Dagblaðið - 21.08.1978, Blaðsíða 22
22
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 21. ÁGÚST 1978.
Það kostaði konurnar mikla baráttu að fá að klæðast einkcnnisbúningunum þeim arna.
Carter Bandaríkjaforseti gat
ómögulega sætt sig við tóma karlmenn
í kringum sig. Og þar sem hann er
maður mikilla framkvæmda réðst
hann i að breyta því þegar i stað.
Meðal annars réð hann nokkrar ungar
og fagrar stúlkur i sérstakar öryggis-
sveitir forsetaembættisins. Alls réð
hann tólf stúlkur til slikra starfa.
En ekki var nóg að þær litu vel út.
þó það hefði vitaskuld mikið að segja.
Ferill þeirra i hernum var vandlega
kannaður áður en þeim var veitt
staðan og nokkur próf urðu þær að
standast. Þær fóru á ársnámskeið i
öryggisatriðum áður en þær byrjuðu
að vinna.
Stúlkurnar þurftu líka að vera
sterkar likamlega. Sá útbúnaður sem
öryggisverðir bera vegur nefnilega um
Konur lífga upp á
öryggissveitir
Hvfta hússins
12 kíló, þar af eru stigvélin ein. sem
eru úr málmi, tvö og hálft kiló hvort.
„Samkeppnin var mjög hörð,” segir
einn þessara nýju öryggisvarða. „En
það er svo mikill heiður að komast í
öryggissveitirnar að erfiðið er sannar-
lega gleymt. Við urðum að keppa hver
við aðra en mesta keppnin var þó við
karlmennina. Það var ekki nóg að við
værum jafngóðar og þeir, við urðum
að vera betri. Enda finnst okkur við
hafa verið beztar.”
Það tók níu mánaða baráttu að fá
konur inn i öryggissveitir Hvita
hússins og tókst ekki fyrr en I febrúar.
Um miðjan maí, og fyrr ekki, var þeim
leyft að vera með þegar eitthvað var
um að vera, og þá fyrst fannst
konunum að Pentagon (hermálaráðu-
neytið) hefði samþykkt þær. Núna eru
nokkrar konur í viðbót i þjálfun til
þess að komast í öryggissveitirnar.
Þjálfunin var geysihörð.
Allt til skólans
Þú þarft ekki að leita víðar
EYMUNDSSON
Austurstræti 18 Sími 13135
umar
Námsbækumar
Ritföngin
Kennarar
Almennan kennara vantar að grunn-
skóla Akraness. Upplýsingar í skólanum
í síma 93—2012 og hjá yfirkennara í
síma93—1797.
Skólanefnd.
NILFISK
sterka ryksugan... §
Styrkur og dæmalaus ending hins þýðgenga,
stillanlega og sparneytna
mótors, staðsetning
hans oghámarks
orkunýting. vegna
lágmarks loft-
mótstöðu í
stóru ryksíunni,
stóra. ódýra
pappírspokanum
og nýju kónísku
slöngunni.
afbragðs sog-
stykki og varan-
legt efni, ál og
stál. Svona er
NILFISK:
Vönduð og
tæknilega ósvik-
in. gerð til að
vinna sitt verk
fljótt og vel. ár
eftir ár. með lág-
marks truflunum
og tilkostnaði
Varanleg: til lengdar
ódýrust.
Ný keilu-slanga:
20% meira sogafl,
stíflast síður.
Traust þjónusta
Afborgunarskilmólar
HATUN 6A
SÍMI 24420
Raftækjaúrval — Næg bílastæði