Dagblaðið - 21.08.1978, Qupperneq 36
Neskaupstaður:
Maður fangelsaður
fyrír kvistbyggingu
Bæjarst jórinn gekk sjálf ur f málið en byggingaf ulltrúi kom þar ekki nærri
„Fyrst vildi ég ekki láta handtaka
mig nema skv. handtökuheimild frá
bæjarfógeta en er lögreglumennirnir
komu aftur með þau skilaboð að slikt
þyrfti ekki fór ég með góðu með þeim
og var lokaður inni i fangaklefa frá kl.
16 til 21.30 gegn þvi loforði að
aðhafast ekkert frekar í nótt og spara
embættinu bakvakt mín vegna," sagði
Pétur Óskarsson byggingameistari,
Egilsbraut 9 á Neskaupstað, í viðtali
við DB i morgun.
Tildrög þessa rnáls voru þau að
Pétur hugðist lyfta hluta af þaki húss
síns til samræmis við hinn hluta þess.
Slik leyfi hafa verið veitt á staðnum,
en einhverra hluta vegna fær Pétur
það ekki þrátt fyrir itrekaðar tilraunir.
Þar sem þessi hluti þaksins er orðinn
lélegur, beið Pétur ekki lengur eftir
leyfi til endurbyggingar þess með
áðurnefndum breytingum.
Að sögn Péturs, var það bæjarstjóri
sjálfur, en ekki byggingafulltrúi, sem
fór fram á handtökuna, og linnti hann
ekki látum fyrren Pétur var kominn á
bak við lás og slá. Að sögn Péturs gekk
hann svo langt að brigzla bæjarfógeta
um að vera i vitorði með Pétri en
fógeti vildi ekki strax ráðast i hand-
tökuna. Er Pétur talaði við DB í
morgun var hann ekki byrjaður að
nýju á framkvæmdinni en var að
kanna stöðu sína.
-G.S.
Hvaðeraðtarna?
Spilverkið á floti. Ekki þótti Valgeiri Guðjónssyni vogandi að sleppa alveg sambandinu viö „meginlandið”. Það er hann sem rígheldur 1 planka en Sigrún Hjálmtýsdóttir
ogSigurðurGarðarsson horfa á. . ......
DB-mynd Ari Kristinsson.
LANDIÐ FYLGIR FORDÆMIGJALDMIÐILSINS
Trióið vinsæla, Spilverk þjóðanna,
brá sér á flot á Reykjavikurtjörninni i
blíðskaparveðri í gær. Tilefnið var
nokkuð stórt; þremenningarnir hafa
lokið upptökum á fimmtu hljómpiötu
sinni. Og til að minna á nafn nýju
plötunnar, tsland, var fleki Spilverksins
að sjálfsögðu hafður eins og gamla
landið í laginu.
Fróðir menn, sem hlustað hafa á
nýjasta afrakstur Spilverks þjóðanna.
segja að ísland sé hreint og beint frábær
plata. Ætlunin var að bjóða fólki að
hlýða á plötuna i Iðnó í gær en tilskilin
leyfi bárust ekki i tæka tíð. Það verður
þvi að bíða betri tima.
Talsverður mannfjöldi safnaðist að
Tjörninni í gær til að fylgjast með
siglingu Spilverksins. Einhverjir i hópn-
um höfðu á orði að landið hefði nú fylgt
fordæmi gjaldmiðilsins, krónunnar, og
brugðið sér á fiot.
-ÁT-
Skákmenn Flugleiða: ] Heimsmeistarar!
Flugleiðir sigruðu i 1. þeims-
meistarakeppni flugfélaga sem haldin
var i Rio de Janeiro 9. til 12. ágúst.
Teflt var í þriggja manna sveitum eftir
Monrad-kerfi, sex umferðir, en hver
skák tók eina klukkustund. Alls tóku
þátt í mótinu sveitir frá fjórtán flug-
félögum víða að úr heiminum en Flug-
leiðasveitinni tókst að bera sigurorð af
öllum sinum keppinautum, hlaut tólf
og hálfan vinning, en næst komu
Swissair, Lufthansa og Varig, með ell-
efu og hálfan vinning en stigatala réð
röðinni.
Sveit Flugleiða skipuðu þeir Hörður
Jónsson, sem tefldi á fyrsta borði,
Hálfdán Hermannsson og Andri
Hrólfsson, sem tefldu á 2. og 3. borði.
Við náðum tali af Herði Jónssyni
skömmu eftir heimkomuna í fyrradag:
„Ferðin tókst mjög vel i alla staði hjá
okkur. Við flugum til New York og
þurftum ekki að bíða þar nema i tvo
daga eftir að komast til Ríó — mest
fyrir atbeina Baldvins Berndsen,
stöðvarstjóra í New York, sem sýndi
fádæma lipurð í sambandi við ferð
okkar. Ekki er það sama að segja um
ferðir hinna skáksveitanna sem þurftu
að fara ótal krókaleiðir, á frímiðunum.
til að ná áfangastað og sumir komust
ekki alla leið í tæka tið. Fjögur félög
misstu af keppninni af þeim sökum.”
Hörður sagði framkvæmd mótsins
hafa verið í alla staði til fyrirmyndar
— skákmönnum tekið eins og konung-
bornu fólki og eiginkonum þeirra sem
voru einnig með í förinni. Lögð var
áherzla á að hafa mótið ekki of
strembið svo að menn gætu slakað á,
farið í sólbað og sund. Að sigurlaun-
um fékk Flugleiðasveitin stóra marm-
arastyttu, en auk þess fengu þremenn-
ingarnir, hver um sig, tvo verðlauna-
peninga. Mótsstjóri var Gustaf
Rodeck, formaður skákklúbbs Rio de
Janeiro-borgar og gerði hann Flug-
leiðasveitina jafnframt að heiðurs-
félögum klúbbsins. Dómari mótsins
var Felix Sonnenfeld, eini alþjóða-
dómarinn í Suður-Ameríku, og stóð
hann sig með miklum ágætum.
-etnm
fhugkiðasveitin sem sigraði f heimsmeistarakeppni
flugfélaga, ásamt mótsstjóra, sem afhenti þeim
sigurlaunin, marmarastyttu med videigandi skrauti.
Talið frá v. Hálfdán Hermannsson, Hörður Jóns-
son, Gústaf Rodeck mótstjóri og Andrí Hrólfsson.
Myndin er tekin á Inter-Continental hótelinu en á
þeim glæsilega stað var mótið haldið.
Irjálst, óháð daghlað
MÁNUDAGUR 21. ÁGÚST 1978,
Landbúnaðarsýningin:
Opnuðí
gærmeð
rafmögn-
uðu
hanagali
— gestirnir urðu alls
71247
Rammíslenzkt hanagal rauf morgun-
kyrrðina á Selfossi í gærmorgun og vakti
til siðasta dags landbúnaðarsýningarinn-
ar. Hanagalið var tekið á segulband og
varpað út i magnara. „Nautin voru i ein-
hverri fýlu svo það fékkst ekki hljóð úr
þeim þegar til átti að taka,” sagði
Sigurður Jónsson, blaðafulltrúi sýning-
arinnar, í viðtali við DB i morgun.
„Hér eru allir mjög ánægðir. Engin
óhöpp urðu á þessari miklu sýningu.
Aðsókn var góð. Þegar lokað var kl.
23.00 i gærkvöldi höfðu 71.247 manns
séð sýninguna. Ekki var Ijóst i morgun
hvort tekjur af miðasölu, happdrættum
og veitingum standa undir miklum
kostnaði við Landbúnaðarsýninguna
1978,” sagði Sigurður.
Forstöðumenn eru þakklátir öllum
þeim sem lögðu hönd að verki við sýn-
inguna og gestum fyrir ánægjulega um-
gengni og þátttöku," sagði Sigurður.
- BS
71árs
einbúa
leitað und-
an Barða-
strönd
— fór einn á sjó, bátur
hans fundinn rekinn
íHeiðnarey
Mikil leit hefur verið gerð að Jóni
Guðmundi Jónssyni sem bjó einn sins
liðs að Deildará á Múlanesi á Barða-
strönd. Fór hann til sjós að því er talið er
á föstudagsmorgun en kom ekki að landi
á eðlilegum tíma.
Á sunnudagsmorguninn hófst leit að
Jóni Guðmundi og nokkru síðar fann
vél frá Landhelgisgæzlunni bát i fjöru
við Heiðnarey á Breiðafirði, sem er all-
miklu innar en Múlanesið. Reyndist
þetta vera bátur Jóns.
Leitað hefur verið mjög grannt i
Heiðarey og froskmenn hafa kannað
botnssvæði umhverfis bátinn án árang-
urs. Slysavarnafélagsmenn á Barða-
strönd og félagar þeirra á Patreksfirði
hafa og leitað á stóru svæði án árangurs.
Jón Guðmundur var 71 árs að aldri.
Bátur hans var um eitt tonn að stærð og
með utanborðsvél.
- ASt.
? Kaupið®l
TÖLVUR
OGTÖLVyUR “
BANKASTRÆTI8
27^