Dagblaðið - 02.10.1978, Page 15
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 2. OKTÓBER 1978.
15
Tilbúnir tollpappírar í
hljómplötuinnflutningi
Fyrir nokkru var kveðinn upp dómur
i einkamáli. sem hér var höfðað gegn
hljómplötuinnflytjanda. Seljandinn. sem
var bandarískur aðili. sætti sig ekki við
andvirði hljómplötusendingarinnar. sem
honum barst eftir bankaleiðum.
Við nánari athugun kom i Ijós. að til
voru tvenns konar viðskiptaskjöl um
sömu sendinguna. Tókst kaupandanum
islenzka að greiða samkvæmt þeim
skjölunum.sem honum voru hagstæðari
i augnablikinu. það er að segja þeini.
sem sýndu mjög niiklu lægra verð en hið
raunverulega. Meðal annars voru tollar
Verðbólgan íalgleymingi:
Þúsund króna f rímerki
Gott dæmi um verðbólguna i
landinu er að nú skuli hafa verið
ákveðið að gefa ut frimerki að
rrrrtl . . . . m« m w • 4» . »rSr»y
’ JÓN STEFÁNSSON- HRAUNTEIGUR VIÐ HEKLU
ÍSLAND 1000
verðgildi 1000 kr.. en hæsta
frímerkjaverðgildi í umferð nú er 250
kr. en það var gefið út í marz 1972.
Hið nýja fri frimerki er með mynd af
málverki eftir Jón Stefánsson.
Hraunteigur við Heklu.
í frétt frá Póst- og símamála-
stjórninni segir að þegar 250 króna
frimerkið hafi verið gefið út i marz
1972 hafi almennt burðargjald bréfa
verið kr. 7.00. en nú sé samsvarandi
burðargjald kr. 70.00. Þegar 50 kr.
frimerki kom fyrst út. 1968. var
framangreint burðargjald kr. 2.25 og
þegar 100 kr. frímerki kom fyrst út var
burðargjald kr. 4.50. Miðað við hlut
fallið milli almenna bréfburðar-
gjaldsins 1972 og 250 kr. frimerkisins
ætti hæsta verðgildið nú að vera 2.450
kr. Miðað við sama hlutfall á árunum
1958 og 1965 hefði hæsta verðgildi ált
aðvera 1.555 kr. -GAJ-
Dúfnarán á Selfossi:
Metum tjónið
á 100 þúsund
— segja strákarnir sem
Heldur voru þeir niðurdregnir
strákarnir Grímsi, Ingi og Valdi þegar
þeir komu til min i gær og sögðu að
brotizt hefði verið inn i dúfnakofann
þeirra og öllum dúfunum stolið. Þetta
voru um áttatíu stykki, sem strákamir
mátu á ekki minna en hundrað þúsund
krónur.
Eitt ár er síðan þeir byrjuðu að fást við
þetta og hafa kynbætur miklar staðið
yfir að undanförnu, en strákarnir selja
dúfurnar eftir tegundum frá sex
rændirvoru
hundruð upp i þrjú þúsund krónur
hverja. Alveg Ijómuðu þeir er þeir sögðu
frá hinuin ýmsu tegundum, elbinger,
tunglingar, topparar og fl. og fl. Þeir
báðu mig blessaðan að koma þessu í
blaðið. og ef það kæmist þangað. að láta
þá fréttina enda á því að biðja þá sem
eitthvað vissu um dúfurnar að láta lög-
regluna á Selfossi vita. Strákamir töldu
það ólíklegt að einhver gæti aukið
dúfnabú sitt án þess að aðrir dúfna-
rektorar yrðu þess varir.
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njálsgötu 49 - Simi 15105
og aðflutningsgjöld greidd samkvæmt
þeim.
Ekki var þá frágangurinn tryggilegri
en svo. að seljandinn reyndist eiga kröfu
á meiri greiðslum en hinum upphaflegu
samkvæmt innflutningsskjölum. Þá er
ekki vitað. hvort seljandinn var að
einhverju leyti vitundarmaður um inn-
flutningsaðferðina.
Ekki nutu islenzkir plötukaupcndur
góðs af framtaki innflytjandans. Voru
plöturnar verðlagðar á íslenzkum
markaði þannig, að innflytjandinn
hagnaðist verulega i fyrsta unigang.
enda eru álagningarreglur sveigjanlegar
á þessari vörutegund.
Voru þó lengi allir ánægðir nema
erlendi seljandinn, sem þó fékk kröfu
sina að minnsta kosti viðurkennda fyrir
dómi.
Nýlega cr hafinn rekstur á öðru máli
út af hljómplötukaupum frá Banda-
rikjunum. Að sögn seljandans er svipað
yfirbragð yfir viðskiptunum i nýja
málinu og hinu fyrra. sem frá var sagt.
Ekki er þó talið að seljandinn i síðara
málinu standi eins vel að vigi og með
öllu óvísl hvort honum tekst að sanna
ólögmæta viðskiptahætti annars
innflytjanda hljcmplatna. séu þeir þá
yfirlcitt að. innsluverðir.
•BS.
„Eg gat aldrei notað neinn
tízkuklœðnað, fyrr en ég
uppgötvaði Ayds. ”
,.Eg held ekki að óhamingja stuðli neitt að þvi að þú
megrist. Þv'ert á móti. ég borðaði aldrei meira en þegar
ég var þunglynd. Þetta er algjör vítahringur. Þvi
meira sem þú borðar þvi feitari verðurðu og því feilari
sem þú verður eykst óhamingjan að sama skapi. Ég
var i raun og veru ekki svo óhamingjusöm i byrjun.
Mér líkaði bara ekki alls kostar við vinnu mina og þar
sem ég hef alltaf verið gefin fyrir sælgæti var auðveld
lausn að hugga sig með konfektkassa. Ég þyngdist
smámsaman án þess að ég læki svo mikið eftir þvi. Ég
þurfti að fá mér ný föt en engin af þeim fötum. sem.
mig langaði i. klæddu mig. Skyndilega rann það upp
fyrir mér að ég var þó nokkrum kilóum of þung.
Vandamál mitt var að mér tókst ekki að halda
neinn megrunarkúr. Ég skipti um vinnu til hins betra
— ég vinn núna á gistiheimili fyrir ungar stúlkur —
en það dugði ekki til að halda mér frá sælgætinu. Til
allrar hamingju uppgötvaði ég Ayds. Ayds hjálpaði
mér ekki bara til að halda út frábæran megrunarkúr. 1
hvert skipti sem mig langaði i sælgætismola með kaff-
inu eða eftir máltið dugði að gripa til Ayds til að
standast freistinguna. Mér hefur tekizt að losna við öll
aukakilóin á sex vikum. Mér liður betur, ég lit betur
út og get nú notað hvaða tizkuklæðnað sem er. Og allt
er þetta Ayds að þakka."
(Diane Powley)
Hvernig Avds hefur áhrif. Visindamenn halda þvi
fram að það sé hluti heilans sem hjálpi þér til að hafa
hcniil á matarlystinni. Það á rætur sinar að rekja til
magns glukosasykurs i blóðinu sem líkaminn notar
sern orkugjafa. Þanmg að þegar magn glukosans
minnkar byrjar þú að finna til svengdar og þetta á sér
venjulega stað stuttu fyrir næstu máltíð, En ef þú
tekur 1 Ayd (eða tvær) með hcitum drykk (sem hjálp-
ar likamanum að vinna fljótar úr þeim) um það bil
tuttugu minútum fyrir máltíð, eykst glukosinn í blóð-
inu og þú finnur ekki til löngunar til að borða mikið.
Með Ayds borðar þú minna af þvi að þig langar í
minna. Einn kassi Ayds inniheldur eins mánaðar-
skarnmt.
Hvers vegna þú þarfnast Ayds — óháð því hver þyngd
þin er. Ayds innihalda engin lyf, né eru þær til upp-
fyllingar. Þær innihalda vitamin og steinefni — mjög
mikilvæg til þess að vernda þá sem eru að megra sig
og eru ekki vissir um að þeir fái næg vitamin. þegar
Byrjaðu Ayds kúrinn á
morgun og eftir mánuð
gætir þú orðið nokkrum
kílóum léttari.
Mánaðar megrunarkúr í
hverjum kassa.
þeir borða mjög hitaeiningasnauða fæðu. Einnig
finnst mörgu fólki erfitt að halda sig að skynsamlegu
fæði. Ayds hjálpar þeim einmitt við það. Þær hjálpa
þér við að endurhæfa matarlystina og halda þyngd
þinni eftir það i skefjum — vandamál sem er það sama
hvort scm þig langar til að missa 2 kg eða 20 kg. Þú
missir liklega nokkur kiló tiltölulega fljótlega. en
endurhæfing matarlystarinnar tekur alltaf nokkurn
iima.
Mál fyrir Ayds: 90 68 98, 66 kg. fatastærð 14, hæð
165 cm.
Eftir Ayds: 87 61 92, 56 kg. fatastærð 12. hæð 165
cm.
NB: F.f þú ert alltof þung(ur) skaltu ráðfæra þig við
lækni þinn. áður en þú byrjar i megrunarkúr. Það er
ekki mælt með Ayds kúrnum fyrir fólk sem þjáist af
offitu vegna efnaskiptasjúkdóma. Sérhver Ayd inni-
heldur 25 hitaeiningar i mola og sérhver únsa er bætt
með: A vítamini 850 I.U., Bl vitamíni (Thiamine
hydrocloride) 0,425 mg, B2 vitamín (riboflavin) 0,425
mg. nicotinic acid (niacin) 6,49 mg. calcium 216,5 mg.
fosfór 107,6 mg.járn 5,41 mg.
Ayds fæst í f lestöllum
lyfjabúðum um land allt.