Dagblaðið - 02.10.1978, Síða 4
DB á ne ytendamarkaði
*
VERIÐ VELKOMIN.
NORRÆNA
HÚSIÐ
BlAÐl
Afálsý
ahíé
Tyrknesk kjötsúpa
Stella Þórðardóttir sendi okkur
'þessa uppskrift af tyrkneskri kjötsúpu,
sem hún sagði að væri sérlega góð.
1 kg. lambalæri I litlum bitum (1.100
kr.)
1/2 bolli hveiti
3 tsk. matarolia
7 bollar vatn
2 meðalstórir laukar sem skipt er i 4
hluta __
2 gulræturT snétðnm
salt eftir smekk
1/2 tesk. svarturpipar
1 tsk. ca.vnne pipar
3 eggjarauður
2 tsk. sitrónusafi
1/4 bolli bráðið smjör
2 tsk. paprika
1/2 tsk. kanill
2 tsk. mint.
Kjötinu er velt upp úr hveitinu og
það steikt i olíunni. Vatninu er hellt
yfir og suða látin koma upp. Lauknum
og gulrótunum bætt út i. Einnig
saltinu, piparnum og caynne
piparnum (athugið að bragðið af
caynne pipar er nijög sterkt og þeir
sem eru óvanir því ættu jafnvel að
nota minna af honum en gefið er upp).
Þetta er soðið þar til kjötið er orðið
meyrt.
Eggjarauður eru settar í sér skál og
sítrónusafa hrært saman við, einnig
örlitlu af kjötsoði.
Potturinn er tekinn af og kjötinu og
soðinu hellt í skál. Eggjahræran er
látin saman við og hrært duglega i. Að
lokum er bráðna smjörinu sem kanil
og papriku hefur verið blandað saman
við hellt yfir og minti stráð þar yfir.
Alls kostar þessi réttur í kringum
1500 krónur og er ætlaður fyrir 5.
Hann kostar því 300 krónur á mann.
-DS.
geymt á köldum stað í 7 sólarhringa.
Hrærtíeinu sinni á sólarhring með tré-
sleif. Þá er allt hitaö upp að suðumarki
og síðan látið i vel þvegin glös. Ekki
sakar að láta rotvarnarefni út í, 1 msk.
í lítra. Þetta geymist mjög vel, hiklaust
í áreða meira.
-DS.
SÝRÐAR GÚRKUR
— Einu sinni enn
Kona ein hringdi og bað um að einu
sinni enn yrði birt uppskrift sú af
sýrðum agúrkum sem þegar hefur
birzt tvisvar í blaðinu. Hún er svona.
15 agúrkur
1 litri edik
1/2 litri vatn
5 meðalstórir laukar
1 pk asíukrydd (gjarnan hálfur annar)
750 gr sykur
1 hnefi gróft salt
Gúrkurnar eru flysjaðar og skornar
i bita. Salti er stráð yfir þær og látið
liggja yfir nótt. Þá er lögurinn útbúinn
og hann hitaöur rétt til þess að
sykurinn bráðni og kryddið látið út í.
Leginum er hellt yfir gúrkumar og
Svipmyndir
á svipstundu
Svipmyndir í hvert skírteini
Svipmyndir sf.
Hverfisgötu 18 ■ Gegnt Þjóðleikhúsinu
Neytendasíðan rak augun i
auglýsingu i einu dagblaöanna um
helgina þar sem eitthvað var auglýst
og nefnt sorpkvörn. Með því áhaldi
skildist siðunni að ruslið yrði ger-
samlega úr sögunni, menn þyrftu ekki
annað en að henda því í vaskinn og þá
hyrfi það á einhvern dularfullan hátt.
Með það í huga að þarna væri
sannarlega komin góð lausn mála var
farið niður í verzlunina Heklu og
sorpkvömin skoðuð.
Sorpkvörnin gerir reyndar ekki
ruslafötur óþarfar svona i einum
hvelli.En með tilkomu þeirra ættu
menn að geta sparað sér nokkrar ferðir
út I tunnu. Kvörnin er sett i niður-
fallið áeldhúsvaskinum og malar hún
það sorp sem hent er i vaskinn. Ekki
ræður hún þó við allt rusl, en
venjulegar matarleifar að undan-
teknum stórum beinum eru henni
leikureinn.
Sorpkvörnin er það stór um sig að í
flestum vöskum þyrfti að stækka
niðurfallið dálítið. Það sem upp úr
vaskinum stendur er ekki fyrirferðar-
mikið þvi aðalhluti kvarnarinnar er
'fyrir neðan vaskinn. Sá hluti sér um að
mala úrganginn sem siðan fer út með
vatninu.
Sorpkvörnin gengur fyrir rafmagni
og mönnum ráðlagt að hafa
slökkvarann hvergi þar sem börn ná
til. Því að þótt erfitt sé fyrir fullorðna
að pota höndunum á sér niður i
kvörnina geta börnin það og þá er ekki
að sökum að spyrja. Á kvörninni er
lok sem erfitt er fyrir litlar hendur að
ná af og skyldu menn hafa það á milli
þess sem þeir nota kvörnina.
Sorpkvörnin kostar 43.100 og er frá
General Electric. Hún fæst í Heklu og
ef til vill viðar.
-DS.
Á morgun þriðjudag
3. október kl. 20:30.
„Medborgare i Finland” Sænsk/finnsk Ijód og söngur
Flytjendur: Östen Engström, Guillermo Michel frá
WASA-leikhúsinu I Finnlandi.
Norrœna húsið
Raddir
neytenda
Allt ernú til
S0RPKV0RNIVASKMN
— fækkarferðum
með ruslafötuna
Skýringarmynd af innri hluta sorpkvarnarinnar. 1. Lok sem erfitt er fyrir börn að ná af. 2. Sá hluti sem stendur upp úr
vaskinum. Hann er úr ryðfriu stáli og því auðvelt að þrlfa hann. 3. Gúmmlpakkning sem hindrað að kvörnin leiki mjög á
lausu. 4. Gat til þess að tengja við uppþvottavél. 5. Innri hlutinn er allur úr ryðfriu stáli. 6. Sjálf kvörnin. Hún er samsett
úr flugbeittum hnifum úr sérlega sterku stáli. 7. Armur sem ýtir sorpinu út i kvarnirnar það til það er malað nægilega. 8.
Fínmalari. 9. Mótorinn er sérlega kraftmikill. 10. Auðvelt er að setja kvörnina i. Ekki þarf nein sérstök verkfæri og ekki
heldur neina sérstaka vatnstanka við.
Sorpkvörnin er æði fyrirferðarmikill en minnstur hluti hennar sést þegar hún er
komin á réttan stað.
DB-mynd Hörður.