Dagblaðið - 21.08.1978, Page 23
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 21. ÁGÚST 1978.
Þrír hafa sagt
upp i hljóm-
sveitmm Tivoli
Hún starfar þó mánuð í viðbót
..Ég. Eyþór Gunnareson og
Andrés Helgason erum búnir að
segja upp i Tívoli frá og með
máriaðamótunum september/októ-
ber. Ég get engu svarað um hvað
þau þrjú sem eftir eru ætla að gera
eftir það." sagði Friðrik Karlsson git-
arleikari er hann var inntur eftir þrá-
látum orðrómi þess efnis að hljóm-
sveitin Tívoli væri hætt.
Friðrik kvað sér lífsins ómögulegt
að starfa i hljómsveit i vetur þar eð
hann væri á kafí i tónlistarnámi.
Auk þess lýkur hann verzlunarprófi
frá fjölbrautaskólanum i Breiðholti
næsta vor.
Ástæða hinna tveggja er hin sama
og Friðriks. Eyþór stundar mennta-
skólanám og Andrés er í Tónlistar-
skólanum i Reykjavik.
Hljómsveitarstjórinn i Tivoli,
Ólafur Helgason, er á sólarströndum
þessa dagana og hvilir sig eftir anna
samt sumar. Væntanlega skýrist
framtið Tivolis þegar hann kemur
heim siðar í þessum mánuði.
„Ég neita því ekki að litilsháttar
þreytu var tekið að gæta hjá okkur
undir það siðasta,” sagði Friðrik
Karlsson i samtalinu sem Dagblaðið
átti við hann á föstudag. „Við
höfum haft gifurlega mikið að gera
siðustu mánuði. Tívoli er ekki at-
vinnuhljómsveit svo að við verðum
að sinna daglegum störfum auk
spilamennskunnar. Ég vil hins vegar
leggja áherzlu á að uppsögn okkar
þriggja er engan veginn til komin
vegna ágreinings eða óánægju. Við
höfum einfaldlega ekki tima til að
sinna spilamennskunni.”
Friðrik hefur auk þess að leika
meö Tivoli starfrækt jazzrokkhljóm-
sveitina Mezzoforte. Hann kvað allt
óljóst um framtið hennar, en sagði
þó ekki ómögulegt að eitthvað ætti
eftir að heyrast til hennar á vetri
komanda. — Friðrik fer utan ein-
hvern næstu daga en kemur aftur
heim 3. september. Þá verður tekið
til við æfingar hjá Tivoli og lcikið á
dansleikjum strax helgina á eftir og
allt til mánaðamóta.
-ÁT-
TÍVOLÍ — Eyþór Gunnarsson er lengst til vinsti á myndinni. Þá kemur Andrés Helgason, en Fridrik Karlsson er
lengst til hægri. Þeir hafa allir sagt upp i hljómsveitinni. DB-my nd: RagnarTh.
Ný Mannakornsplata
er komin vel á veg
Jón Cortes leysir Pálma Gunnarsson afhólmi
Vinna við nýjustu hljómplötu
hljómsveitarinnar Mannakorns er
komin vel á veg. Er Dagblaðið ræddi
við Magnús Eiriksson um helgina
taldi hann að upptakan væri unt það
bil hálfnuð.
„Ég neita þvi ekki að mér finnst
nýja platan aðeins frábrugðin
fyrri , plötunum okkar tveimur.
músiklega séð," sagði Magnús.
„Maður gerir aldrei sama hlutinn
viljandi tvisvar. Annars er mér
lífsins ómögulegt að tjá mig um
tónlistina, ég læt mér nægja að
semja hana."
Veigamikil breyting hcfur orðið á
Mannakornum siðan siðasta platan.
I gegnum tiðina. kont út. Pálmi
Gunnarsson er hættur en i hans stað
kontinn Jón Kristinn Cortes. Hann
var i rauninni fyrirrennari Pálma í
hópnum. sem nú kallar sig Manna
korn. Við brottför Pálma verða
einnig talsverðar breytingar á söng-
skipaninni. Magnús sagði að
Guðmundur Haukur söngvari All'a
Bcta og Ellen Kristjánsdóttir i Tivoli
syngju sem gestir á nýju plötunni og
sömuleiðis heyrðist ntun meira i
Baldri Má Arngrimssyni en áður.
•„Baldur söng mjög mikið þegar
við spiluðum á böllum i gamla dagá
undir nöfnunum Lísa og hljómsveit
Pálma Gunnarssonar." sagði
Magnús. Lesendur muna ef til vill
eftir þvi að hann söng lagið Lilla
Jónsá fyrstu Mannakornsplötunni.
Það er Fálkinn sem gefur þriðju
Mannakornsplötuna út eins og tvær
þær fyrstu. Að sögn Magnúsar
Eirikssonar gerði það fyrirtæki
hljómsveitinni aðgcngilegasta
tilboðíðogvarþvitekið. -ÁT-
MAGNÚS FIRÍKSSSON — Hann
lofar bcztu Mannakornsplótunni til
þessa. Ljósm. Jim Smart.
í takt
við
tímann
Hér að neðan gefur að líta nokkrar
valdar plötur sem margir hafa að
undanfömu látið freistast til að eign-
ast. Trúlega ert þú í þeim hópi, og
kannski viltu auka hlutdeild þína.
Því ekki, fátt veitir meiri ánægju en
góð plata á fóninum.
Popp:
□ Billy JoekTheStranger
Gerry Rafferty: City to City
Kate Bush: The Kick Inside
Marshall Hain: Free Ride
Andy Gibb: Shadow Dancing
Willie Nelson: Starclust
Umberto Tozzy: Ti Amo
Úr kvikmyndum:
Peter Frampton, Bee Gecs o. fl.: Sgt. Peppers Loncly
Heart Club Band.
Olivia Newton John & John Travolta: The Grcasc
r Ýmsir rokkaran FM
Mel Brooks o. fl.: Mel Brooks Greatest llits
Jerry Reed o. fl.: Smokey & TheBandit
Rose Royce: Carwash
Ýmsir gamlir: American Graffiti
H Bee Gees o.fl.: Saturday Night Fever
Rokk:
Boston: Don’t Look Back
Santana, Heart o. fl.: California Jam
Bob Seagen Stranger in Town
Bob Welch: French Kiss
Ýmsir: Akron
Motors: Approved by
Burton Cummings: Dream of a Child
Bruce Springsteen: Darkness on the F.dgc of town
Tom Robinson: Power in the Darkness
Bob Dylan: Street Leagal
Gullaldarplötur
Buddy Holly: Buddy Holly Lives
F.lvis Presley: 40 bestu rokklög
Beach Boys: 20 Golden Greats
Hollies: 20 Golden Greats
□ Ýmsir: 20 Great Heartbreakers
Ýmsir: Juke Box
Stevie Wonder: Anthalogy
íslenzkar plötur
Brimkló: F.itt lag enn
Fjörcfni: Dansað á dekki
Randven Það stendur mikið til
llalli & l.addi: Hlunkur cr þetta
Mannakorn: í gcgnum tiðina
Gylfi Ægisson: Blindhæð, Upp í mnti.
Disco Soul:
KC & The Sunshinc Band: Who Do Vou Love
Peter Brown: Fantasy Love Affair
Fmotions: Sunshine
Johnny Malhis & Dcnicc Williams: Ný plata
Commodores: Natural High
Commodores: Live
Krossaðu við þær plötur
sem hugur þinn girnist og
sendu okkur listann eða
hringdu, við sendum sam-
dægurs í póstkröfu.
Kamabær
Laugavegóó Sími 28155