Dagblaðið - 21.08.1978, Page 9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 21. ÁGÚST 1978.
Augafyrirauga... /r
Flugher Israels í
hefndarárás =T“
Tilkynnt var í Tel Aviv i morgun að
ísraelskar herþotur hefðu gert loftárásir
á stöðvar palestínskra skæruliða suður
af Beirut í Libanon I nótt. 1 fyrstu
fregnum var ekkert sagt frekar af árás-
inni nema að hún hefði verið gerð í
hefndarskyni fyrir árás palestinskra
skæruliða á strætisvagn ísraelska flug-
félagsins E1 A1 í London í gær. Þar
fórst ein flugfreyja og skæruliði sprakk
í loft upp er sprengja sprakk i fangi
hans. Sex vegfarendur særðust og
vitað er að önnur israelsk flugfreyja
liggur mikið særð á sjúkrahúsi í
London og er óttazt um líf hennar.
Þriðja flugfreyjan særðist einnig en
ekki alvarlega. Gerðist þetta fyrir utan
Hótel Evrópa í miðborg Lundúna er
tuttugu og einn flugliði frá El Al kom í
bifreið að hótelinu. Samkvæmt
fregnum frá Beirut féllu niu manns í
loftárásunum og nokkrir tugir særð-
ust.
Vestur- Þýzkaland:
fíestar tankbifreiðar
alvarlega bilaðar
Nærri fjórar af hverjum fimm tank- verið rannsakaður i Vestur-Þýzkalandi, margar þessara bilana verið alvarlegar
bifreiðum, sem að undanförnu hafa hafa verið bilaðar á einhvern hátt. Hafa að því er yfirvöld sögðu í sérstakri til-
kynningu fyrir helgi. Rannsókn þessi var
fyrirskipuð þegar hið mannskæða slys
varð á Spáni fyrir nokkru. Þá fórust hátt
á annað hundrað manns þegar gasflutn-
ingabifreið hlekktist á.
Af tvö hundruð sextíu og sjö tankbif-
reiðum í eigu oliuhreinsunarstöðva og
bensinsölufyrirtækja voru aðeins
tuttugu og tvær af hundraði fullkomlega
I lagi.
Algengustu gallarnir voru að hjól-
barðar væru slitnir (27%) og bremsur
lélegar (22%). Af fjörutiu gasflutninga-
bifreiðum, sem voru rannsakaðar, voru
átta alvarlega bilaðar. Ein bifreiðanna
var með þrísprungna grind. Var hún
samstundis tekin úr umferð af lögreglu-
yfirvöldum.
Yfirvöld I Vestur-Þýzkalandi hyggjast
auka mjög eftirlit með tankbifreiðum.
Tékkóslóvakía:
Prag tíkust
dauðri borg
Götur Prag, höfuðborgar
Tékkóslóvakíu, voru nærri mannlaus-
ar kvöldið og nóttina fyrir tíu ára af-
mæli innrásar herja Varsjárbanda-
lagsins. Er borgarbúar fóru til vinnu i
morgun voru engin merki þess að til
mótmæla hefði dregið af nokkru tagi.
Ekki varð heldur séð, að lögreglan
hefði aðhafzt nokkuð. Hún var aftur á
móti við öllu búin, stórum vatns-
byssum og brynvörðum og vopnuðum
bifreiðum var komið fyrir á götunum
fyrir helgina ef einhverjum skyldi
koma til hugar að minnast innrásaraf-
mælisins eða mótmæla stjórn Husaks,
sem tók við af Alexander Dubcek níu
mánuðum eftir innrásina.
Sérstaklega hefur lögreglan haft
eftirlit með Weneslastorgi og styttu
heilags Weneslas, verndardýrlings
landsins. Þar voru miklar óeirðir og
bardagar á milli lögreglu og
mannfjölda sem þar safnaðist saman á
eins árs afmæli innrásar Varsjár-
bandalagsherjanna.
Sjá nánar um tíu ára innrás-
arafmælið á bls. 10 og11.
Þrír
helgi. Á myndinni sést hvar mannfjöldi fagnar þeim er belgur þeirra
jörð á Frakklandi skammt frá Paris.
Asgeir Þ. Arnason skrifar um heimsmeistaraeinvígið:
Algjört hran
hjá Kortsnoj
Viktor Kortsnoj varð heldur betur
fyrir áfalli f heimsmeistaraeinvfgi sfnu
við Karpov nú um helgina. Á laugar-
daginn tefldi hann 14. skákina veikt og
gaf Karpov fseri á skiptamunsfórn f enda-
taflinu, sem færði heimsmeistaranum
unnið tafl og þegar skákin fór f bið var
sýnt hvert stefndi.
En sunnudagurinn 20. ágúst 1978
rennur seint úr minni hans. Tvær
biðskákir voru á dagskrá; i þeirri fyrri
var Kortsnoj álitinn eiga alla möguleik-
ana en Karpov að sama skapi i þeirri
síðari. Samt fór svo að Karpov vann
báðar skákirnar þá fyrri eftir mikinn
afleik hjá Kortsnoj en þá síðari aðeins
níu leikjum eftir bið, enda var Kortsnoj
gersamlega niðurbrotinn maður.
Karpov stendur því skyndilega með
pálmann í höndunum. Staðan 3—1 og
takist honum að vinna þrjár skákir i
viðbót áður en Kortsnoj vinnur fimm
verður hann áfram heimsmeistari næstu
þrjúárin. Og þá eru það skákirnar:
14. skákin Spánskur leikur
1. e4 e5 2. Rf3 Rcó 3. Bb5 a6. 4. Ba4
Rfb 5. 0—0 Rxe4 6. d4 b5 7. Bb3 d5 8.
dxe5 Be6 9. c3.
Eins og i 2. og 4. skákinni. í einviginu
hefur Karpov einnig reynt 9. De2 og 9.
Rbd2.
9. - Bc5 10. Rbd2- 0-0 11. Bc2 Bf5
12. Rb3 Bg4 13. h3
í fyrrnefndum skákum lék heims-
meistarinn 13. Rxc5 en komst lítt áfram
gegn góðri vörn Kortsnojs.
13.—Bh514. g4!
Teflt til vinnings! Með þessari
peðsframrás vinnur hvitur fyrst og
fremst tíma en veikir 1 staðinn peðastöðu
sína kóngsmegin. Þess má geta til
gamans að Kortsnoj, sem manna mest
hefur skoðað opna afbrigðið, hefur
skrifað að möguleikarnir vegi nokkurn
veginn jafnt í þessari stöðu.
14. - Bg6 15. Bxe4 dxe4 16. Rxc5
exf3 17. Bd4 Dxdl 18. Haxdl Rd8!
Nú hleypir Kortsnoj hvítum inn á
„sjöundu reitaröð” sem kallað er, þ.e.a.s.
gefur hvítum kost á að virkja hrók sinn á
þeirri línu þar sem flest svörtu peðin eru.
En hann ser fram á riddarakaup, sem
myndu gera skákina jafnteflislega, ekki
sist þegar tekið er tillit til hinna mislitu
biskupa.
19. Hd7 Re6 20. Rxe6 fxe6 21. Be3
Hac8 22. Hfdl Be4 23. Bc5 Hfe8 24.
H7d4 Bd5 25.b3a5.
Og þegar hér var komið sögu hafði
Kortsnoj notað 73 minútur en Karpov
aðeins tuttugu. Af því tilefni sögðu
gárungarnir á Filippseyjum að engu
væri líkara en að Karpov væri að tefla í
fjöltefli!
26. Kh2 Ha8
Áskorandinn leggur nú i heldur
vafasamt ferðalag með hrókinn sinn,
sem Karpov nýtir sér af stakri snilld.
Hinn gerði leikur er að sjálfsögðu full-
komlega eðlilegur, en kannski ekki þeir
tveir næstu..
27. Kg3 Ha6 28. h4Hc6
Við fyrstu sýn virðist staðan vera i
jafnvægi en Karpov lumar á laglegri
skiptamunsfórn sem í einu vetfangi
hleypir miklu lífi i skákina og gerir
aðstöðu svarts nánast vonlausa.
Svona tefla heimsmeistarar!
29. — exd5 30. Hxd5 Hce6 31. Bd4
c6 32. Hc5 Hf8 33. a4 bxa4 34. bxa4 g6
35. Hxa5 Hee8 36. Ha7 Hf7 37. Ha6
Hc7 38. Bc5 Hcc8 39. Bd6 Ha8 40.
Hxc6 Hxa4 41. Kxf3 h5
Karpov lék hér biðleik. Ekki verður
annað sagt en hann eigi frábæra
vinningsmöguleika, se.i. og varð.
Skákin tefldist þannig áfram.
42. gxhS gxh5 43. c4 Ha2 44. Hb6
Kf7 45. c5 Ha4 46. c6 Ke6 47. c7 Kd7
48. Hb8 Hc8 49. Ke3 Hxh4 50. e6 og
Kortsnoj gafst upp.
Framhald 13. skákarinnar varð:
Be5
Þannig hyggst Karpov verjast 1
þessari stöðu. Hann gefur c peðið eftir
baráttulaust en vinnur þess í stað mikil-
vægan tíma til þess að endurskipuleggja
stöðu manna sinna og hindra hreyfifrelsi
hvíta frípeðsins.
44. dxc6Kg7 45. Be4
Staðan er vitaskuld mjög vandtefld og
hér byrjaði að saxast á hinn litla tima
sem Kortsnoj hafði aflögu.
45. — Dg5+ 46. KD Bd6
En ekki 46. — Dxe3? 47. Dxf7 + ! og
hvitur vinnur. Karpov teflir vörnina
óaðfinnanlega, bíður átekta og lætur
Kortsnoj stjórna ferðinni en slíkt getur
veriðansi erfitt.
47. Bd5 He7 48. Bf3 h5 49. Bdl Df5
50. Ke2 He4 51. Dc3+ Df6 52. Db3
Drottningakaupin myndu ekki leiða
til neins fyrir hvítan. Kortsnoj átti þegar
hér var komið sögu aðeins fimm
minútur eftir fyrir næstu fjóra leiki og
enn á ný verður tímahrakið honum
dýrkeypt.
52. — Df5 53. Db7 +
Líklega var betra að vinna tíma með
því að þráleika
53. - He7 54. Db2+ Kh7 55. Dd4
Bc6
Staða hvits er nú engu betri en áður
og sé vinningur til þá er hann langsóttur.
Kortsnoj leikur nú síðasta leiknum fyrir
timamörkin og til þess að vinna tíma þá
setur hann á óvaldaða svarta hrókinn.
En hvilíkur afleikur...
56. Dh4 ?? He4!
Það var og.t einu vetfangi breytir
Karpov hvítu stöðunni í rjúkandi rúst.
57. f4
Þvingaður leikur. Drottningin átti sér
enga undankomu en nú opnast flóðgátt
innaðhvíta kóngnum.
57. — Bb6 58. Bc2
Hvítur er glataður. Tilraun til
gagnárásar með 58. Re5 er snarlega
brotin á bak aftur með 58. — Dxe5.
58. - Hxe3+ 59. Kd2 Da5+ 60.
Kdl Dal+ 61.Kd2 He4!
Nú á hvítur enga vörn gegn hótuninni
62. — Ba5 + svo Kortsnoj gafst upp. —
Ægilegt áfall. Á.Þ.Á.