Dagblaðið - 09.09.1978, Side 3
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 1978.
SNYRTAR OG SNYRTI-
SERFRÆÐINGAR
— Athugasemd við
grein í DB 25.8. sl.
Vegna greinar í Dagblaðinu þann
25. 8. 1978 um nýútskrifaða snyrta vil
ég biðja um leiðréttingu á því sem
haldið er fram i greininni. Nefnilega
„að snyrtisérfræðingar hafi aðeins
hlotið bóklega menntun i líffærafræði
en enga aðra bóklega menntun.” Þetta
er alrangt því allir snyrtisérfræðingar
hafa hlotið bóklega menntun í fleiri
greinum, mismunandi mörgum eftir
því hvar þær hafa hlotið sína
menntun. Stór hluti félaga i FÍSS
Ifélagi íslenzkra snyrtisérfræðinga)
hafa stundað nám sitt erlendis í viður-
kenndum skólum en þær sem hafa
lært á íslandi hafa lært á snyrtistofum
og fullnægt þeim lágmarkskröfum sem
FÍSS hefur sett um bóklegt nám.
Um afstöðu FÍSS til nýútskrifaðra
snyrta úr Fjölbrautaskólanum i Breið-
holti langar mig f.h. FÍSS að koma
eftirfarandi á framfæri.
Þess var farið á leit við FÍSS að hafa
samstarf við skólann um kennslu i
snyrtingu. Samþykktum við það með
ánægju þvi erfitt er um vik að taka
nema á stofur vegna aðstöðuleysis til
að veita fullngæjandi bóklega kennslu.
Þar sem FÍSS hefur barizt fyrir bættri
menntun þeirra sem starfa við snyrti-
störf fannst okkur þetta mjög jákvætt.
Að beiðni Menntamálaráðuneytis var
tillaga að námsskrá fyrir snyrtisér-
fræðinga gerð. Voru þar hafðar til
hliðsjónar alþjóða reglur varðandi
nám snyrtisérfræðings, en FÍSS er
aðili í alþjóðlegu félagi snyrtisér-
fræðinga, Cídescó. FÍSS tók siðan að
sér að,sjá um verklega kennslu i
snyrtingu við Fjölbrautaskólann i
r
Bjössi á mjólkurbilnum.
Bflvísur
(Lag:
Enginn ,
grætur Is-
lending...)
Bílakaup ráðhera hafa verið mjög til
umræðu og nú hefur heyrzt að nýju
ráðherrarnir ætli að afsala sér þessum
fríðindum. Hér sjáurn við Halldór E.
Sigurðsson. fyrrverandi sam-
gönguráðherra, stíga út úr glæstum
vagni sinum.
Ráöherrann cr stór I stíl
stendur margur efins.
Gott er að eiga úrvals bil
einkum næstum gefins.
Bílnum hæfir herleg brú
helzt á kunnum firði
Ekki spillti yrði sú
einnar Kröflu virði.
Nýútskrifaðir snyrtar snyrta Dóru Stefánsdóttur, blaðamann Dagblaðsins.
DB-mynd Ragnar Th. Sig.
Breiðholti. Kennslan hófst án þess að
viðunandi aðstaða hefði verið sköpuð
við skólann. Á þvi áttu fljótlega að
verða breytingar, en þegar timinn leið
án þess að nokkuð væri gert í að út-
vega tæki eða að lagfæra aðstöðu til
verklegrar kennslu, sáum við okkur
ekki fært að veita fullnægjandi verk-
lega kennslu á staðnum. Hættuin við
þvi af þeim orsökum kennslu við
skólann. Tóku þá fegrunarsér-
fræðingar við kennslunni og hafa
eflaust gert sitt bezta miðað við
aðstæður. Þegar stúlkurnar útskrif-
uðust í vor var ákveðið á fundi hjá
FÍSS að ef þær sæktu um inngöngu í
FÍSS þá fengju þær inngöngu með
þeim skilyrðum að þær þyrftu að bæta
við sig 6 mánaða starfsreynslu til að
geta starfað sem fullgildir meðlimir
FÍSS. En að mati FÍSS hafa þær rnjög
góða bóklega menntun en of litla verk-
lega reynslu.
Ég veit ekki til að nein þeirra hafi
sótt um inngöngu í FÍSS. en
einhverjar niunu hafa kynnt sér þessa
afstöðu og þótt hún óaðgengileg. Ég
reikna með að stúlkurnar eigi eflir að
koniasl að því að starfsreynslan er
mikilvægasti þátturinn i nántinu. Ég
óska nýútskrifuðum snyrtum góðs
gengis i starfi sínu og vonast til að við
mætumst einhvers staðar þegar um er
að ræða málefni sem varða okkar fag.
Revkjavik, 5. sept. 1978
Gunnhildur Gunnarsdóttir
form. Félags ísl. snyrtisérfræðinga.
Raddir
lesenda
FATAMARKAÐUR
FYRIR ALLA
í LAUGARDALSHÖLL
Nú gefst einstakt tœkifœri til að gera góð fatakaup
á sérstökum fatamarkaði á FÖT ’78.
Glœsileg tízkusýning kl. 18 og 21.
Snyrti- og hárgreiðslusýningar kl. 17.30 og kl. 20.30.
Fjölbreyttur fatamarkaður fyrir alla.
Aðgangsverð kr. 700.- (fullorðnir) kr. 300.- (börn)
ÍSjENSK
FOT/78
Stórglœsileg sýning, sem þú verður að sjá.
Spurning
dagsins
Hvað finnst þér um
afnám á bílafríðind-
um ráðherra?
Benedikt Steingrlmsson, vinnur hjá
Rafmagnseftirlitinu: Mér finnst alveg
sjálfsagt að afnema þau. Mér finnst þeir
alveg geta keypt sér sina bíla eins og
hver annar skattborgari.
Halldór Sigurðsson bilstjóri: Það cr
stórfint að þeir skuli ætla að gera það.
Svoleiðis á það að vera. Þeir ættu ntiklu
frekar að fella meira niður af okkar
bilum.
Sverrir Kristinsson, vinnur i
blikksmiðju: Mér lízt vel á það. Mér
finnst ekki sanngjarnt að þeir fái svona
friðindiframyfiraðra.
Björn Sigurjónsson bilstjóri: Mér finnst
það sjálfsagt að þeir felli það niður. Þeii
hafa ekki meiri rétt á því en hver annar.
Pétur Björnsson flutningabílstjóri: Mér
finnst skilyrðislaust að það ætti að
afnema þessi bílafriðindi sem þeir hafa
haft. Þeir geta keypt sína bila eins og
hver vinnandi maður og borgað öll gjöld
af þeim.
Steindór Björnsson biistjóri: Mér lízt
bara mjög vel á þá hugmynd. Þeir hafa
það góðar tekjur að þeir hafa vel efni á
því að fá sér eins og einn bíl án þessara
friðinda.