Dagblaðið - 21.08.1978, Síða 30
30
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 21. ÁGÚST 1978.
Fall krónunnar í tíð núverandi stjórnar:
ERLENDUR GIALDEYRIR
NÆRRIÞREFALDAÐIST
Erlendur gjaldeyrir hefur nærri þre-
faldazt í verði gagnvart íslenzku krón-
unni á fjórum árum, ef litið er á
gengisbreytingar frá 21. ágúst 1974,
rétt fyrir gengisfellingu sem þá varð,
til 10. ágúst i ár. Þetta timabil fer
nokkuð saman við valdaskeið núver-
andi rikisstjórnar.
Gengi dollars hefur á þessu timabili
2,64 faldazt gagnvart krónunni. Það
var 98,60 krónur fyrir hvern dollar í
ágúst 1974 en 260,40 krónur fyrir
dollar i ágúst nú.
Sumir aðrir gjaldmiðlar hafa
hækkað meira gagnvart krónunni.
Japanskt jen 4,29 faldaðist gagnvart
krónunni, svissneski frankinn 4,65
faldaðist, vestur-þýzkamarkið 3,49
faldaðist í verði, fór úr 37,54 krónum
fyrir markið upp i 131,07 krónur á
markið. Pundið 2.21 faldaðist. Það
hækkaði úr 229,60 krónum fyrir hvert
pund i 506,95 krónur.
Danska krónan 2,93 faldaðist
reiknað i íslenzkum krónum. Danska
krónan var 16,28 íslenzkar 21. ágúst
1974 en var komin i 47.68 islenzkar
10. ágúst i sumar.
Kanadadollar 2,27 faldaðist, norska
krónan 2,77 faldaðist, sú sænska 2,65
faldaðist, finnska markið 2,41
faldaðist, franski frankinn 2,94 fald-
aðist, belgíski frankinn 3,27 faldaðist,
hollenzk gyllini 3,28 faldaðist. líran
2,08 faldaðist og pesetinn tvöfaldaðist
gagnvart íslenzku krónunni á þessu
fjögurraára tímabili.
Gengi krónunnar hefur enn fallið
siðan 10. ágúst siðastliðinn. eins og
DBhefurskýrtfrá. -HH
r Veðrið ^
Veöurapá í dag: noröan gola eöa
kaldi á landinu í dag, viöast súld
norðanlands en léttskýjaö sunnan-
lands.
Hiti í morgun kl. 6: Reykjavik 11
stig og lóttskýjað, Gufuskálar 10 stig
og skýjað, Galtarviti 7 stig og
alskýjað, Akureyri 9 stig og alskýjað,
Raufarhöfn 9 stig og alskýjaö, Dala-
tangi 8 stig og alskýjað, Höfn 7 stig
og léttskýjaö, Vestmannaeyjar 10
stig og alskýjað.
Þórshöfn i Fœreyjum 11 stig og
alskýjaö, Kaupmannahöfn 28 stig og
léttskýjað, Osló 13 stig og skýjað,
London 14 stig og skýjað, Hamborg
15 stig og léttskýjað, Madríd 17 stig
og léttskýjað, Lissabon 17 stig og
heiðríkt, New York 22 stig og
V hoiðríkt. M
Guðbjörg Helga Sigurðardóltir er látin
Hún var fædd 8. nóv. 1916 og voru for
eldrar hennar hjónin Kristín Benedikts
döttir og Sigurður Guðbrandsson
Garðhúsum Stokkseyri. Guðbjörg var
gift Jóni Vigfússyni frá Holti i Vesl
mannaeyjum. Þau hjón eignuðust t'o
syni, sem báðir eru uppkomnir. Þau
bjuggu að Helgafcllsbraut 17 i Vest
mannaeyjum þegar eldgosið hófst þar.
Eftir það bjuggu þau I Hafnarfirði.
Elln Þorstcinsdóttir er látin, 96 ára að
aldri. Hún var fædd að Dyrhólum i
Mýrdal. 22 ára gömul giftist hún
Friðriki Svipmundssyni frá Loftsölum i
sömu sveit og fluttust þau nokkru siðar
til Vestmannaeyja. Friðrik varð þar
snemma formaður á vélbát og mjög afla
sæll. Hjá þeim voru oft 20 manns i
heintili á vertiðum því þau hjón áttu ol't
ast hlut í tveimur bátum. Þau Elín og
Friðrik eignuðust 5 bom en auk þess óíu
þau upp 2 börn. Siðustu niu æviár sín
dvaldi Elín á Hrafnistu.
Sigurður Þórðarson lézt 10. ágúst sl.
Hann var fæddur að Sléttahóli í Bruna-
sandi 24. jan. 1894, sonur hjónanna
Þórðar Magnússonar og Eygerðar
Magnúsdóttur. Kona hans var Margrét
Stefánsdóttir. Þau bjuggu fyrstu
hjúskaparár sin í Vik í Mýrdal en
Buttust síðan til Vestmannaeyja þar sem
Sigurður vann aðallega við fiskvinnslu.
Þau Margrét og Sigurður eignuðust
fimm börn.
Ingvi Jónsson frá Ljárskógum lézt 10.
ágúst sl. Hann var fæddur 2. febr. 1904.
Hann kvæntist 6. jan. 1942 Guðrúnu
Jóelsdóttur i Laxárdal á Skógarströnd.
Þar bjuggu þau fyrstu 3 árin en fluttu
siðan að Ketilsstöðum i Hörðudal og
byrjuðu þar sjálfstæðan búskap. Þar
bjúggu þau rúm tvö ár og eignuðust þar
tvo af þrem sonum sinum, þá Jón og
Braga, en áður höfðu þau eignazl
Halldór er fæddist i Reykjavik. Árið
1947 brugðu þau búi og fluttust til
Grindavikur. Þar stundaði Ingvi ýmiss
konar landvinnu.
Ingimar Ingimarsson lézt 9. ágúst. Hann
var fæddur í Fremri Hnifsdal N-ís. þann
9. des. 1912. Foreldrar hans voru hjónin
Halldóra Margrét Halldórsdóttir og
Ingimar Bjarnason, bóndi og skipstjóri.
Eftir skyldunám sat Ingimar einn vetur í
íþróttaskólanum i Haukadal. Hann lauk
prófi frá Samvinnuskólanum árið 1938
og var eftir það starfsmaður SÍS í 15 ár.
Eftir þann tima fór heilsu hans að hraka
og leitaði hann sér lækninga i Noregi
með takmörkuðum árangri. Dvaldi
hann oft langdvölum á heilsuhælum.
Hann vann siðan við skattaframtöl en
gekk sjaldnast heill til skógar eftir þetta.
Þórður Ólafsson frá Borg, Arnarfirði.
lézt þann 16. ágúst i sjúkrahúsi Patreks-
fjarðar.
Magnús Guðjónsson frá Patreksfirði,
Hjallavegi 2, lézt á Landakotsspítala 17.
ágúst.
Kristján Hannesson læknir, Barmahlið
28,andaðist 17. ágúst sl.
Gunnar Bjarnason lézt aðfaranótt 18.
ágúst sl.
Eysteinn Björnsson, Brávallagötu 12,
sem andaðist 16. ágúst á Borgarspítalan-
um, verður jarðsunginn frá
Dómkirkjunni föstudaginn 25. ágúst kl.
15.
Helga Finnsdóttir, Svalbarði 3 Hafnar-
firði, andaðist i Borgarspitalanum að
morgni 17. ágúst.
Kristinn J. Guðnason forstjóri.
Grenimel 43, verður jarðsunginn frá
Dómkirkjunni þriðjudaginn 22. ágúst kl.
13.30.
Guðríður Margrét Þórðardóttir, Suður-
götu 31, Akranesi, verður jarðsungin frá
Akraneskirkju mánudaginn 21. ágúst kl.
14.
Þorsteinn Þorsteinsson, Háholti 17,
Akranesi, verður jarðsunginn frá Akra-
neskirkju þriðjud. 22. ágúst kl. 13.30.
Kristin Jóhannesdóttir, Grenilundi 8
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
þriðjud. 22. ágúst kl. 15.
Guðrún Stefánsdóttir, Mjósundi 16
Hafnarfirði, verður jarðsungin frá
Hafnarfjarðarkirkju þriðjud. 22. ágúst
kl. 14.
Brynhildur Ingvarsdóttir, Hátúni 10B,
verður jarðsett frá Fossvogskirkju
þriðjud. 22. ágúst kl. 13.30.
Bjarni Einarsson verður jarðsunginn
þriðjud. 22. ágúst frá Blönduóskirkju kl.
14.
Jóhanna Gísladóttir, 'iisufclli 15. lé/t
sunnudaginn 13. ágúst. I tlör hennar
verður gerð frá Fossvogskirkju mánu
daginn2l.ágústkl. 10.50.
Dagur Brynjúlfsson, Il.ittini 10. verður
jarðsunginn l'rá Dómkirkjunni mánu
daginn 21. ágúst kl. 10.30.
AA-fundir
cru scm hcr scgir ú MinmiiWuin: SunniulayMlcild
rjarnargötu 5 kl. II f.h I Sunnud.igskvoliUIcild
Tjarnargötu 3c kl. 9 c.h. I Ku'iinadcild Vctrarf.
I jarnargötu 3c og Tjarnargotu 5 uinarf. ‘> c.h. I..
Suöurncsjadcild Klapparstig Kclla\ik ! I l.h. I
AA-fundir
cru scm hcr scgir alla lostudaga:' II. dcild AA
I östud. Tjarnargötu 3c kl. *>.()() c.h. I . Mánudags
dcild 2. Tjarnargötu 5 kl. c.h. (). Ncsdeild.
Safnaóarhcimili Neskirkju kl. 9.00c.h. I..
AA-fundir
cru scm hcr scgir mánudaga. Mánudagsdcild Tjarnar
götu 3c 9 c.h. L. Langholtsdeild. safnaöarhcimili
Langholtssóknar 9 c.h. Unglingadeild. Frikirkjuvcgi
II 9 c.h. L. Hafnarfjaröardcild Austurgötu 10 kl. 9
c.h. L. Vcstmannaeyjar Hcimagötu 24 kl. 8.30 e.h. L.
AA-fundir
cru scm hcr scgir lauganlaga I angholtsdeild
Safnaöarhcim.liLangholtssóknat .1.1 Siódcgisdeild
Ijarnargntu 5 kl. 4 e.h. L. k'cnn.ideild N’ctrarf.
I jarnargötu 3c og Tjarnargötu 5 vurnarf. kl. * c h. L.
I.augardagskvöld Tjarnargötu 3u k|. 9c.h. L.
Jöklarannsóknafélagið
Ferðir sumarið 1978:
8. sept.: Farið í Jökulheima.
Upplýsingar á daginn I slma 86312, Ástvaldur, og
10278, Elli. Upplýsingar á kvöldin i síma 37392,
Stcfán.og 12133, Valur.
Þátttaka tilkynnist þremur dögum fyrir brottför.
íslenzka dýrasafnið
Jikólavörðustig 6b er opið daglega kl. 13— 18.
Kjarvalsstaðir
Sýning á verkum Jóhannesar S. Kjarval er opin alla
daga nema mánudaga. Laugardaga og sunnudaga kl.
14 til kl. 22. þriðjudaga til föstudaga kl. 16 til 22.
Aðgangur og sýningaskrá er ókcypis.
Listasafn
Einars Jónssonar
Opiðalla daga frá kl. 13.30 til kl. 16 nema mánudaga.
Helgi Þorgils
í Gallerí SÚM
Hclgi Þorgils Friðjónsson opnar myndlistarsýningu i
(iallcri SUM. Vatnsstig 3h. i dag. Sýningin vcrður
opin daglcga frá kl. 16—22 og lýkur 27. ágúst nk.
Hclgi svnir 19 vcrk i gallcriinu. scm sum hvcr cru i
niörgum hluturn. Það cru málvcrk og tcikningar.
stimplavcrk. grafik og bækur. I'lcst vcrkin cru unnin á
þcssu ári.
Frá Þjóðminja-
safni íslands
Á 19. öld, fram til þess er Islcndingar eignuðust sitt
eigið fomgripasafn var margt góðra muna sent til
Danmerkur að tilmælum fornleifanefndarinnar
Urðu þeir eign Þjóðminjasafns Dana i Kaupmanna
höfn. Eitt það fyrsta sem utan var sent var
refilsauniað tjald, svonefndur refill, frá Hvammi i
Dölum. Var það árið 1819. Er þetta eina tjaldið sem
varðveitzt hefur með refilsaumi. en af reflum mun
saumagcrðin draga nafn sitt.
í vor sem leið talaðist svo til að Þjóðminjasafn íslands
fengi að láni til sýningar tvosmábúta af refli þessum.
Ber að þakka forráðamönnum Þjóðminjasafns Dana
greiðasemina. Refilbútunum hefur verið komið fyrir i
púiti i sal nr. 5 i safninu og verða þeir þar til sýnis fram
eftir vetri. Er ánægjulegt til þess að vita að þessir
hlutir skulu vera komnir til íslanda aftur eftir langa
útivist. þótt aðeinssé umstundarsakir.
Húseigendafélag
Reykjavíkur
Skrifstofa félagsins að Bergstaðastræti 11 er opin alla
virka daga kl. 16—18. Þar fá félagsmenn ókeypis leið
beinn.gar um lögfræðileg atriði varðandi fasteignir.
Þar fást einnig eyðublöð fyrir húsaleigusamninga og
sérprentanir af lögum og rcglugeröum um fjölbýlis
hús.
Minningarkort
Flugbjörgunarsveitarinnar
fást á cftirtöldum stöðum: Bókabúð Braga.Laugavcgi
26. Amatörver/lunin. Laugavcgi 55. Húsgagnavcr/I.
(iuðmundar Hgkaupshúsinu. simi 82898. Sigurður
Waagc. simi 34527. Magnús Þörarinsson. simi 37407.
Stcfán Bjarnason. simi 37392. Sigurður Þorstcinvson.
sirni 13747.
Minningarkort
Hallgrímskirkju
í Reykjavík
fást i Blómaverzluninni Domus Medica. Egilsgötu 3.
Kirkjufelli. verzl. Ingólfssý-æti 6, verzlun Halldóru
Ólafsdóttur, Grettisgötu 26, Emi & örlygi hf. Vestur-
götu 42. Biskupsstofu, Klapparstig 27. og i Hallgrims
kirkju hjá Bibliufélaginuogkirkjuverðinum.
Minningarspjöld
Styrktarsjóðs vistmanna á llrafn
istu. DAS. last hjá Aöalumboðinu l)AS
Austurstræti. Guðimmdi Þörðarsyni. gullsmið.
Laugavegi 50. Sjömannafélagi Rcykjavikur. I.indar
götu 9. Tómasi Sigvaldasyni. Brckkustig 8. Sjömanna
félagi Hafnarfjarðar. Strandg(jtu 11 og Blömaskálan
um við Nýbýlavcgog Kársncsbraut.
Minningarkort
Styrktarfélags
vangefinna
fást i bókabúð Braga. Ver/lanahöllinni. bókaver/lun
Snæbjarnar. Hafnarstræti og i skrifstofu félagsins.
Skrifstofan tekur á móti samúðarkvcðjuni i sima
15941 og getur þá innhcimt upphæðina i giró.
Minningarspjöld
Félags einstæðra
foreldra
fást i Bókabúð Blöndals. Vesturveri. i skrifstofunni.
Traðarkotssundi 6, Bókabúð Olivers Hafnarfirði. hjá
Jóhönnu s. 14017. Ingibjörgu s. 27441 og Steindóri s.
30996.
Minningarkort
Styrktar og minningarsjöös Samtaka astma og
ofnæmissjúklinga fást á cftirtöldum stöðurn: Skrif
stofu samtakanna. Suðurgi)tu 10 s. 22153. og skrif
stolu SÍBS s. 22150. hjá Ingjaldi. simi 40633. hjá
Magnúsi. s. 75606. hjá Ingibjörgu. s. 27441. i sölu
búðrtini á Vifilsstöðum. s, 42800 og hjá (icsthciði s
42691.
Minningarspjöld Félags
einstæðra foreldra
fást i Bókabúð Blöndals. Vesturveri. i skrifstofunni.
Traðarkotssundi 6. Bókabúð Olivcrs Hafnarfirði. hjá
Jóhönnu s. 14017. Ingibjörgu S. 27411 ogSteindóri s.
30996.
Hörku-
áreksturá
mjórri brú
Harkalegur árekstur varð í gær á
brúnni hjá bænum Árdal skammt innan
við nýju Borgarfjarðarbrúna. Mættust
Willys Wagoneer og Fiat 127 á brúnni
og varð mætingin af fullri hörku.
Ekki er talinn vafi leika á að Fiat bíll-
inn er ónýtur eftir. Stúlka sem í honum
var sem farþegi skarst á höfði og missti
fingur. Piltur er bilnum ók lærbrotnaði
og skarst talsvert á höfði. Wagoneer-bif-
reiðin er mikið skemmd. Nokkra stund
tók að losa ökumann Fiatbifreiðarinnar
úr bilnum. Siðan voru hin slösuðu flutt
til Akraness. Ekki er fólkið talið í lifs-
hættu.
Þrjú önnur umferðarslys urðu í
Borgarfirði um helgina og meiðsli i
tveimur þeirra, en ekki alvarleg. - ASt.
Áttræður
er i dag Hermann Björnsson, frá Signýj-
arstöðum, Hjarðarhaga 33.
Cining Kl. 12.00 Kaup Sala
1 Bandaríkjadollar 259,80 260,40
1 Sterlingspund 506,75 507,95*
1 Kanadadollar 228,15 228,75*
100 Danskarkrónur 4757,15 4768,15*
100 Norskar krónur 4969,85 4981,35*
100 Sænskar krónur 5904,60 5918,20*
100 Finnsk mörk 6389,55 6404,35*
100 Franskir frankar 6006,95 6020,85*
100 Beig.frankar 832,70 834,60*
100 Svissn. frankar 15.769,35 15.805,75*
100 Gyllini 12.083,70 12.111,60*
100 V.-Þýzkmörk 13.114,70 13.144,90*
100 Lírur 31,24 31,32*
100 Austurr. sch. 1823,80 1828,00*
100 Escudos 574,80 576,10*
100 Pesetar 348,70 349,50*
100 Yen 138,08 138,40*
“Breyting frá síðustu skráningu.