Dagblaðið - 09.09.1978, Page 10
10
MfíBIABIÐ
Útgefandi: DagblaAWThf.
Framkvœmdastjórí: Sveinn R. Eyjólfsson. Ritstjóri: Jótias Krístjínssoiv
Fréttastjóri: Jón Blrgs Pétursson. Rrtstjómnrfultrúi: Hsukur Htrigason. Skrifstofustjóri ritstjómar
Jóhannes ReykdaL iþróttir Halur Slmonarson. Aóstoíarfréttostjófar Atii Stoinersson og Omai
Valdimarsson. Handrit: Ásgrimur Póisson.
'Blaðamenn: Anria Bjámason’ Ás^eirT ómassön, Bragi Sigurösson, Dóra Stefánsdóttir, Gissur SigurAs-
son, Guðmundur Magnússon, Hattur Haisson, Helgi Pétursson, Jónqs Haraldsson, Ólafur Geirsson,
Ólafur Jónsson^ Ragnar Lár., Ragnheiður Kristjónsdóttir. Hönnun: Guöjón H. Pélsfon.
Ljósmyndir Ari Kristinsson Ámi Péll Jóhannsson, Bjamleifur Bjamleifsson, HöröUr VHhjólmsson,-
Ragnar Th. Sigurösson, S veinn Þormóössdn.
Skrifstofustjóri: Ólafur Eyjótfssöri. Gjaldkeri: Þréinn Þorieifsson. Sökistjóri: Ingvar Sveinsson. Dreifing-
arstjóri: Mér E.M. Halldórsson.
Ritstjóm Síöumíila 12. Afgreiðsla, éskriftadeHd, auglýslngar ogskrifstbfur Þverhohi 11.
Aöalsími blaðsins er 27022 (10 línur). Áskrift 2000 kr. é ménuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið.
Setning og umbrot Dagblaðið hf. Síðumúla 12. Mynda- og plötugerö: Hilmir hf. Síöumúla 12. Prentun:
Áp/gkur hf. Skerfunni 10. —
Lotakratanna
Stjórnarliðar hafa barizt hart undan-
farna daga. Minnstu munar, að stjórnar-
samstarfið splundrist. Síðustu lotu lauk
þó án sprengingar — með sigri kratanna.
Sá sigur kann að verða skammvinnur.
Fleiri lotur munu brátt koma í þessum
innbyrðis átökum.
Margir hinir yngri þingmenn Alþýðuflokksins hafa
eftir kosningar viljað láta taka kosningaupphrópanir
sínar alvarlega. Þeir töluðu fyrir kosningar um „nýtt
kerfi”, meðal an'nars í efnahagsmálum. Sumir þeirra hafa
að kosningunum loknum haldið áfram að tala um „nýtt
kerfi”.
Þessir menn greiddu annaðhvort atkvæði gegn
stjórnarsamstarfinu, samþykktu það með fyrirvara eða
dröttuðust með, hangandi hendi. Þeir sáu, að sú stjórnar-
stefpa, sem fyrir lá um aðgerðir til skamms tíma, boðaði
engar breytingar á kerfinu. Verðbólgan mundi halda
áfram skeiði sínu og verða 50—60 af hundraði, þegar á
liði næsta ár. í efnahagsmálum stefndi hvarvetna í sama
sukkið og kjósendur voru að hafna með því að kjósa
nýja menn.
Framsóknarflokkurinn var sáttur við þetta ástand.
Meginmarkmið hans var að afhjúpa þessa nýju þing-
menn Alþýðuflokksins, láta þá kyngja bitanum, svo að
þeir yrðu þægilegir viðureignar í næstu kosningum, sem
geta orðið fljótlega.
Alþýðubandalagsmenn voru í grundvallaratriðum
fylgjandi uppbóta- og haftakerfi.
A flokksstjórnarfundi Alþýðuflokksins, þar sem
stjórnaraðild var samþykkt, þótti mörgum nokkru
skipta, að varaformaður flokksins sagðist hafa loforð
alþýðubandalags- og framsóknarmanna fyrir endur-
skoðun vísitölukerfisins fyrir l. desember, þannig að
dregið yrði úr skrúfugangi kaupgjalds og verðlags. Þetta
réði afstöðu sumra þeirra til ríkisstjórnarinnar, meðal
annars þingmannanna Árna Gunnarssonar og Jóhönnu
Sigurðardóttur.
Þegar til kom, vildu forystumenn Alþýðubandalags
ekki standa við nein slík munnleg loforð, vafalaust gefin
til þess eins, að stjórnarmyndunin strandaði ekki á
síðustu stundu. Lúðvík Jósepsson, formaður flokksins,
var fljótur að segja, að kratar hefðu engin loforð fengið.
Ekki yrði tekið neitt tillit til slíkra óska þeirra.
Svavar Gestsson viðskiptaráðherra sagði í viðtali við
Dagblaðið, að hann sæi ekki, að endurskoðun visitölu-
grundvallar gæti orðið fyrir fyrsta desember. Sama sagði
Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verkamanna-
sambandsins, í viðtali í Tímanum.
Vafalaust hefðu Benedikt Gröndal og aðrir ráðherrar
Alþýðuflokksins ekki gert mikið veður út af þessu máli,
ef ungkratarnir hefðu ekki sótt á með hörku.
Á þingflokksfundi Alþýðuflokksins í fyrradag knúðu
ungliðarnir á og sendu ráðherra sína nokkuð klökka á
ríkisstjórnarfund til að krefjast þess, að við loforðin yrði
staðið. Þessu fengu þeir framgcngt eftir mikil átök í ríkis-
stjórninni.
Alþýðubandalagsmenn ætla auðvitað ekki að láta
alþýðuflokksmenn njóta þessa sigurs. Sem fyrr munu
svikráðin einkenna vinstri stjórnina. Alþýðubandalags-
menn bíða góðs tækifæris til að koma höggi á Alþýðu-
flokksmenn í staðinn.
Eftir er að sjá, að eitthvað marktækt komi út úr
tilraunum til endurskoðunar á vísitölugrundvellinum,
sem væntanlega verður nú í ráðizt. Ekki er ólíklegt, að
önnur lota eigi eftir að verða háð um það mál í þessari
hnefaleikakeppni stjórnarflokkanna.
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 1978.
V-ÞYZKALAND:
JONAS
HARALDSSON
Uwe Holtz, sá þingmaður jafnaðar-
manna sem grunaður er um njósnir
fyrir kommúnistarfki.
Iians hefur uú verið afnumin. þannig
að megi kanna gögn á skrifstofu hans
og heimili.
Samkvæmi upplýsingum háitsetis
v-þýzks leyniþjónustumanns eru
sönnunargögn gagnvart þessum
tveimur mönnum mjög ótraust Vitn-
eskjan byggist að mestu á
upplýsingum frá Pacepa, sem var hátt-
settur i innanrikisráðuneytinu i
Rúmeniu. Hann kom sinum
upplýsingum á framfæri við banda
rísku leyniþjónustuna CIA.
Bæði Holtz og Broudre-Groeger.
sem báðir eru 34 ára að aldri, hafa
neitað með öllu að hafa stundað
njósnir fyrir Sovétríkin eða A-
Evrópulönd.
Eftir því sem rannsókn málsins
dregst á langinn verður málið flóknara
og pólitiskara á landsvisu. Jafnaðar-
menn hafa sakað Kristilega
demókrata. sem eru i stjórnarand-
stöðu, um að blása þetta mál upp til
þess að hljóta af því pólitískan
ávinning. Mjög mikilvægar kosningar
fara fram i næsta mánuði i rikjunum
Hesseog Bavariu.
Stjórn Helmut Schmidls hefur
undirstrikað skilyrðislausan trúnað
við Nato og fengið staðfestingu frá
Washington um að stjórnvöld þar
þekki ekki til nokkurrar áætlunar
Bahrs.
Bahr er hugmyndasmiður jafnaðar-
manna að hinni frægu Östpolitik. þ.e.
bættu ástandi við A-Evrópulöndin
sem fv. kanslari. Willy Brandt. barðist
mjög fyrir. Bahr hélt blaðamannafund
nýlega þarsem hann sagðist vera mjög
ósáttur við það að vera talinn slíkt fifl
að telja pólitískt ástand i heiminum nú
á þann hátt að möguleiki sé á hlutleysi
Þýzkalands. „Allt málið er sett upp til
þess að ófrægja Östpolitik Jafnaðar-
mannaftokksins," sagði Bahr.
Bahr bætti því hins vegar við að
enginn gæti bannað V-Þjóðverjum að
dreyma um það að einhvern tima i
framtíðinni yrðu bæði þýzku ríkin
sameinuð i eitt. Sameining ríkjanna er
framtíðarmarkmið allra flokka á þingi
enda þótt mörg lönd sem hafa bitrar
minningar frá Hitlerstimanum séu
tortryggin á sameinað Þýzkaland.
Bahr telur að Nato og Varsjárbanda-
lagið séu engan veginn eilif og ekki sé
nokkur leið að sjá fyrir hvað kann að
gerast næstu lOOárin.
Jafnaðarmenn hafa þó lagt á það
áherzlu að hér sé um að ræða útópíu.
þ.e. fyrirmyndarríki. og ekki sé
raunhæft að hugsa sér Mið-Evrópt' án
varnarbandalaga á næstunni.
Þessi deila sýnir i hnotskurn hve
vandratað er fyrir v-þýzku stjórmna
að halda við Östpolitik sina og bætt
samskipti við A-Evrópuþjóðir og vcia
jafnframt einn styrkasti hlekkurinn i
Nato. varnarbandalagi vestrænnj
þjóða.
Pólitískt mold-
viðri vegna
njósnahneykslis
— deilt um f ramtíðaráf orm um sameinað Þýzkaland
þvi að stóllinn fari að hitna undir Helmut Schmidt núverandi kanslara.
Mun V-Þýzkaland segja sig úr Nato
og gera samning um afskiptaleysi
Sovétríkjanna af þýzkum innanrikis-
málum? Svarið er: Ekki í fyrirsjáan-
legri framtið. En spurningin hefur
valdið miklu pólitísku moldviðri og
umþenkingum um framtiðarmarkmið
v-þýzka Jafnaðarmannaflokksins hvað
varðaraðild V-Þýzkalandsað Nato.
Þessi spurning komst á allra varir
með nýjasta njósnahneykslinu í V-
Þýzkalandi. Þar sem allar líkur benda
til þess að enn á ný hafí komizt upp
um háttsettan njósnara A-
Evrópumanna og Sovétmanna í
miðjum valdahring i V-Þýzkalandi.
varð þetta knýjandi pólitísk spurning
bæði heima fyrir ogerlendis.
Málið snýst um nýlegar fréttir í
evrópskum og bandarískum dag-
blöðum. sem hafa sagt að fram-
kvæmdastjóri v-þýzka Jafnaðar-
mannaflokksins. Egon Bahr, hafi með
leynd unnið að úrsögn V-Þýzkalands
úr Nato og síðan að sameiningu
Vestur og Austur-Þýzkalands, sem
hafa verið aðskilin frá ósigri Þjóðverja
i seinni heimsstyrjöldinni. Samkvæmt
fréttum blaðanna hafa Sovétrikin
heitið hinu sameinaða Þýzkalandi af-
skiptaleysi ef af sameiningunni yrði.
Nokkur ihaldssöm v-þýzk blöð hafa
haldið því fram að aðstoðarmaður
Bahrs. Joachim Broudre-Groeger, hafi
afhent þessar áætlanir til kommúnista-
rikja.
Bahr hefur neitað þessu, þar sem
slikar áætlanir hafi einfaldlega ekki
verið til. En hann bætti því við að
hann vonaði að þessi yrði þróunin í
framtiðinni, þegar núverandi stjórn-
málaástand hefði breytzt i heiminum.
Ráðamenn í Jafnaðarmannaflokkn-
um sögðu að þetta væri gamalt mál.
Bahr hefði þegar fyrir áratug reifað
þessar hugmyndir, þar sem Mið-
Evrópulöndin hefðu sameiginlegt
varnarkerfi. Samkvæmt þeirri
kenningu hefðu öll varnarbandalög
orðið ónauðsynleg á þessu svæði.
Aðstoðarmaður Bahrs. Groeger. er
annar þeirra manna sem nú hafa verið
nefndir vegna njósnahneykslisins sem
upp er komið vegna uppljóstrana land-
flótta Rúmena, Ion Pacepa. Hinn er
þingmaður Jafnaðarmannaflokksins,
dr. Uwe Holtz, upprennandi stjarna í
v-þýzkum stjórnmálum. Þinghelgi