Dagblaðið - 21.08.1978, Síða 7
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 21. ÁGLÍST 1978.
7
Hörmulegasta slys sumarsins:
ÞRJU UNGMENNI
LÉTU UFH> í
KROSSÁ í ÞÓRS-
MÖRK
tvö önnur björguðust á óútskýranlegan hátt
22 ára íslendingur. tæplega tvítug
sænsk stúlka og tæplega 24 ára gamall
Bandaríkjamaður í varnarliðinu hér
biðu bana í Krossá í Þórsmörk aðfara-
nótt laugardagsins. Annar Bandaríkja-
maður, 19 ára, og önnur sænsk stúlka á
25. aldursári björguðust naumlega úr
þessu hörmulegasta slysi sumarsins.
Komst stúlkan sem bjargaðist að skála
Ferðafélagsins í Langadal og náði i
hjálp. Er að var komið var Bandaríkja-
maður á hjólaútbúnaði bílsins, sem
staðnæmzt hafði á hvolfi úti i ánni. Var
honum bjargað i land á linu en hin þrjú
komust aldrei út úr bilnum.
Það var íslendingurinn sem ók bílnum
sem var af Bronco gerð árgerð 1966.
Höfðu fimmmenningarnir farið seint úr
bænum áleiðis í Mörkina og komu ekki
að Krossá fyrr en um tvöleytið. Þá er
þar svartamyrkur á þessum árstíma.
Mun ökumaður hafa lagt i ána án
þess að athuga um vað og farið beint af
augum eftir slóð er að ánni liggur. Áin
var meiri vöxtum nú en nokkru sinni
fyrr i sumar eftir rigningar dagana á
undan slysinu.
Lítið sem ekkert er vitað um atburða-
rásina. Stúlkan sem bjargaðist sat i
aftursæti og mun á einhvern hátt hafa
getað spyrnt upp afturhlera á bílnum og
komizt út. Á einhvern óskýranlegan
hátt bar hana yfir aðalstraumál Krossár
og komst á land Þórsmerkurmegin
árinnar. Þrátt fyrir taugaáfall komst hún
að skálanum og sá skálavörður til
hennar er hún kom að hlaði skálans og
var þá hlaupið til — en allt orðið um
seinan, .enda þá liklega liðnar 30—45
mínútur frá þvi bíllinn fór i ána.
Bandarikjamaðurinn sem bjargaðist
gerir sér enga grein fyrir hvemig hann
komst út úr bilnum, en hann hafði setið
við hurð farþegarýmismegin. Billinn
stöðvaðist talsvert fyrir neðan „vaðið”
og sneru hjól þá upp og hjólaútbúnaður
það eina sem upp úr stóð.
Lögreglan á Hvolsvelli telur að öku-
maður Broncobílsins hafi sem margir
fleiri gert sér litla grein fyrir hættunni
sem leynist við Krossá. Áin er ekki
mikið vatnsfall en þeim mun viðsjár-
verðari. Breytir hún sér frá helgi til
RútubíHinn sigldi eins
og skip á Krossá
Er stórskemmdur eftir fífldjarfa tilraun til að
koma honum tómum yfir ána
Fimmtiu manna rútubíll stórskemmd-
ist i Krossá í Þórsmörk aðfaranótt
sunnudagsins. Hugðist bilstjórinn sem
þá var staddur við skála FÍ í Langadal
aðstoða við björgunina eftir slysið
hörmulega sem varð i Krossá þá um
nóttina. Ætlaði hann að aka yfir ána og
bjóða aðstoð. Bíllinn, sem var tómur
og aðeins eindrifa, hafði litið í Krossá að
gera. Flaut bíllinn á ánni eins og stórt
skip og bar niður á við.
Bíilinn hálffylltist og flutu úr honum
sætasessur niður eftir ánni. Um síðir
tókst að draga bílinn til lands og mun
kranabill hafa sótt hann á laugardag. Er
bíllinn stórskemmdur eftir svaðilförina,
en slys urðu ekki á mönnum,
ASt.
Útifundur Lýðræðissinnaðrar æsku:
„Fyrir mannrétt-
indum og lýðræði,
gegn heimsvalda-
stefnu kommún-
ismans
11
Samtök, sem nefnast Lýðræðis-
sinnuð æska, efna til útifundar á
Lækjartorgi í dag til að minnast þess
að tíu ár eru liðin frá innrás Varsjár-
bandalagsríkja i Tékkóslóvakiu.
í fréttatilkynningu frá samtökunum
segir að alþýða Tékkóslóvakiu hafi
mótmælt innrásinni af djörfung en
orðið að lúta i lægra haldi fyrir ofur-
eflinu. Aðgerðir Varsjárbandalagsrikj-
anna hafi vakið mikinn óhug í löndum
hins frjálsa heims, ekki hvað sízt hér á
íslandi. Þess vegna og til að sýna hug
íslendinga til valdniðslu af þessu tagi
séefnt til fundarins.
Ræðumenn á útifundinum verða
Einar K. Guðfinnsson, Finnur Torfi
Stefánsson, Jón Magnússon og Jón
Sigurðsson. Tónlistarmennirnir Magn-
ús Kjartansson, Pálmi Gunnarsson,
Sigurður Karlsson o.fl. koma fram og
flytja sérstaka hugleiðingu á hljóðfæri
sin. Fundurinn hefst kl. 18.
„Þeir sem vilja leggja lið baráttunni
fyrir mannréttindum og lýðræði, gegn
heimsvaldastefnu kommúnismans eru
hvattir til að fjölmenna” segir að
lokum í fréttatilkynningu Lýðræðis-
sinnaðraræsku.
GM
helgar, jafnvel frá degi til dags. Hún vex
mjög fljótt ef rignir. 1 myrkri eru
hættumar að sjálfsögðu margfaldar á
það sem í björtu er.
Bandaríkjamennirnir tveir voru
sjóliðar úr vamarliðinu og höfðu áður
verið á ferð í Þórsmörk. Sænsku stúlk-
urnar voru hér á ferðalagi og höfðu
slegizt með i þessa för.
ASt.
7 b ali
ATLI STEINARSSON i v , J
Þannig lítur út á slysstað — I björtu. Jepparnir sem á myndinni sjást ofan árinnar
kdma bilveginn er að Krossá liggur. Þar þarf að athuga um „vað” á ánni því ekki er
alltaf fært beint af augum eins og slóöin liggur að ánni. Næst á myndinni sést skáli FÍ
í Langadal. DB-mynd Hilniar Þ. Sig.
Bleiki pardusinn
v/Bankastræti > :/: ;i ■ - _
- ujfflf'i
auglýsir
I)l
.. ■ m
l'í)
Utsölu
draumurinn
efur rætzt og sá
bleiki" er f í banastuði
Glœsilegir nýir kakhi kjólar frá
3.900.-
Fallegir flauels-samfestingar frá
3.900.-
stœrðir 128—176
Töff kakhi smekkbuxur
og flauelskjólar frá 3.900.-
stœrðir 128—176
Ennfremur:
Acryl skyrtur 990
Barnaflauelsbuxur Ungbarnasett 990
2190 Mittisjakkar 2890
Denim barnabuxur Gallabuxur 1500
2190 Myndabolir 700
Köfióttar skyrtur Aðrir bolir 1000
1290 PHs2000
Sá „bleiki" öskrar út
alla vikuna:
'fteð verðbólguna
u
Verið öll velkomin
'JK'jFö
Póstsendum — Sími 12900.