Dagblaðið - 21.08.1978, Blaðsíða 18
18
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 21. ÁGÚST 1978.
Gullstraumur
tilUSA
— á heimsmeistara-
mótinu í sundi
íVestur-Berlín
Eftir margra ára einveldi Austur-
Þýzkalands í sundi kvenna hafa banda-
risku sundkonurnar nú brotið ísinn. í
fyrstu tveimur kvennagreinunum i heims-
meistaramðtinu i Vestur-Berlin, sem
hófst um hclgina, hlaut USA gullið. í
fyrstu sex greinunum í keppninni hlaut
USA fern gullverðlaun, V-Þý/kaland
ein og Sovétrikin cin. Tracy Caulkins,
USA, setti nýtt heimsmet í fjórsundi
kvenna — 200 metrum. Úrslit á mótinu í
gær urðu þessi. Keppt til úrslita í fimm
sundum:
200 m fjórsund kvenna
1. Tracy Caulkins, USA,
2. Joan Pennington, USA,
3. UlrikeTauber. A-Þýzkal.
4. Klevakina.Sovét,
2:14.07
2:14.98
2:15.99
2:17.60
100 m bringusund karla
1. Walter Kusch. V-Þýzkal., 1:03.56
2. Graham Smith, Kanada, 1:03.60
3. Gerald Mörken, V.-Þýzkal., 1:03.62
4. Duncan Goodhew, Bretlandi, 1:03.77
5. NickNevid. USA. 1:03.84
6. S. Takahashi, Japan, 1:03.94
200 m skriðsund karla
1. William Forrester, USA,
2. Ambrose Gaines, USA,
3. S. Koplyakov, Sovét,
4. PeterSzmidt, Kanada,
1:50.02
1:51.10
1:51.33
1:51.94
lOOmbaksund karla
1. Robert Jackson, USA,
2. Peter Rocca. USA,
3. V. Kuznetsov, Sovét,
4. Gary Hurrin,», N-Sjál.,
56.36
56.69
57.41
57.83
4X100 m fjórsuml kvenna
1. Bandarikin
2. A-Þýzkaland
3. Sovétríkin
4. V-Þýzkaland
4:08.21
4:09.13
4:14.91
4:15.25
Irina Kalinina, Sovét, hlaut fyrstu
gullverðlaunin á HM — i dýfingum
kvenna. hlaut 691.43 stig. Cynthia Pott-
er, USA, varð önnur með 643.22 stig.
Jennifer Chandler, USA, varð þriðja
með 637.41 stig.
Skagamenn
gerðu það
gott í Svíþjóð
Fimmti tlokkur ÍA, Íslandsmeist-
ararnir frá í f> rra, fóru til Svíþjóðar til
þátttöku i ulþjóðlcgu unglingamöti i
knattspvrnu nýlega. Mótið nefnist
(■othia Cup og fór fram i sjötta sinn. Lið
frá 20 þjóðum tóku þátt — l'rá fjórum
heimsálfum. um það bil 7000
einstaklingar.
í þeim aldursfiokki er ÍA keopti voru
67 lið og höl'nuðu Skagamenn í 5—8.
Fvrirkomulag keppninnar var þannig að
Ivrst var liðunum skipt í riðla og tvö
efstu liðin komust áfrani á lokakeppnina,
sem var úrsláttarkeppni. IA vann sinn
riðil og i útsláttarkeppninni unnu
strákarnir afSkaga þýzka liðið Bremen-
vörder 3—0. í kjölfarið sigruðu þeir
síðan Hammerbv 6—0. Þeir töpuðu hins
vegar fyrir Frankfurt, 0—1. Þjóð-
verjarnir áttu vart nteira en tvö umtals-
verð tækifæri en Skagantenn sóttu mjög,
áttu skot i stöng og slá auk þess að
hjargað var á Hnu. Skozka liðið
llutchinsons Vaie sigraði í keppninni
mcxíkanska liðið Pumitas 2—0 í
úrslitum.
Gunnar Örn Kristjánsson, lengst til hægrí, skorar þríðja mark Vikings. Guðmundur Baldursson á enga möguleika að verja. DB-mynd Bjarnleifur.
VIKINGAR SOKNDJARFIR
UNDIR STJORN YOURI!
— Víkingur sigraði Fram 3-0 í gærkvöldi. Fyrsti ieikur Víkings undir stjórn
Youri llitschev landsliðsþjálfara
Yourí Ilitschev, landsliðsþjálfarí,
stjórnaði Viking i fyrsta sinn i gærkvöld
er Vlkingur mætti Fram í 1. deild í
Laugardal — og hvtlik breyting. Vík-
ingar sýndu snjallan leik, yfirspiluðu
Fram og 3-0 sigur var sízt of stór. Vik-
ingar hefðu getað skorað 6 mörk, af
tækifærum að dæma. Já, leyfðu sér þann
munað að misnota vítaspyrnu. Það var
sem allt annað lið léki, frá siðustu leikj-
um Vikings, undir stjórn Englendingsins
Billy Mavdock. Knötturínn gekk manna
á milli, á samherja — langspörk og
hlaup enska knattspyrnuskólans voru úr
sögunni og áranguiinn lét ckki á sér
standa.
Youri Uitschev gerði miklar stöðu-
breytingar á Vikingsliðinu og þrátt fyrir
að hann hafi aðeins verið með Viking í
tæpa viku mátti sjá að Vikingar höfðu
numið lærdóm hans, knötturinn látinn
ganga og tækifærin létu ekki á sér
standa. Þegar ,á 15. mínútu átti Óskar
Tómasson fast skot af 25 metra færi sem
Guðmundur Baldursson, markvörður
Fram, bjargaði vel í horn. Skömmu siðar
fengu Víkingar vítaspyrnu. Upp úr
homspyrnu átti Gunnar Örn fast skot af
20 metra færi. Knötturinn fór i hendi
Kristins Atlasonar og dómarinn, Arnþór
Óskarsson, dæmdi umsvifalaust vita-
spyrnu. Gunnar Örn Kristjánsson tók
spyrnuna en Guðmundur Baldursson
markvörður gerði sér lítið fyrir og varði
Youri var ánægður eftir Vikings-
sigurinn. DB-mynd Bjarnleifur.
Vikingar gerðu harða hríð að marki
vnungar georu naioa nuu au marki
Fram, aðeins minútu síðar átti Óskar
Tómasson skalla í stöng. Það kom því
ekki á óvart er Víkingar tóku forustu á
19. mínútu. Þeir fengu aukaspyrnu
skammt fyrir utan vítateig Fram.
Gunnar örn tók spyrnuna, lyfti fyrir
vörn Fram og knötturinn skauzt i hálu
grasinu, Guðmundur hálfvarði en Lárus
Guðmundsson fylgdi vel, skoraði af
stuttu færi, 1-0. Á 34. mínútu átti
Róbert Agnarsson fastan skalla að
marki Fram en Guðmundur bjargaði
vel. Á 44. minútu juku Vikingar forust-
una. Viðar Eliasson tók aukaspyrnu,
lyfti vel inn i vitateig Fram. Guð-
mundur Baldursson sló knöttinn frá en
beint til Jóhanns Torfasonar sem var
utan vítateigs. Jóhann gerði sér lítið
fyrir og sendi knöttinn rakleiðis í net-
möskvana, 2-0.
Fram átti mjög i vök aö verjast i fyrri
hálfleik en í siðari hálfieik komu Fram-
arar meir inn i myndina en sóknarbrodd
vantaði illa. Þó fékk Pétur Ormslev gott
tækifæri á 7. minútu en Diðrik Ólafsson
varði skalla hans frá markteig vel.
Hinum megin voru Víkingar ágengir.
Guðmundur varði skot frá Viðari Elís-
syni af stuttu færi með fótunum og á 22.
minútu skoruðu Víkingar sitt þriðja
mark. Lárus Guðmundsson lék á
vamarmann, gaf inn í eyðu. Sigurbergur
Sigsteinsson hafði öll tök á að hreinsa en
mistókst og Gunnar Örn var skyndilega
á auðum sjó i vitateig Fram. Hann
skoraði af öryggi, 3-0. Skömmu siðar
komst Gunnar Örn i gegn en Guð-
mundur bjargaði af tám hans. Þá fékk
Fram gott færi á 28. mínútu er Ásgeir
Elíasson komst i gott færi en Diðrik
Ólafsson varði vel. Það sem eftir lifði
fengu Vikingar tvö góð færi. Jóhann
Torfason fékk knöttinn af vamarmanni
fyrir innan vörn Fram — í stað þess að
bruna upp skaut hann og Guðmundur
varði. Lárus Guðmundsson fékk eitt
bezta tækifæri leiksins á 45. minútu,
aleinn á markteig en skallaði framhjá.
Öruggur sigur Vikings, 3-0 — og allt
annar bragur á leik liðsins, knötturinn
látinn ganga á milli leikmanna, sóknar-
leikurinn hraður og tækifærin létu ekki
á sér standa. Víkingar uppskáru stærsta
sigur sinn á Fram frá því jjeir komu upp
i l.deild, 1970,og í fyrsta sinn sem Vík-
ingur vinnur Fram tvöfalt, fyrri leikinn
vann Víkingur 1-0. Síðustu fjögur árin
hafa liðin skilið jöfn að stigum, sigur og
tap.
Fram átti ekki svar við sóknarleik
Vikinga, og vörn liðsins átti mjög i vök
að verjast, opnaðist iðulega illa. Þá
vantaði allan brodd i sóknina. Leikmenn
náðu sér aldrei á strik en bezti maður
liðsins varGuðmundur Baldursson.
Leikinn dæmdi Arnþór Óskarsson.
- H Halls
Nýtt vallarmet á Nesinu
— Góðurárangur golfmanna í afrekskeppni FÍ
Sveinn Sigurbergsson, GK, setti nýtt
vallarmet á Nesvellinum I afrekskeppni
Flugfélagsins um helgina. Lék 18 holurá
66 höggum eða fjórum undir parí vallar-
ins. Þessi góði árangur nægði Sveini þó
ekki nema í fjórða sæti 1 keppninni.
Hann var ekki meðal þeirra fremstu eftir
fyrri daginn.
Fyrr i keppninni höfðu þeir Geir
Svansson, GR, og Sigurður Thoraren-
sen, GK, leikið á 68 höggum. Aliir beztu
golfmenn landsins mættu til leiks og það
stóð ekki á árangrí. Bezti árangur sem
hér hefur náðst á golfmóti.
Geir Svansson varð sigurvegarí í þess-
arí 72 holu keppni. Lék á 281 höggi, sem
er íslandsmet — en 36 holur voru
leiknar hvorn dag. Björgvin Þorsteins-
son, GA, varð annar á 285 höggum.
Magnús Birgisson, GK, þriðji en síðan
komu þeir Sveinn Sigurbergsson og
Óskar Sæmundsson í fjórða og fimmta
sæti. Þetta er boðsmót, þar sem 12
meisturum er boðið til keppninnar. HBK
Nú stendur Isaf jörður vel að vígi
ísfirðingar juku möguleika sina á sæti
i 1. deild veralega með öruggum sigrí á
Ármanni i 2. deild íslandsmótsins i
knattspyrnu á tsafirði á laugardag, 3-0.
Ísfirðingar hafa nú tapað fæstum stigum
[ i -2. deild, fyrir utan KR. Eftir eru þrír
leikir, allt útileikir.
Leikurinn á Ísafirði var þokkalegur,
ísfirðingar sóttu undan vindi i fyrri hálf-
leik og sóttu mjög. þegar á 4. minútu
náði ÍBÍ forustu með marki Kristins
Kristjánssonar. Staðan í leikhléi var 1 -0
iBtívil.
í síðari hálfleik léku ísfirðingar gegn
vindi en þeir létu það ekki á sig fá. Jón
Oddsson kom ÍBÍ í 2-0 á 5. mínútu og
fjórum minútum siðar skoraði Örnólfur
Oddsson þriðja mark ÍBÍ, 3-0. Á 17.
minútu fékk Jón Oddsson mjög gott
tækifæri, skaut yfir af 3 metra færi —
með autt markið fyrir framan sig.
Öruggur sigur ÍBÍ og liðið á nú góða
möguleika á sæti i 1. deild.
- KK