Dagblaðið - 09.09.1978, Síða 23
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 1978.!
c
s>
Útvarp
Sjónvarp
Útvarp íkvöld kl. 20.35: ídeiglunni
Spilverkið bjó sér til fleka eins i laginu og landið góða og kynnti nýju plötuna i
Tjörninni.
DB-m.vnd Ari.
HLÝTTA
ÍSLANDI
„Þetta er annar þátturínn af 3—4
sem ég verð með um það sem er í deigl-
unni í listalífi þjóðarinnar. Þetta eru
hugsaðar sem leiðbeiningar til fólks
um hvað á boðstólum sé og hvað
væntanlegt. Kannski verður það til
þess að fólk drifur sig í bíó eða á leik-
sýningu eða reynir að nálgast ein-
hverja bók,” sagði Stefán Baldursson
leikstjóri. Stefán er með útvarpsþátt
sem hann nefnir í deiglunni, klukkan
20.35 i kvöld.
„í þættinum verður blandað efni úr
ýmsum áttum. Meðal annars verður
bókakynning. Kynnt verður skáldsaga
eftir sænskan höfund, um fangelsis-
mál. Þessi saga hefur vakið mikla at-
hygli viða á Norðurlöndunum.
Þá spjalla ég við Sigurð Bjólu i Spil-
verki þjóðanna og leikin verða lög af
nýju plötunni þeirra félaganna,
íslandi. Sú plata er rétt ókomin í búðir.
Ég tala við Þorstein Jónsson kvik-
myndagerðarmann um íslenzka kvik-
myndagerð og sagðar verða styttri
kvikmyndafréttir. Þetta verður engin
allsherjar úttekt á kvikmyndagerð. En
meðal annars kemur Þorsteinn inn á
hvað hann telji að þurfi að gera til þess
að kvikmyndasjóðurinn sem stcrfnaður
var i vor komi að því gagni sem
honum erætlað.
Lesin verður smásaga i léttum dúr
eftir Tage Danielsson sem er sænskur.
Hann hefur verið mikið í starfi i kring
um revíur og kvikmyndir í heimalandi
sínu og þykir góður grínisti. Hanna
Maria Karlsdóttir les söguna.
Öllu meira held ég að komist ekki í
þátt sem tekur um hálftíma,” sagði
Stefán._____________- DS^
Utvarpjdagkl. 17.20: |lHAi||
Tónhomið lll10HlB
brjóturinn kynntur
Guðrún Birna Hannesdóttir er sam-
kvæmt venju með þáttinn Tónhornið í
útvarpinu i dag. í þessum þætti kynnir
hún tónlistarsvítu Tchaikovskys,
Hnotubrjótinn.
Hnotubrjóturinn er saminn upp úr
1890. Hann er byggður upp i kring um
jólaævintýri frá Þýzkalandi. Seinna
var svo saminn ballett við tónlistina.
Sagan segir frá litilli stúlku, Klöru.
Náinn vinur fjölskyldunnar gefur
henni hnotubrjót i jólagjöf. En bróðir
Klöru og vinir hans verða öfundsjúkir
yfir því að hún skuli hafa fengið svona
fallegan hlut og skemma hann fyrir
henni.
Þetta litla ævintýri verður nær
óþekkjanlegt þegar listamenni--nir eru
búnir að fara um það höndum. En til
þess að heyra þeirra sögu er nauðsyn-
Iegt að hlusta á þáttinn.
Það er Fílharmóniuhljómsveit
Vinarborgar sem flytur Hnotubrjót-
inn. Stjórnandi er Herbert von Kara-
jan.
í næsta þætti sinum ætlar Guðrún
Birna að taka fyrir aðra svítu sem
nýtur, eins og Hnotubrjóturinn, mik-
illa vinsælda hjá börnum og ungling-
um. Er það Karnival dýranna eftir
Saint Sáens. - DS
Guðrún Birna Hannesdóttir er kennari við Hólabrekkuskólann. Þar tók Ari
þessa mynd af henni.
Sjónvarp íkvöld kl. 21.40:
Heimkoman
Heimkoman (The Homecoming)
nefnist brezkt sjónvarpsleikrit sem
sýnt verður í sjónvarpinu í kvöld kl.
21.40. Leikrit þetta er eftir leikrita-
skáldið Harold Pinter en hann samdi
einmitt leikrit sem sýnt var i sjón-
varpinu í vor og nefndist Afmælis-
veizlan. Má segja að Heimkoman sé í
svipuðum dúr. Heimkoman er nútíma-
leikrit er lýsir feðgum sem búa saman
og eru þeir á margan hátt ólíkir
venjulegu fólki.
Leikurinn gerist í gömlu húsi í
London, þar sem feðgarnir búa ásamt
yngri bróður húsbóndans. Max, en svo
nefnist faðirinn, er sjötugur og lifir á
eftirlaunum, elzti sonur hans, Teddy,
sem búsettur er i Bandaríkjunum,
kemur heim með eiginkonu sína og
eru móttökur feðganna mjög svo
undarlegar.
Leikritið Heimkoman var fyrst sett
á«viðárið 1965. í þessu leikriti þykir
'Pinter takast einna bezt upp í
fjarstæðukenndum lýsingum sínum á
þvi sambands- og afskiptaleysi, sem
ríkir oft manna á meðal. Ekki er hægt
að segja að leikritið sé gamanleikrit
en nútímaleikrit er það og þeir sem
þekkja höfundinn vita hverju þeir
mega eiga von á. Leikstjóri leikritsins
er Peter Hall, en með hlutverk fara
Paul Rogers, Vivien Merchant,
Michael Jayston og Cyril Cusack.
Leikritið er tæplega tveggja stunda
langt, sent út í lit og þýðandi er Heba
Júlíusdóttir.
ELA
23
■v
Laugardagur
9. september
7.00 VeÖurfregnir. Fréttir.
7.10 Létt lög og mogunrabb. (7.20 Morgunleik-
fimi).
7.55 Morgunbæn.
8.00 Fréttir. 8.10 Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir.
Forustugr. dagbl. (útdr.).
8.30 Af ýmsu tagi: Tónleikar.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
9.20 Morgunleikfimi.
9.30 Öskalög sjúklinga: Kristin Sv«inbjörns-
dóttir kynnir. (10.00 Fréttir. 10.10 Veöur-
fregnir).
11.20 Þetta erum viö að gera. Valgerður Jóns-
dóttirsér umþáttinn.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
13.30 Brotabrot. Einar Sigurðsson og Ólafur
Geirsson sjá um þáttinn.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Vinsælustu popplögin. Vignir Sveinsson
kynnir.
17.00 „Runki, danskurínn og ég”, smásaga eftir
Álf Ólason. Sigurður Skúlason leikari les.
17.20 Tónhorniö. Stjórnandi: Guörún Birna
Hannesdóttir.
17.50 Söngvarí léttumtón.Tilkynningar.
18.45 Veðufregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
19.35 Allt í grænum sjó. Umsjónarmenn: Hrafn
Pálsson og Jörundur Guðmundsson.
19.55 Tónleikar. a. Intermezzó úr óperunni
„Orfeus og Evridís” eftir Christoph Willibald
Gluck. Auréle Nicolet leikur á flautur með
Bach hljómsveitinni i Mtlnchen; Karl Richter
stj. b. Konsert í C-dúr fyrir orgel, lágfiðlu og
strengjasveit eftir Johann Michael Haydn.
Daniel Chorzempa, Bruno Giuranna og Þýzka
Bach-hljómsveitin leika; Helmut Winscher-
mann stjórnar.
20.35 í deiglunni. Stefán Baldursson stjórnar
þætti úr listalifinu.
21.15 Gleðistund. Umsjónarmenn: Guðni
Einarsson og Sam Daniel Glad.
22.00 Svipast um á Suðurlandi. Jón R.
Hjálmarsson ræðir við Jón Pálsson dýralækni
á Selfossi; siðari þáttur.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.45 Danslög.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Sunnudagur
10. september
8.00 Fréttir.
8.00 Morgunandakt. Séra Pétur Sigurgeirsson
vigslubiskup flytur ritningarorð og bæn.
8.15 Veöurfregnir. Forustugreinar dag-
* blaðanna (útdr.)
8.35 Létt morgunlög. Heinz Kiessling og
hljómsveit hans leika.
9.00 Dægradvöl. Þáttur I umsjá Ólafs
Sigurðssonar fréttamanns.
9.30 Morguntónleikar: 10.10 Fréttir. I0.I0
Veðurfr.). a. Konsert i As-dúr fyrir tvö pianó
og hljómsveit eftir Felix Mendelssohn. Orazio
Frugoni og Anna Rosa Taddei leika með
Sinfóníuhljómsveitinni I Vinarborg; Rudolf
Moralt stjórnar. b. Strengjakvartett nr. 12 í
Es-dúr op. 127 eftir Beethoven. Búdapest-
kvartettinn leikur. •
II.00 Messa I Sauðárkrókskirkju. (Hljóðr. 13
f.m.). Prestur: Séra Sigfús Jón Árnason.
Organleikari: Jón Björnsson frá Hafsteins-
stöðum.
12.15 Dagskrá. Tónleikar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
13.30 Fjölþing. óli H. Þórðarson stjórnar
þættinum.
14.55 Óperukynning: „Ástardrykkurinn” eftir
Donizetti. Flytjendur: Fulvia Ciano,
Ferruccio Tagliavini,,' Gianni Maffeo,
Giuseppe Valdengo, Tékkneski óperukórinn
og Kammersveitin í Prag; Ino Savini stjórnar.
— Guðmundur Jónsson kynnir.
16.00 Fréttir. 16.15 Veðurfregnir. Heimsmeist-
araeinvigið i skák. Jón Þ. Þór segir frá skákum
i liðinni viku.
16.50 ísrael, — saga og samtíð. Fyrri hluti dag-
skrár í tilefni af för guðfræðinema til Ísraels i
marz sl. Umsjón: Halidór Reynisson Flytj-
endur með honum: Torfi Stefánsson,
Sigurður Ámi Þóröarson og Flóki Kristinsson.
(Áður útv. 14. mai i vor).
17.40 Létt tónlist. a. Hanna Aroni syngur
nokkur vinsæl lög. b. Hljómsveit Werner
MQller leikur lög úr amerískum söngleikjum.
c. Gunther Kallmann kórinn syngur.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 Skilaboð um vetrarkvlðann. Eyvindur
Erlendsson tekur saman fyrsta þátt sinn i tali
og tónum:
20.00 Sinfóniuhljómsveít Islands leikur.
Stj.: Páll P. Pálsson og Bohdan
Wodiczko. a. Kansónetta og vals eftir Helga
Pálsson. b. Konsert fyrir kammersveit eftir
Jón Nordal.
20.30 Otvarpssagan: „María Grubbe” eftir J. P.
Jacobsen. Janus Guölaugsson íslenzkaði.-
Kristín Anna Þórarinsdóttir les (14).
21.00 Kirkjukór Húsavikur syngur. Stjórnandi:
Sigriður Schiöth. Einsöngvarar: Hólntfríður
Benediktsdóttir og Ingvar Þórarinsson.
Pianóleikari: Katrin Sigurðardóttir.
21.40 Séð 1 tvo heimana. Guðrún Guðlaugs-
dóttir ræðir viö Helgu Pétursdóttur sem segir
frá dulrænni reynslu sinni.
22.10 Pianósónata nr. 2 i g-moll op. 22 eftir
Robert Schumann. Lazar Berman leikur.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.45 Kvöldtónleikar. a. „L ’Oiseau Lyre”
kammersveitin leikur Concerti grossi nr. 4 í B-
dúr og nr. 5 í C-dúr eftir Giuseppe Torelli;
Louis Kaufman stjórnar. b. Friedrich Gulda
leikur með blásurum úr Filharmóniusveit
Vinarborgar Kvintett i Es-dúr (K452) fyrir
pianó, óbó, klarínettu, horn og fagott eftir
Mozart.
Mánudagur
11. september
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
7.10 Létt iög og morgunrabb. (7.20
Morgunleikfimi: Valdimar örnólfsson leik-
fimikcnnari og Magnús Pétursson
pianóleikari).
7.55 Morgunbæn: Séra Ólafur Skúlason
dómprófastur flytur (a.v.d.v).
8.00 Fréttir. S.lODagskrá.
8.15 Veðurfregnir. Forustugreinar lands-
málabl. (útdr.).
8.30 Afýmsu tagi: Tónleikar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: Jón frá
Pálmholti heldur áfram að lesa sögu sina>
„Ferðina til Sædýrasafnsins” (4).
9.20 Morgunleikfimi. 9.30. Tilkynningar.
9.45 Landbúnaðarmál. Umsjónarmaður: Jónas
Jónsson.
10.00 Fréttir. 10.10 Veöurfregnir.
10.25 Áður fyrr á árunum: Ágústa Björnsdóttir
sér um þáttinn.
11.00 Morguntónleikan Ingeborg Hallstein
syngur með Ríkishljómsveitinni og Útvarps-
hljómsveitinni í Múnchen aríur úr óperum
eftir Rossini, Mozart og Delibes; Hans
Löwlein og Heinrich Hollreiser stjórna. Edith
Peinemann leikur á fiðlu með Tékknesku
fílharmóníusveitinni i Prag „Tzigane" eftir
Maurice Ravel; Peter Maag stjórnar./ Rikisfíl-
harmóníusveitin i Brno leikur Tékkneska
dansa eftir Bedrich Semtana: Frantisek Jilek
stjórnar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tilkynningar. Við
vinnuna: Tónleikar.
15.00 Miðdegissagan: „Brasilíufararnir” eftir
Jóhann Magnús Bjarnason. Ævar R. Kvaran
leikari les (23).
15.30 Miðdegistónleikar: íslenzk tónlist.
„Svipmyndir fyrir pianó” eftir Pál ísólfsson,
Jórunn Viðar leikur.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veður-
fregnir).
16.20 Popphorn: Þorgeir Ástvaldsson kynnir.
17.20 Sagan: „Nornin” eftir Helen Griffiths.
Dagný Kristjánsdóttir les þýðingu sína (9).
17.50 Dagvistunarheimili á vegum fyrirtækja.
Endurtekinn þáttur Þórunnar Siguröardóttur
frá síðasta fimmtudegi.
18.05 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
í
I
Sjónvarp
Laugardagur
9. september
16.30 íþróttir. Umsjónarmaður Bjami Felixson*
Leikur úr siðustu umferð íslandsmótsins i
knattspyrnu.
18.30 Enska knattspyrnan (L).
Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Gengið á vit Wodehouse (L). Nýr,
brezkur gamanmyndaflokkur í sjö þáttum,
byggður á smásögum eftir gamansagna
höfundinn P.G. Wodehouse. í aðalhlut-
verkum John Alderton og Pauline Collins. I.
þáttur. Sannleikurinn um Georg. Þýðandi Jón
Thor Haraldsson.
20.55 Angelo Branduardi (L). Tónlistarþáttur
‘ með ítalska söngvaranum Angelo Branduardi,
^n hann nýtur nú mikilla vinsælda I heima-
landi sinu.
21.40 Heimkoman (L) (The Homecoming).
Leikrit eftir Harold Pinter. Leikstjóri Peter
Hall. Aðalhlutverk Paul Rogers, Vivien
Merchant, Michael Jayston og Cyril Cusack.
Leikurinn gerist í gömlu húsi í Lundúnum. Þar
búa Max, sjötugur ekkill á eftirlaunum, yngri
bróðir hans, Sam, og tveir synir Max. Elsti
sonur hans, Teddy, sem er búsettur í Banda-
ríkjunum, kemurí heimsókn ásamt konu sinni
og eru móttökumar undarlegar. „Heim-
koman" var fyrst sett á sviö árið 1965 í.
þessu leikriti þykir Pinter takast einna bezt
upp i fjarstæðukenndum lýsingum sínum á
þvi sambands- og afskiptaleysi, sem ríkir oft
manna á meðal. Þýðandi Heba Júliusdóttir.
23.25 Dagskrárlok.
Sunnudagur
10. september
18.00 Kvakk-kvakk (L). Ítölsk klippimynd.
18.05 Fimm fraknir (L). Brezkur mynda-
flokkur í þrettán þáttum, byggður á sögum
eftir Enid Blyton. 2. þáttur. Fimm á Fagurey,
síðari hl. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir.
18.30 Saga sjóferðanna. Þýzkur fræðslumynda-
flokkur. 4. þáttur. Vélaöldin. Þýðandi og
þulur Björn Baldursson.
18.55 Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 íslendingurinn og hafið (L). Íslenzk kvik-
mynd um sjómennsku eftir Heiðar Marteins-
son. Sýndar eru loðnuveiðar að vetri til og
netaveiðar á vetrarvertlö við Suðurland.
21.05 Gæfa eða gjörvileiki (L). Bandarískur
framhaldsmyndaflokkur. Fjórtándi þáttur.
Efni þrettánda þáttar: Falconetti starfar í
spilavíti Esteps undir ströngu eftifliti. John
Franklin, fyrrverandi fjármálastjóri Esteps,
fæst ekki til að bera vitni gegn htjnum, nema
sér verði tryggð sakaruppgjöf. Estep lofar Billy
gulli og grænum skógum ef hann afii upp
lýsinga um heimildir og heimildamenn
Rudys. Hann aftekur það með öllu, uns Estep
stöðvar rekstur hljómplötuútgáfunnar, sem
Billy stjórnar. Þýðandi Kristmann Eiðsson.
21.55 Æðarfugl á Islandi (L). Þýzkur kvik-
myndatökumaður fcrðaðist nýlega um ísland
og kvikmyndaöi lifnaðarhætti æðarfugls. Hann
staldraði við hjá Gisla bónda Vagnssyni á
Mýrum í Dýrafirði, en þar er mikið æðarvarp.
í myndinni er sýnt m.a. hvernig fuglinn klæðir
hrciður sitt dúni, og einnig dúntekja. Þýöandi
v og þuluróskar Ingimarsson.
22.35 Að kvöldi dags (L). Séra Frank M.
Halldórsson, sóknarprestur i Nesprestakalli,
fiyturhugvekju.
22.45 Dagskrárlok.