Dagblaðið - 18.04.1978, Page 17

Dagblaðið - 18.04.1978, Page 17
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 1978. 17 Heimsf rægur brúðuleikhúsmaður í Reyk ja vík: SÝNINGAR BANNADAR YNGRIEN15 ÁRA! —sýningarnarof viðkvæmar fyrirutan- aðkomandi truflunum Einn þekktasti brúðuleikhúsmaður heimsins í dag er væntanlegur til Reykjavíkur um næstu helgi. Hann heitir Albrecht Roser og er 56 ára gam- all. Að stríði loknu tók Roser, sem er Þjóðverji, að fást við ýmsar listgreinar, meðal annars að skera út leikbrúður. Varð hann þá svo hugfanginn af leik- brúðunum að eftir það var leikbrúðu- gerð hans aðalgrein. Með trúðnum Gústaf hélt Roser út á eigin brautir og hefur siðan áunnið sér miklar vinsældir og frægð. Fyrir Roser er leikbrúðan tæknilega háþróað, listrænt og ofurviðkvæmt tæki. Atriðin verða til hægt og hægt, I andstöðu við flýti og hraðá nútímans. Samanstendur sýningin af skopstælingu og látbragðsleik og er ekki háð neinu sér- stöku tungumáli. Leikbrúður hafa allajafna verið skemmtun smáfólksins. Nú bregður svo við að einvörðungu fullorðnir eru vel- komnir á sýningarnar. Börn innan 15 ára fá ekki aðgang. Ástteðan er sú að sýningin er talin svo viðkvæm fyrir trufl- unum. Hingað kemur Albrecht Roser á vegum Goethestofnunarinnar, þýzka bókasafnsins og Leikbrúðulands. Aðeins ein sýning verður haldin. Hún verður í hátíðasal Hagaskóla og hefst kl. 20 sunnudaginn 23. april nk. - JBP Amma gamla —i-ein leikbrúðan hans Rosers. Bretar kanna landið fyrir sjónvarpsþætti ÚT í ÓVISSUNA Á SKJÁINN Þrír Bretar voru hér á landi i vik- unni sem leið til þess að kanna að- stæður fyrir myndatöku á sjónvarps- þáttum eftir sögunni Út i óvissuna eftir Desmond Bagley. Þeir k.oma svo aftur í sumar með allt sitt hafurtask og verða hér í einar fimm til sex vikur við myndatöku. Enn einn leiðangur verður svo gerður út með haustinu. Eins og þeir vita sem lesið hafa Út í óvissuna gerist sagan bæði á íslandi og í Skotlandi. Sá hlutinn sem er látinn gerast á íslandi verður tekinn bæði í Reykjavík og norður i Þingeyjarsýslu, nánar til tekið við Mývatn og i Ás- byrgi. Bretarnir voru þar fyrir norðan í vikunni sem leið að lita á staðhætti og að sögn Sveins Sæmundssonar blaða- fulltrúa Flugleiða leizt þeim vel á allt saman. Upphaflega var áætlað að taka kvikmynd eftir sögunni og átti þá Desmond Bagley sjálfur að vera með í för. En hann veiktist svo ekki varð af neinu. Nú er hann að vísu kominn til heilsu og býr í Sviss en af einhverjum ástæðum var hætt við kvikmyndina. í staðinn verða gerðir þrír sjónvarps- þættir. Það er BBC sem fyrir þeim stendur og voru Bretarnir þrír á vegum þeirrarstofnunar. - DS Örugg og nýtískuleg kven- og karlmannsúr á mjög hagstæðu verði. Kynnið yður Ótrúlegt en satt! í sparaksturskeppni BÍKR fór Chevrolet Nova, 8 cyl. 305 cu.in. sjálfskiptur, 39,56 km á 5 ltr. af bensíni, sem jafngildir 12,64 ltr. eyðslu á 100 km. og varð nr. 2 í sínum flokki. Þetta dæmi sannar fullkomlega að tæknimönnum G.M. hefur tekist að gera þennan stóra bíl ótrúlega sparneytinn. Nú er ’78 árgerðin komin og er enn á sama hagstæða verðinu. Oft var þörf en nú er nauðsyn að tryggja sér bíl strax fyrir næstu hækkun. Chevrolet Nova-mest seldi ameríski bíllinn á íslandi. Véladeild Sambandsins Ármúla 3 Reykjavík Sími 38900 CHEVROLET NOVA

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.