Dagblaðið - 09.09.1978, Page 9
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 1978.
af 15 mögulegum er svo sannarlega of
lítið fyrir stórmeistara.
Mark Tajmanov hafnaði í 4. sæti og
sannaði þar með, rétt eins og
Bronstein, að aldur skiptir ekki máli í
skák. Hér sjáum við eitt sýnishorn af
tafl mennsku hans:
Hvitt: Lars Aake Schneider
Svart: Mark Tajmanov
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rc6
Tajmanov afbrigðið!
5. Rc3a6 6. Bf4
Algengari leikir eru 6. Be2 og 6. g3.
Hvítur reynir hins vegar að slá hinn
reynslumikla andstæðing sinn út af
laginu.
6. —d6 7. Rf3 b5 8. Dd2Ha7l?
Óvenjulegur leikur svo snemma
tafls, en svartur undirbýr að valda d-
peðið.
9.0-0-0 Hd7 10. g4?!
Stórmeistarinn hefur enn ekki gefið
sér tíma til að skipa út liði á kóngs-
vængnum og ekki er að sjá að honum
takist það i nánustu framtíð. Með síð-
asta leik sínum býr hvítur sig nefnilega
undir að reka alla þá menn á flótta,
sem dirfast fram á völlinn. Þessi fram-
rás er þó vafasöm, eins og framhaldið
leiðir i ljós.
10. — Da5 11. Kbl Rf6! 12. g5 b4 13.
Re2
Einmitt það sem fyrir hvitum vakti.
Hann fórnar e-peðinu, en fær í staðinn
sterka sókn gegn svarta kónginum,
sem ekki á i nein hús að venda. En
Tajmanov kærir sig kollóttan, enda
kemur fljótlega í ljós, að hann hefur
reiknað lengra en andstæðingurinn.
13. - Rxd4! 14. De3 d5 15. Rfd4
Rxd4 16. Rxd4 Bd6! 17. Bxd6 Rxd6
Ekki 17. — Hxd6 18. f3 Rc5 19.
Rf5! Hvitur verður nú að bregðast
hart við, þvi takist svörtum að hróka
er ekki að sjá að hvitur hafi bætur
fyrir peðið.
18. Rxe6?! fxe6 19. Dxe6+ Kd8 20.
Hxd5
Ógæfuleg staðsetning svarta kóngs-
ins virðist gefa hvitum næg færi fyrir
manninn. Eflaust hefur Schneider
talið að svartur yrði nú að leika 20. —
He8, sem hann myndi svara með 21.
Hxa5 Hxe6 22. Bh3 og hvítur hefur
tvö peð fyrir skiptamun I endataflinu.*
En margt fer öðruvísi en ætlað er...
20. — Dxd5! 1
Þar lá hundurinn grafinn. Vegna
mátsins i borðinu vinnu svartur fljót-
lega hinn hrókinn líka og hefur þá
meira en nóg lið fyrir drottninguna.
21. Dxd5 Rb5 22. Df3 Bb7 23. Dg4
Bxhl 24. Bh3 Bc6 25. a4 bxa3 frhl.
26. Df4 Hb7 27. bxa3 Rc3 +
Hvitur gafst upp. Hann tapar
drottningunni eða verður mát.
Að lokum sjáum við hvernig
sovézki stórmeistarinn Lutikov fór
með yngsta keppanda mótsins:
Hvítt: A. Lutikov
Svart: Z. Lanka
Kóngsbragð
1. e4 e5 2. f4 Bc5 3. Rf3 d6 4. fxe5
dxe5 5. c3 De7?!
Betra er 5. — Rf6
6. d4! exd4 7. cxd4 Bb6
Ekki 7. — Dxe4? 8. Kf2! og hótunin
9. Bb5+ ásamt 10. Hel ræður úrslit-
um.
8. Rc3 Bg4 9. Da4+ Rd7 10. Bg5 f6
11. Bf4 Rh6
Nú lendir svartur í erfiðleikum.
Skömminni skárra var 11. 0-0-0, þó
svartur hafi eftir sem áður erfitt tafl.
12.0-0-0 Rf7 13. Rd5 Dd8 14. Da3!
Svartur á greinilega ekki að fá að
hróka í þessari skák!
14. — c6 15. Re3 Be6 16. Rf5!
Hótar 17. Rxg7+ og mát! Svar
svarts er þvingað, því eftir 16. — Bxf5
17. exf5, er hótunin 18. Hel + mjög
óþægileg.
16. — Hg8 17. Bd3 Rf8 18. Hhel Bc7
19. Bxc7 Dxc7 20. e5 g6
Takist svörtum að hrekja þennan
riddara á brott er mesta hættan liðin
hjá. Auk þess hefur hvítur tækifæri til
að falla í djúphugsaða gildru: 21. exf6?
gxf5 22. Bxf5 Df4+ og biskupinn
fellur. Samt sem áður fórnar hvitur
riddaranum!
21. g4!
Svartur er nánast^ neyddur til að
þiggja fórnina, þvi 21. — 0-0-0 er
svarað með 22. Re7 + og hrókurinn á
g8 fellur.
21. — gxf5 22. gxf5 Bd5 23. exf6 +
Kd8 24. De7 + !
Ef nú 24. — Kc8, þá 25. Hgl! og
staða svarts er í molum. Svartur
verður því að skipta upp á drottning
um, en tapar þá manninum aftur og
væntanlega líka endataflinu, sem
fylgir.
24. — Dxe7 25. fxe7+ Ke8 26.
exf8D+ Kxf8 27. Re5 Hg2 28. Rd7 +
Kg7 29. He7
Sókn hvíts hefur síður en svo fjarað
út, þrátt fyrir drottningakaupin.
29. - h5 30. h4 Kh6 31. Re5 Hf8 32.
Rg6 Hc8 33. Rf4 Hg4 34. Re6 Rd6 35.
f6 Re4 36. f7
og svartur gafst upp.
„ÞEIR VITA ALLT UM HELVÍTI
— ÞEHtHAFA VERIÐ ÞATV’
—spjallað við dr. Pirro um lífið og alkóhólið
kemur á skemmtistaði. Ef látið er
undan er haldið áfram að þrýsta á eitt
og eitt glas i viðbót. En i rauninni er
það þannig að fólk lætur ekki þrýsta
sér nema til þess sem það langar að
gera hvort sem er.
Tökum dæmi. Þú kemur á skemmti-
stað og menn byrja að suða í þér,”fáðu
þér nú eittglas,” og þú lætur undan.
En svo kemur upp að kynlífssvall
verður haldið út í bæ eftir ballið. Og
þá er ekkert i heiminum sem gæti
fengið þig til að fara. Hversu mikinn
þrýsting sem menn leggja á þig ferðu
ekki. Þó að þrýstingurinn sé mun
meiri en á það að þú fáir þér eitt glas.
Þegar menn fara út að skemmta sér
ætla þeir að fá sér vin. Og þeir hlakka
til þess og flestir njóta þess. En svo er
ekki með alkóhólista. Þeir geta aldrei
látið eitt glas nægja. Þeir drekka
fjögur, fimm, sex og svo framvegis þar
til þeir eru útúrdrukknir. Ég hef
ekkert, alls ekkert, á móti því að fólk
drekki. Ef það er ekki alkóhólistar.
Einn af hverjum tíu sem drekka er
alkóhólisti. Hinir niu mega drekka
eins og þeir vilja. En bara ekki þessi
tíundi.”
Þú varst ekki
svona illa haldinn
„Það versta er held ég þegar fólk
segir við þá sem koma frá Freeport
„Þú varst nú ekki svona illa haldinn”.
En láttu þá vita það. Þeir hafa verið í
helvíti og vita betur um þann stað en
fólk sem hefur ekki komið þar inn.
Þeir vita að þeir voru „svona illa
haldnir” og jafnvel enn verri en það.
Þó þeir hafi aldrei lagzt í strætið
sannar það ekkert. Aðeins 3% af
öllum alkóhólistum leggjast I strætið.
Hinir eru húsmæður, prestar, læknar,
-
lögfræðingar og allir hinir. Menn
koma alltaf með fáránlegar athuga-
semdir þegar þeim er bent á að þeir séu
alkóhólistar. Eins og „ég get ekki verið
alkóhólisti, ég er læknir, eða prestur
eða hver veit hvað”. Bezta afsökunin
sem ég hef þó heyrt og hana hef ég
hvergi heyrt nema á Islandi er: „Það
er ekki ég sem drekk. Það er andi innra
með mér.” Allt má nú segja manni.”
DS.
„ „Það er ekki ég sem drekk heldur
andi innra með mér,” bezta afsökun-
in.”
Hvers vegna æ fleiri munu ferðast
til Filippseyja og Thailands
Þar er ýmislegt markvert aö skoöa — meðal
annars hina sögufrægu borg Manila með hinum
spánska bakgrunni og 20. öldina í Makati rétt við
hliðina, eldfjallagígurinn í Týndadal þar sem
baðast er í jarðhituðum laugum, spennandi báta-
ferðir um gljúfur Pagsanjan-fossasvæðisins og
hinn dýrlegi hitabeltisgarður Punta Balurte,
musteri og borgarsýki Bangkok að ekki sé
talað um múnaðinn allan á Pattaya-strönd.
Nútímalegt en ósnortiö — alþjóðleg hótel (gædd
litauðgi landanna beggja) ódýrar samgönguleiðir
með vögnum, einkabílum, áætlunarbílum, nætur-
klúbbar, sannkallað fjör (allir geta dansað eftir
hljómfalli okkar Filippseyinga), samt er allt svo
ósnortið. Þægindi vestursins ásamt austrænu
andrúmslofti. Slíkt er ekki auðvelt að finna nú til
dags.
Austrið er ekki dýrt — Drykkur á hótelinu, að
borða úti, leigubílar, minjagripir, og svo allt þetta
aukalega, allt svo ódýrt að það verður næstum
ánægjulegt að eyða peningum....Nokkuð sem
ferðamenn í öðrum löndum eru löngu búnir að
gleyma.
Undirritaður vill gjarnan heyra meira um hin fjarlægu austurlönd,
Filippseyjar og Thailand. Vinsamlegast sendið upplýsingar til:
Nafn:
Heimili:
Sendið til Philippine Airlines, 10 Collingham Road, London SW5
®Philippine Airlines
tvisvarívikufrAevrOpu