Dagblaðið - 21.08.1978, Blaðsíða 5
DAGBl.AÐIÐ. MANUDACiUR 21. ÁíiÚST 1978.
5
Rætt um verA-
bætur í krónutölu
fremur en pró-
sentum á „hærri
laun"
Launamismunur mundi þá
minnka hratt á fáum árum
í stjórnarmyndunarviðræðunum
síðustu daga hefur verið rætt um
möguleika á, að „hinir hærra
launuðu’’ fengju verðbætur, sem væru
í krónutölu hið sama og menn með
lægri laun. Við þetta mundi launa-
mismunur i prósentum minnka mikið
á nokkrum árum, ef verðbólga væ'ri
mikil, eins og eftirfarandi saman-
burðursýnir.
Hér á eftir eru sýnd áhrif verðbóta,
sem eru ákveðin krónutala á „hærri
laun”. Launþegi A hefur nú 120.000
krónur á mánuði en launþegi B
180.000 krónur. M iðað er við að A fái
fullar verðbætur en B fái sömu
krónutölu og A.
Reiknað er með 50% verðbólgu á
ári. Launamismunurinn mundi
minnka hægar. cf verðbólgan væri
minni. Þvi meiri sem verðbólgan er
þcim mun minna verður hlutfallið
milli launaflokkanna með þessu
verðbótakerfi.
Þá er til einföldunar gert ráð fyrir,
að launahækkanir verði ekki aðrar en
hækkanir vegna verðbóta.
Ágúst 1978.
A hefur 120.000 kr.
Bhefur 180.000 kr.
B hefur 50% hærri laun en A.
Verðbætur á næsta ári verða
samtals 60.000 kr„ sem eru 50% af
launum Avegna 50% verðbólgu.
1979
Eftir það hefur
A 180.000 kr.
B 240.000 kr.
B hefur 33% hærri laun. Munurinn
hefur minnkað svo mikið.
Verðbætur á næsta ári verða 90.000
kr„ 50% af launum A.
Eftir það:
1980
A 270.000 kr.
B 330.000 kr.
B hefur þá 22% hærri laun en A.
Verðbælur næsta ár verða 135.000
kr.
1981.
A hefur 405.000 kr.
B hefur 465.000 kr.
B hefur nú aðeins 15% hærri laun en
A.
Verðbætur næsta ár 202.500 kr.
1982
A hefur þá 607.500 kr.
B hefur þá 667.500 kr.
Bhefurnú 10% hærri launen A.
Verðbætur næsta ár 303.750 kr.
1983
A hefur eftir það 911.250 kr.
B hefureftir það 971.250. kr.
B hefur nú einungis 7% hærri laun en
A.
Þá er einnig eftirtektarvert, að með
50% verðbólgu á ári verða þessir laun-
þegar komnir með nærri milljón á
mánuði, þótt kaupið muni þá aðeins
samsvara þvi. sem 120.000-180.000
krónur á mánuði gefa í dag i
kaupmætti.
HH
ÓDÝRAR
HAUSTFERÐIR TIL
Vegna mikiHar eftirspurnar bjóðum við nú hagkvæmar
haustferðir ti/ MALLORCA. Dvaiið á hinum vinsæ/u gisti-
stöðum SUNNU, svo sem PORTONOVA, ROYAL
MAGALUF, ROYAL TORRENOVA, TRIANON, VILLAMAR
og HEL/OS íbúðum og hóteli. Allir gististaðir með einkasund-
laugum og góðri sólbaðsaðstöðu. Skrifstofa SUNNU með
íslenzku starfsfó/ki á MALLORCA.
Kynnið ykkur hið ótrú/ega hagstæða verð og kjör á haust-
ferðum.
Dagflug á sunnudögum: 10. sept 1,2 og 3 vikur
17. sept 1,2 og 3 vikur
24. sept 1,2og3 vikur
1. okt 1,2 eða 4 vikur
29. okt 4 vikur
26. nóv. 3 112 viku
MALLORKA
Athugið að októberhitinn á MALLORCA er 25—30 stig og
vetrarhrti algengastur 20—28 stig, appe/sinuuppskeran er í
janúar á MALLORCA. Pantið strax, því að ferðirnar fyl/ast
fljótt
NÚ ERU ÖLL SUNNUFLUG AÐ SELJAST UPP.
ATH. ENGIN ÞREYTANDI NÆTURFLUG í SUNNUFERÐ.
MALLORCA dagflug alla sunnudaga.
COSTA DEL SOL dagflug alla föstudaga.
COSTA BRAVA dagflug á sunnudögum.
KANARÍEYJAR dagflug á fimmtudögum
og laugardögum allan ársins hring.
GRIKKLAND
AÞENUSTRENDUR - RHODOS - SKEMMTISIGLING.
Dagflug á þriðjudögum beint
til Aþenu, án millilendinga
með stórri og rúmgóðri
Boeingþotu.
Laus sæti í eftirtöldum
flugferðum:
29. ágúst 1 eða 3 vikur.
5. sept. 2 eða 3 vikur.
19. sept. fullbókað eða biðlisti.
3. okt. 1 vika
Sunna hóf fyrsta íslenzka
farþegaflugið til Grikklands í fyrra.
Þá fóru mörg hundruð ánægðir
farþegar, margir þeirra fara aftur í ár.
Spyrjið þá sem reynt hafa
Grikklandsf erðir Sunnu og
sannfærist um það að Sunnuferðir
eru í sérflokki.
Nú fer hver að verða síðastur að
tryggja sér velheppnaða Grikklands-
ferð í ár — pantið strax — og njótið
þess heillandi ævintýris og fegurðar
sem Grikkland veitir.
Frjálst val um dvöl i glæsilegum ibúöum eða
hótelum i eftirsóttasta tizku- og baðstrandar-
bænum á Aþenuströndum, Glyfada, 3 bað-
strendur — óteljandi veitingahús og
skemmtistaðir, eða þér getið valið að dvelja i
baðstrandarbænum. Voullagmeni, kyrrlátu
bústaðarhverfi Grikkja. kjörið fyrir þá sem
vilja halda sér fyrir utan skemmtana og
veitingahúsalíf.
Athugið, allir gististaðir Sunnu, íbúðir og
hótel eru i fyrsta gæðaflokki og að sjálfsögðu
eins og öll hótel og ibúðir Sunnu í
sólarlöndum, með sundlaugum, görðum og
sólbaðsaðstöðu.
Í Grikklandsferðum Sunnu njótið þér
aðstoðar og leiðsagnar starfsfólks Sunnu á
Aþenuströndum og blómaeynni Rhodos, þér
getið skipt Grikklandsvölinni milli þessara
staða og tekið þátt i heillar viku ævintýra-
siglingu með 17000 smálesta skemmtiferða-
skipi.
Viðkomustaðir: Aþena — Rhodos — Krit —
Corfú — Dubrovnik í Júgóslaviu og Feneyjar
lítaKa).
Allar ibúðir á skipinu með þægindum og
einkabaði, næturklúbbar með skemmtiskrá á
hverju kvöldi — Casinó — stór sundlaug,
verzlanir með tollfrjálsum varning, kvik-
myndasalir, setustofur, rúmgóð sólbaðsþilför
fyrir750 farþega.
Draumasigling sem allir þrá.
Lúxusævintýri á viðráðanlegu
verði.
Listahátíð í Aþenu í ágúst ogseptember.
Skrifstofur Sunnu / Grikklandi annastum aðgöngumiða
Heimsfrægur listaviðburður.
Coventgarden ba/let ríkish/jómsveit Grikklands Þjóðleikhús Grikklands, forn og ný grísk /eiklist
heimsfrægir h/jóðfæraleikarar og söngvarar.
FERÐASKRIFSTOFAN SUNNA BANKASTRÆT110. SÍMI29322