Dagblaðið - 21.08.1978, Qupperneq 2
DAGBLADIÐ. MÁNUDAGUR 21. ÁGÚST 1978.
Hvað viltu
Hvað er C-vítamín?
Guðjon H. Patsson
DB bað Magnús Jóhannsson lækni
að svara neðangreindu bréfi.
Guðrún Björk spyn
Við erum hér þrjár vinkonur sem
langar að vita hvaða efni eða efnasam-
bönd eru í vitamíni sem nefnist C-víta-
mín. Við höfum deilt nokkuð um þetta
og segjum sína söguna!hverog enn er
engin niðurstaða fengin. Okkur
langar að spyrja þig, ekki af því að við
getum ekki leitað til læknis eða í næsta
apótek, vegna þess að það eru trúlega
margir sem eru ekki vissir í því, hvað
þeir eru að taka inn en vita að það er
hollt og gott.
C-vítamin er eitt ákveðið efnasam-
band, sem einnig er nefnt i
askorbínsýra. Við skort á C-vítamíni
sést sjúkdómsástand sem nefnist
skyrbjúgur og var mjög algengur á
tslandi fyrr á öldum. Fyrstu einkenni
skyrbjúgs eru venjulega eymsli og
blæðingar frá tannholdi. Minnsta
magn af C-vítamíni í fæðunni, sem
þarf til að fyrirbyggja skyrbjúg, eru 10
mg á dag og mælt er með inntöku sem
nemi 60 mg á dag. Vitneskja okkar um
hlutverk C-vitamins i likamanum er
mjög ófullkomin, þó eru þekktir
einstakir þættir eins og t.d. að C-víta-
min er nauðsynlegt fyrir myndun
bandvefs (t.d. gróa sár illa við C-víta-
mínskort). Á undanförnum árum hafa
staðið miklar deilur um hugsanlega
möguleika á því að yfirbyggja ýmsa
sjúkdóma með stórum skömmtum af
C-vítamini daglega. Hér er um að
ræða dagskammta sem eru 500—1000
mg og þar yfir og er ekki hægt að
útiloka að slikir skammtar geti verið
skaðlegir. Sjúkdómamir sem C-víta-
mín í þessum skömmtum gæti hugsan-
lega fyrirbyggt eru kvef, vissar
tegundir krabbameins, æðakölkun o.
fl. Allt er þetta ennþá mjög óljóst, en í
gangi eru rannsóknir sem væntanlega
munu leiða hið sanna í liós.
Þær fæðutegundir sem innihalda
mest C-vítamín eru grænmeti og
ávextir og þá sérstaklega allt kálmeti,
appelsínur, sitrónur og paprika. Suða
og steiking eyðileggur mestan hluta C-
vitamínsins i allri fæðu.
Hvaða hús erþetta?
Forvitin augu okkar mannanna
spyrja margs; þvi ætlar DB að reyna
eftir beztu getu að svala þeirri forvitni
er við förum fram hjá einhverri ný-
byggingu og hugsum, hvað sé verið að
byggja hér? Húsið sem við kynnum
nú er eystra húsið á lóð númer 51 við
Laugaveg.
Okkar gamli rómaði unglingaástar-
vegur, Laugavegur er að verða út
sprunginn af stærðarinnar nýbygg-
ingum, gömlu húsin eru að hverfa. Ein
þessara nýbygginga er númer 51. Á
þeirri lóð sem áður var númer 51 og 53
standa saman tvö hús, annað full
klárað en hitt rétt óklárað svo ekki
verður langt að bíða að starfsfólk,
viðskiptavinir og ibúar geti farið að
spássera þar inni. Húsið byggði og
byggir maður nokkur, Kristinn heild-
sali Bergþórsson að nafni. Það þarf
marga sérfræðispekúlanta til að reisa
svona hús og eru það Hallgrimur
Benediktsson húsasmíðameistari,
Einar St. Einarsson múrarameistari,
pipulagningameistarinn Karl J. Karls-
son og þeirra aðstoðarmenn sem unnu
verkið eftir verkfræðiteikningum
Tækniþjónustunnar Ármúla 1. Og
ekki má gleyma útlitinu, (falleg hús á
réttum stað geta verið skemmtileg) og
það eru þeir Stefán Benediktsson og
Pálmar Ólason sem hönnuðu „líkams-
byggingu” hússins.
Þetta er sá hluti hússins sem við
kynnum i dag, 2294 m\ fjórar hæöir
og kjallari, samþykkt i
Byggingarnefnd 13. april 1978.
OGr 6 *}£> fJOAC/OsO Gf AOCs'
/v/e.
ZTJÓfS' • •
iíSwN-'
Óttast stjórn Alþýðubandalags
P.L. hringdi: Jón Jónsson dreginn fyrir rétt og á
Mig langar að koma á framfæri sakavottorði hans stæði „Kaus
grun mínum um það hvernig ástandið Alþýðuflokkinn í bæjarstjórnar-
á Islandi yrði eftir 10 ár ef Alþýðu- kosningunum 1978”,
bandalagið kæmist i stjórn. Þá yrði
málninglf
„Nýtt Kópal gæti ekki veriö
dásamlegri málning.
Ég fór með gamla skerminn, sem
við fengum í brúðkaupsgjöf, niður
í málningarverzlun og þeir
hjáipuðu mér að velja
nákvæmlega sama lit eftir nýja
Kópal tónalitakerfinu."
„Það er iíka allt annaö að sjá
stofuna núna. Það segir málarinn
minn líka.
Ég er sannfærö um það, að Nýtt
Kópal er dásamleg málning.
Sjáðu bara litinnl"
Þetta er aðeins hluti af úrvalinu.
Haldgóðar
skólatöskur
Góð skólataska er hverjum nemanda nauðsyn.
Við höfum meira úrval af töskum en nokkru sinni fyrr. Stórar,
smáar, einlitar, marglitar, handtöskur, axlatöskur, baktöskur. Allt
töskur, sem halda út hvert skólaárið af öðru.
Komdu og veldu þér skólatösku tímanlega, eina sem hald er í.
HALLARMÚLA 2