Dagblaðið - 09.09.1978, Side 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 1978.
5.
....”
Sambandsfyrirtæki
og Flugleiðir:
Skiptast
á hluta-
bréfum
Þrjú Sambandsfyrirtæki, Olíu-
félagið hf., Olíustöðin i Hvalfirði
hf. og Reginn hf.. hafa nýlega
keypt hlutabréf í Flugleiðum hf.
fyrir 25 milljónir króna. Var
gengið frá þessum kaupum um leið
og Flugleiðir keyptu meirihluta
hlutafjár í Arnarflugi en fyrr-
nefnd Sambandsfyrirtæki seldu þá
Flugleiðum 25 milljón króna
hlutabréf, sem þau áttu í Arnar-
flugi, en fengu í staðinn 25 miiljón-
ir króna í Flugleiðum.
GM.
Sjómenn
lysa yf ir
stuðningi
við endurskoðun
vísitölunnar
Fundur stjórnar og formanna
santbandsfélaga Farmanna- og
fiskimannasambands Islands hefur
lýst yfir stuðningi við yfirlýsingu
rikisstjórnarinnar um að núver-
andi visitölukerfi verði tekið til
endurskoðunar og lýst yfir áhuga á
að taka þátt i umræðum um það
mál.
Fundurinn mótmælti harðlega
„áformum ríkisstjórnarinnar að
binda með lögum alla kjarasamn-
inga til 1. desember 1979, að
öðru en verðbótum og í þeim
sumum tilfellum skertum,” segir í
bréfi til forsætisráðherra, Ólafs
Jóhannessonar.
Ennfremur: „Fundurinn Iýsir
furðu sinni og hneykslan á því, að
samtökum sjómanna skuli ekki
hafa verið boðið til þeirra
viðræðna, sem staðið hafa milli
rikisstjórnarflokkanna og fulltrúa
sumra launþegasamtaka í landinu,
um ráðstafanir i kjara-
málum....Fundurinn vill benda á
hina algjöru sérstöðu sjómanna: í
kjarasamningum þeirra eru engin
ákvæði um skilgreiningu vinnu-
tíma og þvi enginn afmarkaður
dagvinnutími né heldur skilgreind
álög eins og vaktaálög. Hljóta því
samtök sjómanna að krefjast þess
að fullt tillit sé tekið til sérstöðu
þessara manna við ákvörðun verð-
bóta,” segir í samþykkt fundar
stjórnar og formanna sambands-
félaga Farmanna- og fiskimanna-
sambands íslands.
^^rLHaUs^
* ......... '
Ljósmynda-
samkeppnin
Frestur til að skila myndurn i
Ijósmyndasamkeppni Dagblaðsins,
Sumarmyndin ’78, er út þennan
mánuö. Þá verður gengið til dóm-
nefndarstarfa. Sigurvegarinn fær
að iaunum frábæra myndavél,
Canon A-l, sem er fuil af
nýjungum.
Steypubflar Breiðholts hf.
í dag kl. 13.30 fyrirhugar borgarfógeti
uppboð á nokkrum bifreiðum í eigu
Breiðholts hf. Gjaldheimtan í Reykjavik
er með lögtak í þeim flestum en fyrir-
tækið skuldar Gjaldheimtunni sennilega
á annað hundrað milljónir samtals.
seldir i dag?
„Sorglegt ef þetta fer ekki á neitt”
— segir Sigurður Jónsson forstjóri
Breiðholt hf. hefur átt í mjög alvar-
legum greiðsluerfiðleikum að undan-
förnu og hefur öll starfsemi fyrirtækisins
verið lömuðum hríð.
Á uppboðinu i dag verða seldir fimm
steypubílar, einn steypudælubíll, einn
vörubíll og ein grafa. Uppboðið fer fram
í Vökuportinu.
„Það er sorglegt ef þetta fer á ekki
neitt,” sagði Sigurður Jónsson, forstjóri
Breiðholts hf„ í samtali við DB. Hann
kvaðst vona að mál fyrirtækisins snerust
brátt á réttan veg og ekkert yrði af
uppboðinu í dag. Að undanförnu hefðu
staðið yfir samningaviðræður við stjórn
Verkamannabústaða í Reykjavík um
fyrri samskipti þessara aðila en Sigurður
sagðist ekki vita hvenær eða hvernig
þeim lyki.
Sigurður Jónsson sagði að ákveðnir
aðilar hefðu sýnt áhuga á að kaupa
steypustöð Breiðholts hf„ en vildi ekki
skýra frá hverjir það væru. Hann sagði
að ekki væri lengur um að ræða þá aðila
sem fyrr hafa verið nefndir í þessu
sambandi, þ.e. Gunnar Guðmundsson
hf. og eigendur Scanhouse.
GM.
Steypubílar Breiðholts hf. biða uppboðsins i Fifuhvammi i Kópavogi. Þegar fyrirtækið komst i hina alvarlegu rekstrar-
erBðleika var þeim lagt. DB-mynd Ragnar Th.
Skóverzlun Axels Ó, Laugavegi 11 — Sími 21675
Þetta eru ekki Bjarnastaðabcljurnar
heldur Egilsstaðabeljurnar sem þarna
hafa étið sig belgfullar af einhverju
vöxtulegasta fóðurkáli sem blm. DB og
Ijósmyndari hafa augum litið. Kýrnar
hurfu i bókstaflegri merkingu þegar þær
löbbuðu hægt og rólega inn i fóðurkáls-
breiðuna. Þegar þær höfðu gætt sér á
safariku kálinu lögðust þær á meltuna.
Þessar sældarlegu kýr tilheyra Egils-
staðabúinu, sem er félagsbú og stundar
mikla nautgriparækt.
Svart, brúnt
í Canvas
kr. S8SO.
Beigehvítt rúskinn
ogsvartlakk
kr. 12.850.-
Hvrttleður
ogsvartiakk
kr. 8940.-
DB-mynd Bjarnleifur.
EKKIÞÓ BJARNASTAÐABEUURNAR?