Dagblaðið - 02.10.1978, Síða 7

Dagblaðið - 02.10.1978, Síða 7
HJÁLP! ÞAÐ ER KVIKNAÐ Í! ,9M\ nmtn 'áö t mommm xmÁJsoMi DAGBLAÐIÐ, MÁNUDAGUR 2. OKTÓBER 1978. HLAÐAN STÓD í BJÖRTU BÁLI Mikið tjón af eldi að Arnarstöðum íFlóa Elds varð vart í hlöðu að Arnar- rafmagnsperu. Hafði hey verið sett í stöðum í Hraungerðishreppi rétt fyrir hlöðunafyrrumdaginnúrgöltum. klukkan hálfátta á laugardagskvöldið. Var heyið því laust og ótroðið og því Var slökkvilið þegar kallað á staðinn. betri eldsmatur en ella. Þegar það kom á vettvang logaði upp Talið er þarna að hafi brunnið 3—' úr hlöðinni og hey i henni alelda. Varð 500 hestar af heyi og er tjónið af þvi ekki við þann eld ráðið og brann oghúsumerbrunnumikið. einnig hesthús sem áfast er við Að Arnarstöðum er ekki búskapur í hlöðuna. Menn eða skepnur sakaði eiginlegri merkingu. Húsráðandi ekki. stundar mikið aðra atvinnu en hefur Nokkuð er talið vist að eldurinn samhliöa nokkurt hrossabú, að þvi er hafi kviknað í heyinu út frá óvarinni DB var tjáð. ASt. Tjón í Kópavogi af völdum stormsins Fjórir fóiksbflar skemmdust af f júkandi drasli Fyrsti verulegi hauststormurinn sem gekk yfir Suðvesturland aðfara- nótt sunnudags olli m.a. tjóni á fjórum fólksbilum í Kópavogi. Þrír bílanna stóðu í nýja iðnaðarhverfinu sem er í uppbyggingu. Fuku á þá járnplötur og ýmiss konar drasl sem olli á þeim rispum og dældum. Fjórði bíllinn sem skemmdist var utan við iðnaðar- hverfið nýja. Eins og oft vill verða eru byggjendur ekki undir fyrstu haust- veðrin búnir. Ýmiss konar drasl, sem fokið getur og valdið stórskemmdum, liggur laust. Eru það tilmæli lögregl- unnar í Kópavogi að byggjendur sem og aðrir hugi nú vel að málum og komi I veg fyrir að svona fjúk á lausum hlutum geti átt sér stað. Viða i nýbyggingum fuku upp hurðir og smátjón varð víða af þessum fyrsta næturstormi haustsins. ASt. Slökkviliðið var tvívegis kallað út í gær er kveikt var í öskutunnum við Siðumúla 8. Má eiginlega segja að slökkviliöið hafi heimsótt DB og sýnt hvernig farið er að, því öskutunnu- húsið má sjá úr gluggum blaðsins. Reyk lagði út um dyr og glugga öskutunnuhússins, sem er aðskilið frá aðalhúsi. Er slíkt til fyrirmyndar því öskutunnubrunar í kjöllurum húsa valda oft miklum reykskemmdum á efri hæðum. Þetta varð auðvelt verkefni hjá slökkviliðinu og tjón ekki teljandi. Þá var einnig kveikt i timbri í Hálsaseli á laugardag. Tjón varð lítið. -ASt. / “ \ Flug og gísting Akranes: Barizt við Kára Ein heild á lækkuðu verði. — og dansgestir fiýttu sérheim Smábátaeigendur á Akranesi áttu i miklu basli lengi nætur aðfaranótt sunnudags. Veðurofsinn sem yfir gekk olli miklu sjóróti í höfninni og voru bátar lengi i alls kyns hættum. Sameigin- legt átak bátseigenda mun þó að mestu eða öllu hafa forðað bátunum frá skemmdum. Sjór komst í einn smábát en alvarlegt tjón varð ekki af. Að venju voru dansleikir á Akranesi en eftirköst fylgdu þeim engin, því vegna veðurofsans fékk hver maður ærið viðfangsefni við að koma sér heim. Ekki er vitað til að slys hafi orðið. ASt. Snjóflóð lokuðu vegi til Flateyrar Snjóflóð féll tvivegis á veginn milli Ísafjarðar og Flateyrar aðfaranótt sunnudags. Er vegurinn nú með öllu lokaður. Snjóflóðin ollu að því er bezt er vitað engum skemmdum á mannvirkjum. Féllu þau bæði í svokallaðri Kinn. Snjór er enn ekki ýkja mikill á Isafirði og Inndjúpinu en eitthvað meiri á útnesjum. vðl 'íða um land eru vel búin hótel. Þú getur farið í helgarferð með flugfélaginu í hópi, með fjölskyldunni, eða bara þið tvö. Hringdu og spurðu um verð á helgarlerð. ASt. FLUGFÉLAC /SLAJVDS INNANLANDSFLUG

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.