Dagblaðið - 21.08.1978, Qupperneq 6
6
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 21. ÁGÚST 1978.
Skyndilegur eldur í gömlu timburhúsi:
Eldtungumar stóðu
út um glugga er að
mÆ |f jfitiA Miklarannirhjáslökkviliðinu
Val liOITIIO á laugardagskvöld
Teg. 80
Litur: Natur leður
Stærðir: Nr. 36—40
Stærflir: Nr. 41-46
Verð kr. 5.850.-
Verflkr. 5.950.-
Teg. 20
Litur Svart leflur
Stærðir: Nr. 35-40
Kr. 5.150.-
Nr. 41-46
Kr. 5.350.-
Litur Rautt leflur
Stærðir Nr. 35-41
Verfl afleins kr. 4.150.-
r r
FJALLAKONGULOIFIÆÐARM AUNU
Veldur óróa meðal starfsmanna Vélsmiðjunnar Héðins
Óróa varð vart meðal starfsmanna
Vélsmiðjunnar Héðins, vestast við
Vesturgötuna, í gærmorgun, er þeir
urðu varir við kvikindi nokkurt í porti
fyrirtækisins. Höfðu þeir þegar samband
'við DB vegna þessa. Þá er Dagblaðs-
menn komu á vettvang varð mönnum
ljóst að hér var um kónguló nokkra að
ræða, allstóra. Lék hún þar í vef sínum
innan um járnarusl og illgresi og veiddi
listilega í hann alls konar flugur af
ýmsum stærðum.
Einn Héðinsmanna veiddi nú
kvikindið i eldspýtustokk. Þótti það
hreystiverk mikið, enda ekki að vita
nema hér væri um erlenda eiturkónguló
að ræða. Var hún siðan flutt fangin í
hendur Erlings Ólafssonar, skordýra-
fræðings hjá Náttúrufræðistofnun
íslands. Var hann ekki lengi að kveða
upp dóm sinn, þ.e. að hér væri um
alíslenzka fjallakónguló að ræða.
Sú væri reyndar litið fyrir fjallgöngur,
en héldi einkum til í bakgörðum húsa
sem og i hraunum. En til þess bendir og
dvalarstaður hennar í porti Héðins,
skammt upp af flæðarmálinu.
JÁ. Kóngulóin sem skaut járniðnaðarmönnum Héðins skelk i bringu. DB-mynd Ari.
Teg. 03
Litun Svart leflur
eða blðtt leflur
Stærflir: Nr. 36-41
Verfl kr. 4.150.-
Litur Rautt leður
Stærflir: Nr. 36—41
Verfl aðeins kr. 3.350.-
Skóveizlun
Póstsendum
S 'mi 14181 Kirkjustræti 8 v/Austurvöii.
Eldur gaus upp í gömlu timburhúsi
við Vesturgötu nr. 46 A laust fyrir
klukkan átta á laugardagskvöldið. Er
slökkvilið kom að húsinu stóðu eld-
tungur út um glugga tveggja herbergja á
fyrstu hæð og húsið orðið fullt af reyk.
Reykkafarar voru sendir inn i húsið
jafnframt sem ráðizt var gegn eldinum
inn um gluggana. Allir í húsinu höfðu
komizt út og enginn hlotið meiðsli.
f húsinu bjuggu þrjár fjölskyldur, í
kjallara, á hæð og í risi. Eldurinn kom
upp á hæðinni og var mestur í stofu þar
og herbergi við hliðina. Útbreiðsla
eldsins varð gifurlega snögg og er enn
ekki Ijóst hver var orsök þessa skyndi-
Ný sending
lega elds né hinnar skyndilegu útbreiðslu
hans.
Á hæðinni þarsem eldurinn kom upp
bjó kona með þremur börnum sínum.
Sluppu íbúar allir út án meiðsla. Mikið
er brunnið í stofunni og herberginu og
mikið sviðið og brunnið víðar i íbúðinni.
Húsgögn eru að sjálfsögðu ónýt. Var
eldurinn kominn í loftið milli hæðar og
riss áður en tókst að slökkva.
Miklar skemmdir urðu á húsinu öllu,
reykskemmdir í risi og skemmdir af
vatni og reyk í kjallara.
Slökkvistarfið tók stuttan tíma og var
lokið kl. rúmlega hálfníu.
Meðan slökkviliðsmenn voru að
störfum á Vesturgötu kom kall frá
Sólheimum 40. Fór bill þangað og
slökkti i þvottavél sem stóð i logum.
Annað kall kom frá Seljavegi 3 A er
slökkvibilar voru að fara af brunastað á
Vesturgötu. Ástæða þess kalls var
mögnuð reykjarlykt, sem í Ijós kom að
barst vestur eftir frá Vesturgötunni.
Síðar um kvöldið eða kl. 21.16 fór
slökkviliðið að Söluturninum við
Laugarásveg 2. Kveikt hafði verið i rusli slökkviliðið kallað að Flúðaseli 18. Þar
við húshlið og var þil hússins tekið að hafði verið kveikt í rusli utanhúss.
sviðan. Kl. 1.04 í sunnudagsnótt var ASt.
Teg. 21
Litur Natur
Stærflir 36-40
Kr. 5.975.-
Stærflir 41—46
Kr. 6.100.-
Litur Rautt Litur Svart
Stærflir 36-41 Stærflir 41 -46
Kr. 4.350.- Kr. 4.950.-
SEX MILU0NIR AFHENTAR
ARKITEKTUM AÐ VARMÁ
14 tillögur bárust í skipulagssamkeppni Mosfellshrepps
Samtals sex milljónir króna voru
afhentar arkitektum og
aðstoðarmönnum þeirra i íþróttahúsi
Mosfellshrepps að Varmá, er úrslit
voru kunngerð í samkeppni hreppsins
um heildarskipulag fyrir næstu 20 ár.
Fjórtán tillögur bárust, átta fóru
verðlaunalausir frá samkeppninni.
1. verðlaun hlaut tillaga
arkitektanna Björns H. Jóhannes-
sonar, Hauks Viktorssonar og
Jóhannesar S. Kjarvals. Höfðu þeir
sem ráðgjafa verkfræðingana
Jóhannes Guðmundsson og Ólaf
Bjarnason og Narfa Hjörleifsson
tæknifræðing.
2. og 3. verðlaun voru sameinuð og
skipt i tvennt. Hlaut annan
helminginn 1250 þúsund tillaga
Einars E. Sæmundssonar, Stefáns
Arnar Stefánssonar og Stefáns Thors
en þeir eru allir arkitektar. Hinn
helminginn hlaut tillaga arkitektanna
Ormars Þórs Guðmundssonar og
örnólfs Hall en samverkamaður
þeirra var Þórir Helgason.
Þá voru keyptar þrjár aðrar tillögur.
Tillaga Magnúsar H. Ólafssonar
arkitekts var keypt á 500 þúsund.
Tillaga Gests Ólafssonar, Þórarins
Þórarinssonar og Bjarka Jóhanns-
sonar var keypt á 250 þúsund og fyrir
sömu upphæð tillaga Geirharðs
Þorsteinssonar arkitekts og fjögurra
annarra.
Um aðalverðlaunatillöguna sem
hæst bar segir dómnefnd að höfundi
hafi tekizt að ná megintilgangi sam-
keppninnar, þ.e. að fella byggðina vel
að landinu og finna raunhæfa lausn á
umferðarvandamálunum. Tillagan er
vel rökstudd og unnin og er að mati
dómnefndar góður grunnur frekari
skipulagsvinnu.
Tillögurnar eru nú til sýnis
almenningi í íþróttahúsinu að Varmá.
Opiðer kl. 3—7 virka daga og kl. 1—7
um helgar til 27. ágúst.
ASt.
BIAÐIÐ