Dagblaðið - 21.08.1978, Síða 3
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 21. ÁGÚST 1978.
3
Skipun sendinefndarinnar er hneyksli:
„Lystireisa fyrir útvalda”
Marinus skrifar:
Eins og fram hefur komið í Dag-
blaðinu á að senda heilt fótboltalið, 11
manns, á hafréttarráðstefnu SÞ, sem á
samkvæmt þvi sem útvarpið hefur
eftir forseta ráðstefnunnar að ræða
eingöngu um nýtingu hafsbotnsins
utan 200 milna lögsögu strand-
ríkjanna, það er um hinn „alþjóðlega”
hafsbotn, þótt Jón Arnalds
ráðuneytisstjóri láti skína í það i
viðtali við Dagblaðið, að ræða eigi
einnig um nýtingu þess hafsbotns, sem
strandríkin hafa þegar fengið yfirráð
yfir. Það er vitaskuld ekki rétt hjá
ráðuneytisstjóranum. Nýting þess
hafsbotns, sem strandríkin ráða yfir,
er ekki umræðuefni alþjóðaráðstefnu,
það er mál hvers og eins lands, en
nýting hins „alþjóðlega” hafsbotns
utan 200 mílnanna er umræðuefnið.
Af hverju gefur ráðuneytisstjórinn
villandi upplýsingar? Jafnframt þessu
máli á að ræða um mengun sjávar
upplýsir ráðuneytisstjórinn. Hann
segir Dagblaðinu að „við vitum ekki
hve rík setlögin eru hér við land eru”.
Kannski finnst hér síðar olia i hafs-
botni. í þessu sambandi vekur athygli,
að enginn í fótboltaliðinu hefur vit á
mengun sjávar né setlögum á hafs
botni, þ.e. þeim málum- sem eru til
umræðu. Þó eiga Islendingar sér-
fræðinga á þessu sviði, þeir fá bara
hvergi að koma nærri, þeir eiga að
sitja heima til þess að misvitrir stjórn-
málamenn og stjórar komist að. Vitað
er að Hjálmar Bárðarson hefur verið
forgöngumaður i mengunarvörnum
sem Alþjóða Siglingamálastofnunin
hefur staðið fyrir, og veit allt fótbolta-
Fleiri
bíómyndir
Bjðrk hringdi og sagði, að sjónvarpið
íslenzka væri mjög lélegt. Það vantaði
fleiri „bíómyndir” sérstaklega á föstu-
dögum og laugardögum. Alltof mikið
væri af fræðslumyndum. Hún sagði,
að kanasjónvarpið hefði verið langtum
betra og íslenzka sjónvarpið þyrfti að
taka sig mikið á. Hún vildi koma þeirri
áskorun til sjónvarpsins að sýna kvik-
mynd meðCliff Richard.
Cliff Richard
Ökukennsla
Kennslubijreiðin er
Toyota Cressida ’78
ógannaðekki
Geir P. Þormar
ökukcnnari
Sknar19S96og 21772 (símsvarð.
liðið til samans minna um mengun
sjávar en hann einn. Jón Ólafsson
magister, starfsmaður á Haf-
rannsóknastofnuninni er sérfræðingur
i efnafræði sjávar og fulltrúi Íslands i
mengunarnefnd Alþjóða hafrann-
sóknaráðsins. Dr. Kjartan Thors
jarðfræðingur á Hafrannsóknastofn-
Hjálmar Bárðarson. Bréfritari segir,
að allt fótboltaliðið til samans viti
minna um mengun sjávar en hann
einn. Samt þótti ekki ástæða til að
velja hann I liðið.
Óliklegt er að þetta knattspyrnulið komist I knattspyrnuferðalag eins og það sem-
sendinefndin á Hafréttarráðstefnuna hefur nú lagt upp i.
un er sérfræðingur I jarðfræði hafs-
botnsins, doktorsritgerð hans frá
Oxfordháskóla er um setlög hafs-
botnsins. Allir þessir sérfræðingar eiga
að sitja heima. Væri nú ekki ráð, að
yfirmenn Hafrannsóknastofnunar,
Jón Jónsson, sérfræðingur í þorski og
Már Elísson, sem er hagfræðingur,
sætu sjálfir heima, i stað þess að sitja á
hlut þeirra undirmanna sinna, sem
hafa vit á þeim málum, sem ræða á?
Hér virðist í öllu, að ekki sé hugsað
um hag landsins heldur lystireisu fyrir
útvalda menn, sem ekki hafa vit á þvi,
sem ræða skal. Nú vantar bara
mengunarsérfræðinginn Thor Vil-
hjálmsson í liðið sem þjálfara.
»
„Mengunarsérfræðingurinn” Thor
Vilhjálmsson verður illa fjarri góðu
gamni að þessu sinni, og telur bréf-
ritari hæpið að senda liðið þjálfara-
laust I slika keppni.
Mesta úrval landsins af reiðhjólum og þríhjólum,
fæst hjá okkur.
Góð varahluta- og viðgerðaþjónusta.
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
Spurning
dagsins
Var gaman á land-
búnaðarsýningunni?
Sörli, happdrættishestur; Jú, jú, það var
anzi gaman. Nema hvað ég var ekki
nógu ánægður með happdrættið,
vinningarnir voru frekar lélegir. Þá kann
ég betur við mig úti undir beru lofti,
a.m.k. yfir sumartímann.
Göltur, frá Blesastöðum: Þegi þú,
blaðasnápur, ég hef engan tima til þess
að tala við þig, sérðu ekki allar gylturnar
hérna, maður.
Velfíeyg, aligæs, Kaldbak, Hruna-
mannahreppi: Jú, það var bara gaman.
Það var þá helzt til leiðinda hve aðsókn
var dræm fyrstu dagana. En siðar rætt-
ist nú úr þessu. Ég vona bara innilega að
Búnaðarsambandið hafi ekki orðið fyrir
neinu fjárhagslegu tjóni vegna sýning-
arinnar.
Hafur Bftill, Skálholti: Nei, það var svo
sannarlega hrútleiðinlegt. Hvernig þætti
þér annars að vera hafður inni I girðingu
allan liðlangan daginn til sýnis einhverj-
um landbúnaðarspekúlöntum og
krakkaskril?
Huppa, kviga, Laugardælum: Ef þú ert
frá Dagblaðinu, maður minn, þá hef ég
bara ekkert við þig að segja, eins og þið
eruð búnir að ráðast á bændastéttina
með óhróðri og lygum. Að mínu áliti er
þessi snepill ykkar argasta sorpblað sem
ætti að banna. Þú getur skilað þvi til rit-
stjórans frá mér persónulega.
Bölvaldur, Kaldbak: Jamrri, þú segir
það, góði minn. Ég held ég vilji ekki tjá
mig frekar um þetta atriði á þessu stigi
málsins.