Dagblaðið - 27.09.1978, Síða 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 1978.
5
m im
Verðlagsmál — Verðlagsmál—Verðlagsmál—Verðlagsmál — Verðlagsmáf
'______________________________ -
Könnuninnkaupsverðs:
Ekki unntað
gera neinn
heildarsaman-
burð
verðkönnunina
- VAR FREMUR TILRAUNAKÖNNUN
TIL AÐ HNNA BEZTU VINNUAÐFERD
VIÐ FRAMTÍDARKANNANIR
Svo virðist sem birting niðurstaðna
á norrænni könnun á innkaupsverði til
einstakra landa hafi komið sænskum
og norskum aðilum sem stóðu að
könnuninni, mjög á óvart.
Samkvæmt bréflegum upplýsingum
sem borizt hafa til Verzlunarráðs
tslands og DB hefur farið yfir töldu
norsku verðlagsyfirvöldin hér um að
ræða tilraunakönnun og hyggjast þau
ekki birta niðurstöður hennar. Sam-
kvæmt upplýsingum þaðan er ekki
enn ákveðið hvort Norðmenn verði
með í frekari könnun sem gerði yrði á
innkaupsveröi á Norðurlöndum.
1 bréfi og skeyti sem barst vegna
þessa máls frá Svíþjóð segir að fulltrúi
verðlagsyfirvalda þar, sem um hina
sameiginlegu könnun hafi fjallað, hafi
orðið mjög undrandi er hann frétti af
birtingu niðurstaðna hér á landi.
Er haft eftir þessum aðila að þær
tölur um mismunandi innkaupsverð
séu ekki úr norrænu könnuninni. Ef
islenzk verðlagsyfirvöld vilji hins
vegar reikna út eða draga sínar álykt-
anir þá sé það þeirra mál. Sænskir telja
aftur á móti að framkvæmd þessarar
könnunar, sem falin hafi verið nokkr-
um starfsmönnum verðlagsyfirvalda
Norðurlandanna, hafi fremur verið til-
raunakönnun til að finna út heppileg-
ustu vinnuaðferðirnar við slikt í fram-
tiðinni heldur en marktæk verðkönn-
un.
Einnig er haft eftir sænskum verð-
lagsyfirvöldum að niðurstöður könn-
unarinnar ieiði í Ijós tilhneigingu til
lægra verðs í Svíþjóð og hærra verðs í
Finnlandi og sérstaklega Íslandi.
Aftur á móti segir einnig að við
könnunina hafi ekki verið unnt að
gera neinn heildarsamanburð milli ein-
stakra landa, þar sem ekki hefur
fundizt nein rökrétt aðferð við að bera
saman útkomuna, að því er varðar ein-
stakar vörutegundir.
Þorvarður Eliasson framkvæmda-
stjóri Verzlunarráðs Islands taldi
ýmsar þær ályktanir sem fram komu í
fréttatilkynningu um verðkönnun
þessa frá verðlagsstjóra vera hreina
markleysu. Vísaði hann til meðferðar
starfsfélaga hans á hinum Norður-
löndunum, sem litið hefðu á könnun-
ina sem tilraun og ætluðu ekki að birta
neinar niðurstöður vegna þess að þeir
teldu þær ekki marktækar.
Þorvarður sagði einnig að mjög
hefði verið vítavert hjá Georg Ólafs-
syni verðlagsstjóra að láta á sér skilja í
byrjun að hér væri um niðurstöðu á
heildarinnflutningi og tölur um mis-
munandi innflutningsverð næðu til
alls innflutnings. Þvi færi víðs fjarri.
Einnig hafði verðlagsstjóri algjörlega
látið undir höfuð leggjast að leiðrétta
þær ályktanir sem ýmsir fjölmiðlar
hefðu dregið af upplýsingum hans og
verið hefðu á misskilningi byggðar.pG
Þorvarður Elíasson, formaður Verzlunarráðs:
„STARFSEMIVERÐ-
LAGSYFIRVALDA ER
SKAÐLEG EFNAHAG
LANDS OG ÞJÓÐAR”
Sjónvarpsþáttur um verðlagsmál
Nefnd tíl rannsóknar
á innflutningsverzlun
—að sögn viðskiptaráðherra
í sjónvarpsþætti i fyrrakvöld neitaði
Georg Ólafsson verðlagsstjóri ásökun-
um Þorvarðar Elíassonar, formanns
Verzlunarráðs íslands, um að hafa búið
til niðurstöður hinnar samnorrænu
verðkönnunar sem vakið hefur mikið
umtal að undanförnu. Georg sagði að
norskir hagfræðingar hefðu reiknað út
niðurstöður könnunarinnar.
Þorvaröur hélt þvi og fram að rann-
sakaðar hefðu verið 78 vörutegundir, en
verðlagsstjóri hélt alfarið við fyrri upp-
lýsingar sinar að könnunin hefði náð til
30—40 vörutegunda.
Verðlagsstjóri sagði, að greinileg
meinsemd væri i innflutningsverzlun
okkar, sem gerði það að verkum að inn-
kaupsverð hér væri 21—27% hærra en
á öðrum Norðurlöndum. Þetta stafaði af
óhagkvæmum innkaupum, hækkuðum
umboðslaunum og milliliðakostnaði.
Þorvarður neitaði því hins vegar að um
meinsemd væri að ræða og dró I efa gildi
slíkra kannana.
Fulltrúar Sambandsins og stórkaup-
manna sýndu töflur um samanburð á
verði út úr búð hér og á Norðurlöndun-
um og samkvæmt þeim tölum kom
ísland mun betur út en I samnorrænu
könnuninni. Verðlagsstjóri neitaði að
gera könnunina opinbera þar sem nor-
rænir verðlagsstjórar hefðu tekið
ákvörðun um að halda henni leyndri.
Viðskiptaráðherra upplýsti I þættin-
um að hann myndi skipa nefnd til rann-
sóknar á verðlagsmálum innflutnings-
verzlunarinnar. Þá sagði hann og að
hann myndi efla embætti verðlagsstjóra
og geraembættinu kleift að fylgjast með
verði neyzluvara i nágrannalöndunum,
þ.e. flytja verðlagseftirlitið að nokkru úr
landi.
Það kom og fram í máli verðlagsstjóra
að framhald yrði á samnorrænum verð-
könnunum og næsta skrefið yrði að
kanna verð neyzluvara úr búð.
- JH
rKristján Andrésson fulltriíi verðlagsstjóra:
Ólíklegt að aflaö
verði heimildar til
birtingar könnunar
— menn minnugir viðbragða heildsala 1976
Georg Ólafsson verðlagsstjóri var Kristján var að því spurður hvort
vant við látinn í gærdag er DB reyndi hann teldi hugsanlegt að verðlagsstjóri
aö ná tali af honum vegna umræðna aflaði sér heimildar starfsbræðra sinna
um samnorrænu verðkönnunina. Þess á Norðurlöndum um að fá að opinbera
i stað ræddi DB við Kristján Andrés- hina umdeildu könnun.
son fulltrúa verðlagsstjóra. Kristján svaraði þvi til að slíku gæti
verðlagsstjóri aðeins einn svarað, en
sjálfur taldi Kristján óliklegt að verð-
lagsstjóri aflaði sér slikrar heimildar.
Hann sagði að menn væru enn
minnugir á viðbrögð innflytjenda við
upplýsingum verðlagsstjóra er fram
voru settar eftir innflutningskönnun í
London árið 1976. Þá voru tekin fyrir
í sjónvarpi ákveðin vörumerki, sem
siðan mátti rekja til ákveðinna heild-
sala.
Þá komu fram ásakanir af hálfu
innflytjenda þar sem þeir gagnrýndu
að verðlagsstjóri skyldi upplýsa um
ákveðin vörumerki.
„Þá var og fullkomið samkomulag
verðlagsstjóra á Norðurlöndum að
fara ekki þessa leið nú. Það er þvi ólík-
legt að verðlagsstjóri birti upplýsingar
um einstakar vörutegundir þessarar
könnunar,” sagði Kristján Andrésson,
fulltrúi verðlagsstjóra. - JH
— „Spuming hvort Guðjón Einarsson sé
f réttamaður eða blaðafulltrúi verðlagsstjóra”
Þorvarður Elíasson, formaður Verzl-
unarráðs íslands, hafði tilbúna í sjón-
varpsþættinum um samnorrænu verð-
könnunina 9 punkta eða fullyrðingar,
sem hann vildi ræða. 1 þættinum komu
þó ekki fram nema fjórar þessara full-
yrðinga og þvi hafði DB samband við
Þorvarð og spurði hann hverjir þessir
níu liðir væru.
Þorvarður sagði að i fyrsta lagi væri
það að þessi samnorræna könnun hefði
ekki verið könnun um verð. 2. Niður-
stöður sem Georg Ólafsson verðlags-
stjóri birti voru ekki hluti af könnuninni.
3. Margar. ályktanir sem fram komu i
fréttatilkynningu verðlagsstjóra, 23.
ágúst sl., eru markleysa. 4. Það hefur
alltaf verið vitað að innflutningsverð á
vissum vörum er hærra hér en á Norður-
löndum, sem þýöir þó ekki að það sé
óhagkvæmara. 5. Kostnaðarverð
neyzluvara er lægra hér en á Norður-
löndum. 6. Afkoma íslenzkrar verzlunar
er I dag lakari en áður hefur þekkzt. 7.
Starfsemi verðlagsyfirvalda er skaðleg
efnahag lands og þjóðar. 8. Fréttatil-
kynning verðlagsstjóra var stjórnmála-
bragð viðskiptaráðherra. 9. Án verzlun-
ar væri ekkert mannlíf á tslandi.
„Þetta þótti of langt til að flytja í sjón-
varpi og ég vil þvi spyrja Guðjón Einars-
son, stjórnanda umræöuþáttarins, að
þvi hvort hann sé fréttamaður eða
blaðafulltrúi verðlagsstjóra,” sagði Þor-
varður Eliasson.
„Þessi sjónvarpsþáttur er til kominn
vegna beiðni frá mér til þess aö hreinsa
verzlunarstéttina og þvi er furðulegt að
mér skuli meinað að tala, eftir að mér er
veittur þátturinn.
Ég get lagt fram fullkomnar sannanir
viðvikjandi sumum af þessum 9
punktum, aðra get ég rökstutt vel og alla
betur en verðlagsstjóri. En enginn þess-
ara punkta fékkst hins vegar ræddur i
sjónvarpsþættinum.
Þá má og geta þess,” sagði Þorvarður,
„að á grundvelli fréttatilkynningar verð-
lagsstjóra hefur útvarpið þríflutt ákveð-
ið erindi um verzlunina, sem er svívirði-
legur áróður um verzlunina i landinu.”
• JH
íþróttaskór fyrir alla!
Æfingaskór í úvali,
gamla veröiö.
Póstsendum.
Puma: Hummel:
Kid 4.380, Match 6.450,
Rubis 4.380, WM 78 10.370,
Paima 4.910, Paly Handball 9.200,
Qubic 7.115, Diamond 12.970,
Detente 8.770, Trim Shoes 6.080,
Crack 8.870, Blue Star 5.350, Assuro 6.670, o.fl.
Tahara7.715, Stenzel 12.900, Adidas:
Helsinki 8.870, TrimTrack 10.270,
Roma 8.870, Squash 3.790.
o.fl. o.fl. Strigaskór frá 850 til 2.790.
ÆT
HOLASPORT LÓUHÓLUM 2-6, SÍMI75020.