Dagblaðið - 02.10.1978, Side 12

Dagblaðið - 02.10.1978, Side 12
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 2. OKTÓBER 1978. Hemla- og pústviðgerðir Varahlutir fyrir: Sjálfskipta girkassa Hemla- ogpústkerfi Dempararíúrvali J. Sveinsson & Co| Hverfisgötu 116 — Pósthólf 5532 Reykjavík — Sími 15171. Ertu reiðubúinn að mœta vetrinum? En bifreiðin? Nú er rétti tíminn til að búa bifi reiðina undir veturinn og kuld- ann. Fljót og góð þjónusta. Brfreiðastillingin Smiðjuvegi 38 Kópavogi, sími 76400. Vitan - blaðsölubörn Vikuna vantar blaðsölubörn víða í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði. Upplýsingar í síma 27022. Mikið úrval af skólafatnaði mommu SéL Midbœjarmarkaöi Aðaistrœti 9. Sími 27340. ATH.: SÉRHANNAÐAR H SOKKABUXUR FYRIR BARNSHAFANDIKONUR Föðurlandsvin- ir og vinnuþý Nú fer loksins að verða gaman að lifa er gjörvöll þjóðin býst til orustu um lífsgildið. Um þetta hefur löngum verið deilt og slegist frá örófi alda. Vart mun þetta þó kallast orustur lengi frameftir öldum, vinnuþýin urðu að hlýða boðum og banni auðsins. Væru einhverjir svo heimskir að hreyfa mótmælum voru þeir húðstrýktir, hengdir eða tunguskornir. réttlætið hefur alltaf fylgt þeim ríku. En allt er breytingum háð sem betur fer, vinnuþýin eru farin að rétta úr hálsinum og renna augum þangað sem auðæfi hrúgast upp af tómu tapi og allskonar óáran sem safnast á þessa höfðingja sem troða veginn fram berfættir og brókarvana. Þess sjást nú glögg merki að þjóðin er að skiftast í tvær fylkingar, föðurlandsvini með at- vinnutækin og allt það er skapar vinnu. Þar puða þessir úrvalsmenn pungsveittir alla daga við sitt eilífa tap. Hin fylkingin eru vinnuþýin, sem skapa verðmætin, en hirða að sögn yfirboðaranna allan arðinn. Svo mögnuð er heimskan að þessi vinnuþý vilja fara að taka þátt i þessu botnlausa tapi, sjá að það er engu verra að lifa góðu lifi af því en hinum svonefnda gróða og benda til þeirra sem stýra heila krami botnleysunnar. Svo langt er gengið að höfðingja- valdið er búið að tapa höfuðborginni úr hendi sér og íhaldsflokkarnir flóa i tárum yfir því að afætur eiga að fara að stjórna málum þjóðarinnar. Það er þvi engin undrun þótt burðarásar þjóðarinnar búist til varnar. Þetta er mikið lið og fritt, búið tækjum og tölurn fyrir utan ráðsnilld og afburða hæfileika. 1 broddi fylkingar eru hungraðir heildsalar og kviðdregnir kramarar. þessir undirsátar sem eru kannski ekki hátt skrifaðir í kraminu, ráða þó yfir mikilli reynslu bæði frá einokunar- verslun dana og sporgöngumönnum þeirra íslenskum kaupmönnum. Þetta gekk vel þar til Þingeyingar brutu isinn og stofnsettu kaupfélögin. Þau eru nú ekki eins bráðsmitandi og fyrr og virðast kroppa á sömu snöpuni og heildsalar, hvort þau ganga I varnar- samtökinskalósagt. Nú fá okkar ágætu lögfræðingar loks lífsafkomu. Hin nýju bráða- birgðarlög munu skaffa þeim áralanga vinnu velborgaða. Gulli mun verða stráð á Alþingi að hugmynd Egils gamla Skallagrimssonar. Hinir skriftlærðu munu kunna sitt fag. Þeir verða slípaðir og póleraðir svo þcir vinni hvert mál eins ogkollegarþeirra i Bandarikjununt, sem vcrja inál glæpa hringanna og ganga með sigur af hólmi. Einn hefur þegar knésett sjálf- an fyrrverandi dómsmálaráðherra vorn. 1 lögfræði gildir ekki einungis rétt og rangt, heldur hitt að finna para- graff, sem gildir til dóms. Þjóðin vissi að ráðherrann hafði á réttu að standa. en nennti ekki að standa í löngum málaferlum og kaus heldur að sletta sektinni í sækjanda, enda hefur verið hljótt um þennan sigur ritstjórans. Halldóri hefur sjálfsagt verið kunnugt um réttlæti dóma í Banda- ríkjunum þegar mikið lá við. Þar til heyra mál tveggja ítalskra " inn- flytjenda, sem teknir voru og sakaðir um landráð. Menn þessir voru pindir í fangelsum árum saman og fengu loks lausn i rafmagnsstólnum. Löngu síðar var sakleysi þeirra auglýst með smá- letri, líkt og Bukarins. Ég get ekki stillt mig um að minnast hér á samtal Eyjalíns lögmanns og Snæfríðar í Islandsklukkunni. Þar Kjallarinn Halldór Pjetursson kemur skáldið inn á refilstigu lög- fræðinnar. Á Þingvelli talast þau við Eyjalín lögmaður og Snæfríður urn mál Magnúsar i Bræðratungu. Snæfríður býður eið um að Magnús fari með rétt mál i kærubréfi sínu. Eyjalín varekki blár á görnum þrátt fyrir allt, hann þekkti hinar jurdisku þrætur og svarar á þessa leið. „Þó Arnas Arnæus gæti með þér friðan svein. og ekki aleinasta hefði dómkirkjupresturinn og griðkonur staðið hann að verki heldur og svo biskupinn og biskupsfrúin, þá mundi sá maður ekki láta við numið fyrr en hann hefði aflað sér úrskurðar frá kjörfurstum, og keisurum og páfum að þú hefðir átt barnið með húsgangs- drussa.” Seðlabankinn Hann var stofnaður til að vera hinn stóri heili þjóðarinnar, en likast til hafa þar einhver mistök átt sér stað, þvi sköpunin bendir meira til litla heilans. Ekki er hér með sagt að allt hafi verið ógáfulegt er þaðan hefur borist.heldur virðist á því stimpill Sam- einuðu þjóðanna, sem oft ber fram mótmæli gegn einhverri óhæfu, en lítt fylgt á eftir og endar ævina i bréfa- körfunni. En eitt gerði Seðlabankinn, hann hyggst byggja höll yfir skuldirnar sem byrgir fegurstu útsýn borgarinnar. Þetta er mjög snjöll hug- mynd því hvað á almenningur að vera að glápa á fegurð í fjarska. sem getur kannski slegið inn. Hér er ekki allt talið banka þessum til vegs. Einn vara- bankastjóri bankans, Sveinn Jónsson hefur skrifað skeleggja grein í Moggann um skattaálögur og skatt- píningu. Þar er áætlað að árið 1977 hafi 15—20 miljörðum verið skotið undan skatti, en hvað munar oss um þann kepp í sláturtiðinni. Sveinn er maður sem taka verður mark á, einn innsti koppur í keitubúri kippilykkjunnar. Talið er að hann ætli að segja upp stöðu sinni i bankanum og helga sig því hlutverki að verja hin 15—20 miljarða sveltimenni. Þetta er að kunna vel til vigs, var kveðið um nafna hans dúfu, og æpi menn svo að enginn eigi hugsjón. Mér kemur i hug i þessu sambandi orustan i Lauga- skarði. Þar var barist um frelsi þjóðar. Óvinirnir höfðu búið um sig i skarði þessu og hinum féllst hugur. Þá gekk fram aldraður almúgamaður og mælti svo: Ég skal ráðast til uppgöngu gegn þvi að þið sjáið konu minni og börnum farborða. Siðan mundaði hann sverðið. gekk hiklaust gegn ofureflinu og arnhvöss augu hans horfðu aðeins fram Það var sem herfjötur gripi óvinina. er þeir sáu för þessa manns og hinir fylgdu fast eftir og unnu frækilegan sigur. Kannski er þetta þjóðsaga. en falleg er hún og hefur geymst á bókum. Mér finnst ekki nenia sjálfsagt að Seðlabankinn láti Svein njóta söniu hlunninda. þvi mér þykir líklegt að hann vinni þarna i guðsþakkarskyni. Vinni hann orustuna mun fáni verða dreginn að húni á Alþingishúsinu og þar skráð: Skattsvikin lifi. landið er frjálst. „Við biðum og sjáum hvað setur / hvort sumurn tekst ekki betur / sem eru nteð rándýrs kjapt og klær / og kvæsa sumar og vetur / Við biðum og sjáum hvaðsetur.” Fundurinn í sjónvarpinu Fyrir skömmu mættu þar hinir nýju valdamenn og liðsoddar stjórnarand- stöðunnar. Þar rættist að nokkru það sem ég hefi haldið fram að ekki tókst að siga stjórnarmönnum saman, þrátt ‘fyrir veí valdar spurningar. Jón B. Pétursson er gæfulegur maður, en virðist ekki nógu vel sprautaður, eða hafi i sér móteitur. Þorsteinn geislaði af sjálfssælu og helst leit út fyrir að Kortsnoj hefði sent honunt gleraugun frægu. Maður þessi er nijög smart og finn i tauinu og bar öll einkenni hins borgaralega aðals. En til ganians skal þess getið hvað manni getur dottið vitlaust i hug. Mér datt i hug gömul saga um vissa persónu, sem breyttist í Ijósengilsmynd. Halldór Pjetursson, rithöfundur. Styrkið og fegríð Ukamann & Nýtt 4ra vikna námskeið hefst 3. október. Herraleikfími í hádeginu, þriðjudaga og fimmtudaga. Hjónatímar þriðjudaga og fimmtudaga kl. 21.30. Innritun og upplýsingar alla virka daga kl. 13—22 í síma 83295. Sturtur — Ijós — gufuböð — kaffi — nudd Júdódeild Armanns Armú/a 32

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.