Dagblaðið - 21.08.1978, Blaðsíða 8
8
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 21. ÁGÚST 1978.
Erlendar
fréftir
i
REUTER
London:
Margrét
prinsessa
komin heim
— erfjörutíu ogátta
ára í dag
Margrét prinsessg, systir Breta-
drottningar, er komin aftur til
London eftir hálfsmánaðar sumar-
leyfi nærri borginni Napólí á
Ítalíu. Þar dvaldi hún ásamt auð-
ugum itölskum bankamanni,
Mario d’Urso. Prinsessan var hin
hressasta er hún sté frá borði á
Heathrow flugvelli við London. I
dag heldur prinsessan fertugasta
og áttunda afmælisdag sinn hátíð-
legan.
Chicago:
Jarðsett í
dýragraf-
reit við hlið
hunds síns
Lilian Kopp, sextiu og niu ára
bandarisk kona, er liklega fyrsta
mannveran sem jarðsett er I dýra-
grafreit. Nýlega var aska hennar
sett I einn slikan garð i Chicago að
hennar eigin ósk.
— Hún vildi fá að hvíla nærri
hundinum sínum, honum Rinty,
sem dó rúmlega fimmtán ára
gamall árið 1972 — sagði dóttir
hennar. Fjölskyldan á þrjá aðra
hunda sem eru frá fimm til tíu ára.
— Þeir munu allir verða
jarðsettir við hliðina á mömmu
og Trinity — sagði dóttirin enn
fremur. — Svo verður einnig með
mig sem er þrjátiu og eins árs,
föður minn, sjötíu og tveggja ára,
og bróður minn, fjörutíu og fimm
ára.
Danmörk:
LosAngeles:
Norömadurinn stakk
afmeð milljón dalina
—peningar byggingafyrirtækis lagðir inn á bankareikning hans
Lögreglan I Los Angeles í Kaliforníu
leitar nú ákaft að Norðmanninum
Arne Ristol.Honum virðist nefnilega
hafa tekizt það sem svo margir stefna
að þar vestra eins og víðar. Liklegast
er hann orðinn milljónamæringur.
Lögreglan og banki Norðmannsins eru
aftur á móti ekki ánægð með á hvern
Arne Rostol náði i milljónirnar.
Þau mistök voru gerð fyrir þrem
mánuðum að tæplega ein milljón
dollara var lögð inn á reikning Ristol
hjá The United California Bank. Með
réttu átti upphæð þessi að fara inn á
reikning byggingafyrirtækis.
Þegar mistökin voru uppgötvuð
kom i Ijós að öll upphæðin, að undan-
teknum ellefu hundruð dollurum,
hafði verið tekin út. Hafði Arne
Ristol gert það sjálfur og skipt
upphæðinni niður á nokkrar úttektir.
Er lögreglan mætti með hand-
tökuheimild á heimili Norðmannsins
var hann allur á bak og burt. Höfðu
hann og eiginkonan farið daginn áður
og skilið húsiö eftir i umsjá sonarins.
Norðmaðurinn varekki fundinn þegar
síðast fréttist.
? ~jL
Á myndinni sjást frá vinstri Manfred Rommel borgarstjóri i Stuttgart, Hans
Filbinger, fráfarandi formaður, og Lothar Spaeth á blaðamannafundi eftir að
Lothar Spaeth hafði verið kjörinn formaður Kristilegra demókrata i Baden
Wúrttemberg.
Vestur-Þýzkaland:
Sonur Rommels náði
ekki formannskjöri
Manfred Rommel, borgarstjóri í
Stuttgart í Vestur-Þýzkalandi, náði ekki
kjöri sem leiðtogi Kristilegra demókrata
i Baden Wúrttemberg. Lothar Spaeth
innanríkisráðherra og löngum hægri
hönd Hans Filbinger, fráfarandi for-
sætisráðherra, var kjörinn forustumaður
flokksins og þar af leiðandi forsætisráð-
herra.
Rommel, sem er tæplega fimmtugur,
er sonur Rommels hershöfðingja nasista
í síðari heimsstyrjöldinni, sem neyddur
var til að fremja sjálfsmorð eftir að upp
komst um þátt hans i samsæri gegn
Hitler árið 1944. Vakti Manfred
Rommel fyrst á sér athygli er hann var
kjörinn borgarstjóri árið 1974. Er hann
talinn til frjálslyndari arms Kristilegra
demókrata. 1 fyrra veitti hann fjölskyld-
um þriggja hryðjuverkamanna, sem
sagðir voru hafa framið sjálfsmorð i
fangelsi, leyfi til að jarðsetja lík þeirra í
almennum kirkjugarði. Sagði hann þá
að við dauða hlyti allur fjandskapur að
vera gleymdur.
Verðimir laumuðu
hassi til fanganna
Tveir fangaverðir I fangelsi í Madrid á
Spáni hafa verið handteknir og ákærðir
fyrir að smygla ýmsum fíkniefnum til
fanga sem þeir áttu að gæta. Voru
mennirnir tveir handteknir i gær eftir að
aðrir verðir höfðu fundið með aðstöð
lögreglunnar I fórum fanganna hass,
LSD, nálar og ýmsar pípur sem notaðar
höfðu verið til að reykja hass.
Ránsfengnum rænt af
Iran:
Tæp fjögur
hundruð
fórust
í bíóbruna
— talið verk hermdarverkamanna er
styðja ofsafengna áhangendur
múhameðstrúar eða vinstri manna
Lögreglan rannsakar nú eldsvoða
sem varð í kvikmyndahúsi í Abadan,
olíuborg I Vestur-íran á laugardags-
kvöldið. Þar fórust þrjú hundruð
sjötíu og sjö manns, mikið af þeim
konur og börn. Yfirvöld telja að elds-
voðinn sé af völdum hryðjuverka-
manna sem mjög hafa látið að sér
kveða að undanförnu í íran. Er þar
bæði um að ræða vinstri sinnaða hópa
eins og ihaldssama múhameðstrúar-
menn sem telja allar nýjungar, svo
sem banka og kvikmyndahús, af hinu
vonda og svik við sanna trú.
Svo virðist sem eldur hafi verið
lagður að kvikmyndahúsinu á fjórum
stöðum. Eldurinn varð fljótt svo
magnaður að slökkvilið fékk ekki við
neitt ráðið. Var barizt við eldinn í sex
klukkustundir en er hann hafði verið
slökktur var húsið fallið og nær
ógjörningur að þekkja nokkurt
likanna.
Fregnum af þvi hve margir komust
lífs af úr brunanum ber ekki saman. Í
fregnum frá opinberri fréttastofu segir
að aðeins tiu hafi sloppið út úr kvik-
myndahúsinu. í blaðafregnum segir
aftur á móti að um það bil eitt
hundrað hafi sloppið ómeiddir, en tvu
hundruð og tuttugu hafi særzt.
Miklar mótmælaaðgerðir eru í
Abadan og fleiri borgum vegna þessa
bruna og fleiri hefndarverka. Er lög-
regla á verði við moskur múhameðs-
trúarmanna og annars staðar þar sem
búast má við að óeirðir geti brotizt út.
Eldur kom upp I öðru kvikmynda-
húsi I gær. Ekki urðu slys á fólki.
Nokkrum stundum siðar sprakk
sprengja í veitingahúsi í Shirazborg.
Einn starfsmaöur meiddist. Á laug-
ardagskvöldið var kveikt i þekktu
veitingahúsi i höfuðborg írans,
Teheran. Viku áður sprakk sprengja á
veitingahúsi I höfuðborginni. Þá
særðust fjörutiu manns, þar af tíu
Bandaríkjamenn.
Rikisstjórn trans hefur tilkynnt að
fjölskyldur þeirra sem bórust I brunan-
um muni fá fjárhagsaðstoð.
ræningjanum
— á meðan hann lét klippa sig og raka
afséryfirskeggið
Dönskum bankaræningja hélzt ekki
lengi á peningunum sem hann krækti sér
í I sparisjóði einum í Kaupmannahöfn
þó vel gengi að fá þá afhenta. Ræninginn,
sem er tuttugu og sex ára gamall, gekk
inn i sparisjóðinn og lagði plastpoka og
skammbyssu á afgreiðsluborðið fyrir
framan annan gjaldkerann. Var pokinn
umyrðalaust fylltur. Siðan gekk ræning-
inn að hinum gjaldkeranum sem fyllti
annan plastpoka af seðlum. að jsessu
loknu flúði ræningipn sem fætur toguðu
og komst á brott með fjörutiu og sjö þús-
und krónur, jafnvirði tveggja milljóna
og þrjú hundruð þúsund íslenzkra
króna. Ekki var hann þó frjáls nema í
nokkrar klukkustundir þvi lögreglan
hafði hendur í hári hans. Kom þá í Ijós
að allir peningarnir voru horfnir og
sjálfur gaf bankaræninginn þá skýringu
að þeim hefði verið rænt frá honum.
Sagðist honum svo frá að hann hefði
farið til kunningjakonu sinnar sem
klippti hár hans og rakaði af honum yfir-
skeggið. Hefði hann greitt henni tvö þús-
und krónur fyrir eða jafnvirði níutiu og
fjögur þúsund íslenzkra króna. Á meðan
á snyrtingunni stóð hefðu tveir menn
skyndilega ruðzt inn og þrifið af honum
alla peningana. Þar sem hann hefði ótt-
azt að þeir ætluöu að misþyrma honum
hefði hann lagt á flótta.
Dönsku lögreglunni hefur tekizt að
hafa uppi á tveim mönuum sem viður-
kenna að hafa tekið tvö þúsund krónur
af peningunum sem maðurinn var með.
Þeim segjast þeir hafa eytt til hasskaupa
en einhver annar hljóti að hafa tekið af-
ganginn. Reyndar hafi peningar verið út
um allt í herberginu þegar þeir komu að.
Hua Kuo Feng, formaóur kinverska kommúnistaflokksins, hefur verið á ferð um Rúmeniu að undanförnu. Þar hefur hon-
um verið fagnað vel og jafnframt sjálfur notað tækifærið og gagnrýnt erkióvininn I Moskvu dyggilega i ræðum. Allar hafa þó
hinar eitruðu örvar verið undir rós, enda likast til betra fyrír Ceausescu, forseta Rúmeniu, að Sovétmenn reiðist honum ekki
of rnikið. Ekki er vist hvað Rúmenum llðst lengi að standa uppi i hárinu á Moskvuvaldinu. í viðræðum forustumanna Kína og
Rúmeníu hefur verið ákveðið að taka upp mjög nána samvinnu á sviði iðnaðar og tækni og auka mjög viðskipti milli land-
anna.