferðilegan.
Raddir
lesenda
Hundareglur
hundsaðarí
Mis-
notk
Mannfjöldinn stcndur í löngum biðröðum í nepjunni og bíður eftir að fá að
berja stálgráa vígvélina frekar augum. DB-mynd: Sv. Þorm.
Er þetta kannski
virðingarvottur?
Friðarsinni hringdi:
Það vakti furðu mina og reyndar
margra fleiri, þegar hingað kom
bandarískt skriðdrekaflutningaskip á
dögunum og almenningi var boðið
upp á að skoða það á ákveðnum tima.
Ekki datt mér í hug að nokkur hefði
áhuga á að skoða þessa stálgráu vígvél
og hló að þessari tilkynningu. — En
hvað kom á daginn? Er mér varð ekið
niður á höfn í góðviðrisbíltúr með
börnin sá ég mikið tilstand á einni
bryggjunni og vakti það forvitni mína.
Kom á daginn að þar var mikil
mannþröng sem beið í biðröð af þeirri
stærðinni sem ekki hefur sézt siðan á
kreppuárunum.
Mér er spurn, er þetta einhver
virðingarvottur við herveldin, því
sama sagan endurtók sig þegar danskt
herskip kom hér nokkru siðar? Alla
vega skoðar fólk þessa gripi ekki til að
gleðja fegurðarskyn sitt.
Kaupmaðurinní
verzlunarmiðstöðinni
um ruslið á bakvið:
Erffitt
samstarf við sorp-
hreinsunarmenn
Sigurður Söebech kaupmaður í
verzlunarmiðstöðinni Miðbæ við Háa-
leitisbraut hringdi:
Vegna lesendabréfs í DB sl.
föstudag um sóðaskap við sorptunnur
á bakvið verzlunarhúsið, vil ég taka
fram að myndin lýgur þar iengu um
(myndin, sem birtist með bréfinu) og
. þetta er vandamál hjá okkur.
Málið er þannig að við höfum átt í
erfiðleikum með að fá sorphreinsunar-
mennina til að hreinsa tunnurnar
eðlilega og reglulega. Eitt sinn reynd-
um við að fara í hart með þetta en þá
lögðu þeir fæð á okkur og hreinsuðu
ekki í nokkrar vikur svo við urðum að
sjá um það sjálfir með ærnum
tilkostnaði.
Síðan segjast þeir ekki losa tunnur
ef eitthvað stendur upp úr þeim.sem
aldrei er nema pappír eða pappi.
Þannig fáum við stundum ekki nema
hálfa hreinsun og auk þess stopula.
Við höfum reynt að leita til borgar-
yfirvalda vegna þessa og er mér skylt
að taka fram að Sveinbjörn Hann:
esson, sem þó er ekki yfirmaður þess-
arar deildar, hefur komið umbótum
til leiðar en aftur sækir í sama horfið.
Stundum hafa sorphreinsunar-
mennirnir látið orð að því liggja að við
ættum sjálfir að eignast sorphreins-
unarbíl.
BakUi venbnnftstavarianr
SÓDASKAPUR!
J
3
Hver heldur þú
að verði útkoman
í alþingis-
kosningunum?
Gísli Sigurtryggvason bílstjóri: Það er
ekki gott að segja. Framsóknar- og sjálf-
stæðismenn tapa einhverju, þá græða
hinir sem þvi nemur.
Karl Sveinsson bilstjóri: Stjórninni er
óhætt að tapa talsverðu því þeir eiga
ekki annaðskilið.
Stefán Pálsson lögmaður: Ég held að
það verði lítil breyting á eins og venju-
lega.
Ólafur Kristjánsson, vinnur á Teikni-
stofu landbúnaðarins: Ég vil ekki tjá mig
um það en vonandi heldur stjómin ekki
velli.
Benedikt Steingrimsson, vinnur hjá
Orkustofnun: Ég reikna með að stjórnar-
flokkarnir haldi velli.
Alda Björnsdóttir verzlunarmaður:
Stjórnin heldurörugglega ekki velli.
Vi