Dagblaðið - 02.10.1978, Side 16
16
DAGBLAÐIÐ, MÁNUDAGUR 2. OKTÓBER 1978.
Kortsnoj hleypti
spennu í einvígið
með því að sigra í 28. einvígisskákinni
Eftir sigur Karpovs í 27. einvigisskák-
inni töldu margir, að nú væri einviginu
endanlega lokið. Heilum þremur
vinningum munaði milli keppandanna og
aðeins einn vinningur i viðbót myndi
tryggja Karpov sigurinn. Kortsnoj
sjálfur hafði meira að segja látið svo um
mælt, að kæmist Karpov upp í 5—2,
væri frekari barátta vonlaus. Eftir 28.
skákina, sem lauk i gær, hefur viðhorf
manna þó mjög breyst. Kortsnoj vann
þar mjög sannfærandi sigur og sannaði
fyrir skákheiminum, að hann er svo
sannarlega ekki dauður úr öllum æðum.
Kortsnoj beytti enn á ný Opna
afbrigðinu í spánska leiknum, gegn
kóngspeöi Karpovs. Þegar í 9. leik
breytti hann út af fyrri einvígisskákum
og 'stuttu seinna kom hann með
hugmynd, sem enski stórmeistarinn
Stean hafði átt. Hann náði fyllilega að
jafna taflið og ómarkviss taflmennska
heimsmeistarans gaf svörtum sterkt
frumkvæði. Karpov var þvingaður til að
skipta upp á drottningum og mátti gera
sér að góðu að sitja í erfiðu endatafli, þar
sem hann hafði enga haldgóða áætlun.
Staða áskorandans varð sífellt betri og
betri og eftir skemmtilega peðsfórn í 37.
leik varð staða hans mjög vænleg. í
biðstöðunni voru allir möguleikar hans
megin og þegar tekið var til við skákina
að nýju i gær, átti Karpov sér ekki
viðreisnar von.
Eftir 28 skákir er staðan því 5—3,
Karpov í vil, ásamt 20 jafnteflum.
28. Einvfgisskákin
Hvitt: A. Karpov
Svart: V. Kortsnoj
Spánski ieikurinn
1. e4
í aðeins tveimur skákum í einvíginu
hefur Karpov hafið leikinn á öðru en
kóngspeðinu.
1. — e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4.Ba4
Rf6 5. 0-0 Rxe4 6. d4 b5 7. Bb3 d5 8.
dxe5 Be6 9.c3 Rc5.
Allt hefur þetta sést áður, en með
síðasta leik sínum breytir Kortsnoj út af.
Fyrr I einvíginu lék hann ávallt 9. —
Bc5, en siðast lék hann 9. — Be7. Því
svaraði Karpov með 10. Bc2 Rc5 11.
h3l? Nú breytir Kortsnoj um leikjaröð
og hindrar þannig þessa áætlun hvits.
10. Bc2 Bg4 II. Hel Be7 12. Rbd2
Dd7 13. Rb3 Re6!
Fróðir Filippseyingar sögðu þennan
leik ættaðan frá einum af
aðstoðarmönnum Kortsnojs, enska stór-
meistaranum Michael Stean.
Hugmyndin er bráðsnjöll. Á e6 stendur
riddarinn eins og best verður á kosið og
valdar alla mikilvægustu reitina í
herbúðum svarts. Greinilegt var að
áskorandinn hafði unnið heimavinnuna
vel, því nú hafði hann aðeins notað 15
minútur. Karpov hafði hins vegar eytt
37 mínútum.
14. h3 Bh5 15. Bf5 Rcd8!
Riddarinn á e6 er tryggður í sessi og
svartur undirbýr einnig að treysta
miðborðsstöðu sina með ...c6.
16. Be3a5!
Kortsnoj notaði drjúgan tíma á
þennan leik, sem virtist benda til þess, að
nú væri hann kominn út út rannsóknum
sínum. Engu að síður finnur hann mjög
athyglisvert framhald.
17. Bc5
Einkennandi Karpov-leikur. Hann
þvingar fram uppskipti á svartreita
biskupunum og hyggst síðan reyna að
notfæra sér veikleika svarts á svörtu
reitunum. Annar möguleiki oge.t.v. álit-
legri var þó 17. a4!?
17. — a4 18. Bxe7 Dxe7 19. Rbd2.
Karpov teflir mjög varfærnislega.
Hugsanlegurmöguleiki var 19. Rbd4
19. — c6 20. b4?!
Liður í þeirri áætlun Karpovs að ná
sem bestum tökum á svörtu reitunum.
Leikurinn hefur hins vegar þann
annmarka, að peðið á c3 verður
bakstætt.
20. — Rg5 21. De2 g6 22. Bg4
Eftir 22. Bc2 er 22. — Rde6 mjög
óþægilegur leikur. Karpov vill losna
undan leppun svarta biskupsins og láir
það honum enginn.
22. — Bxg4 23. hxg4 Rde6 24. De3.
24. — h5!
Svartur blæs til atlögu! Kóngur hans
er fullkomlega öruggur á miðjunni og
með þessu móti kemst hrókurinn á h8 'í
spilið.
25. Rxg5 Dxg5!
Auðvitað ekki 25. — Rxg5? 26. f4
Re6 27. f5! og það er hvítur sem hefur
frumkvæðið. Staða svarts versnar síður
en svo við drottningakaupin.
26. Dxg5 Rxg5 27. gxh5 Hxh5 28.
Rfl Hh4 29. Hadl Ke7
Karpov átti nú klukkustund eftir af
umhugsunartima sínum, en Kortsnoj
hálftima.
30. f3 Had8 31. Re3 Rc6 32. Rg4 Rg5
33. Re3 Re6
Svartur hefur að sjálfsögðu engan
áhuga á jafntefli, en hann hefur hins
vegar áhuga á að vinna tima á
klukkunni!
34. Rg4 Rg7! 35. Re3
Hvítur getur litið annað en beðið, á
meðan svartur bætir stöðu sína hægt og
bítandi.
35. — Rf5! 36. Rc2
36. Rxf5 gxf5 þjónar einungis
hagsmunum svarts.
36.—Hc4 37.Hd3d4!
Aðstoðarmenn Kortsnoj óttuðust af
hér hefði hann misreiknað sig i tíma
hrakinu, en í Ijós kemur að hér er unr
djúphugsaða peðsfórn að ræða.
38. g4 Rg7 39. Rxd4 Re6 40. Hedl
Rxd4 41.cxd4 Hxb4
Þar með hefur svartur náð peðinu
aftur og hefur mjög vænlega stöðu.
42. Kf2
JÓN L. ÁRNAS0N
SKRIFAR UM SKÁK
#
Kvenfólkið á fulla ferð
íslandsmeistarar Fram sigruðu Val i
Reykjavfkurmótinu i handknattleik i
Laugardalshöll á laugardag, 11-6.
Jafnræði var með liðunum framan af
allt upp í 3—3. Jóhanna Halldórsdóttir
kom Fram í 4—3, 5—3 og 6—3.
Guðríður Guðjónsdóttir skoraði
sjöunda mark Fram. 7—3. Elin
Kristjánsdóttir minnkaði mun Vals i 7—
4. Þegar um það bil 10 sek. voru til leiks-
loka í fyrri hálfleik, fengu Valsstúlkur
viti, er Björg Guðmundsdóttir tók.
Skoraði hún örugglega fimmta mark
Vals. 1 hálfleik var ítaðan 7—5 fyrir
Fram.
Framstúlkurnar mættu mun
ákveðnari til leiks i seinni hálflejk. Þó
tókst þeim ekki að skora fyrr en 7 mín.
voru liðnar af hálfleiknum, er fyrirliði
þeirra Oddný Sigursteinsdóttir skoraði
8—5. Virtust Valsstúlkur ekki ráða við
íslandsmeistara Fram. Eyddu þær tæki-
færum sínum í tóma vitleysu. Guðríður
og Oddný bættu enn við markatölu
Fram, 10—5 fyrir Fram. Þegar 5. min.
voru til leiksloka fengu Valsstúlkur víti.
Björg Guðmundsdóttir skoraði úr þvi.
10—6. Mark Bjargar var eina markið,
sem Valur skoraði í seinni hálfleik.
Oddný skoraði lokamark Fram í þessum
leik er 1 mín. var til loka hans, 11 —6.
Mörk Fram: Jóhanna og Guðríður 4
hvor og Oddný Sigsteinsdóttir 3.
Mörk Vals: Elín Kristjánsdóttir og
Harpa Guðmundsdóttir 2 hvor og Björg
Guðmundsdóttir skoraði 2, bæði úr
vítum. HJ.
Fylkir-Þróttur 5—4
Fylkir vann Þrótt I Reykjavíkur-
mótinu í handknattleik kvenna I Laugar-
dalshöll á laugardag, 5—4.
Fylkisstúlkur byrjuðu vel, komust i
3—0. Ágústa Sigurðardóttir skoraði
fyrsta mark Þróttar þegar 4 mín. vóru
eftir af fyrri hálfleik, 3—1. Tveimur
mínútum síðar tókst þeim enn að
minnka muninn, fengu víti. Aftur
skoraði Guðrún úr víti og jafnaði fyrir
Þrótt, 3—3 þegar 3 sek. voru eftir af
hálfleiknum.
Seinni hálfleikur var slakur á að
horfa. Þó spiluðu Þróttarstúlkurnar
skemmtilega á köflum, en þær virtust
vera hræddar við að skjóta að marki
Fylkis. Misnotuðu tvö víti, sem þær
fengu um miðjan seinni hálfleik. Hildur
Björnsdóttir skoraði næstu tvö mörk
Fylkis, 4—3 og 5—3. Valgerður
minnkaði mun Þróttar i 5—4, sem urðu
lokatölur í þessum leik.
Mörk Fylkis: Eva Baldursdóttir og
Hildur 2 hvor og Þorbjörg Hólmgeirs-
dóttir 1.
Mörk Þróttar: Ágústa og Valgerður 1
hvor og Guðrún Kristjánsdóttir 2. -HJ.
Víkingur—KR 6-4
Víkingur sigraði KR í Reykjavíkur-
mótinu í handknattleik kvenna i
Laugardalshöll á laugardag, 6—4.
Hansína Melsteð skoraði fyrsta mark
leiksins fyrir KR. 1—0. Héldu KR-
stúlkurnar þessu eina marki sínu, þar til
rúm mínúta var eftir af fyrri hálfleik, er
Ingunni Bernódusdóttur tókst að jafna
fyrir Víking, 1 — 1. Sem sagt 1 mark
gegn 11 hálfleik.
Vikingsstúlkurnar mættu mun
ákveðnari til leiks í seinni hálfleiknum.
Komust fljótt einu til tveimur mörkum
yfir. Ingunn Bernódusdóttir skoraði tvö
fyrstu mörkin, 2—1 og 3—1. Olga L.
Garðarsdóttir minnkaði mun KR í 3—2.
Aftur skoraði Ingunn fyrir Vik-
ing, 4—2. Agnes Bragadóttir bætti
fimmta marki Víkings við, 5—2.
Hansina Melsteð skoraði fyrir KR 5—3.
Ástrós Guðmundsdóttir skoraði loka-
mark Vikings, 6—3 er 3 mín. voru til
leiksloka. Urðu KR-stúlkur að sætta sig
við tap, minnkuðu muninn í 6—4 er
Olga L. Garðarsdóttir skoraði fjórða
mark KR.
Ingunn skoraði flest mörk Víkings I
þessum leik eða 4, Agnes og Ástrós I
hvor.
Mörk KR skoruðu: Hansina og Olga
2 hvor. ‘ -HJ.
Hér fór skákin í bið og lék svartur
biðleik. Greinilegt er að svarta staðan er
betri, en þó töldu „sérfræðingarnir” i
Baguio að Karpov ætti að halda jafntefli
með nákvæmri vörn. Þegar tekið var til
við skákina að nýju, kom hins vegar í
ljós að staða Kortsnojs var mun
vænlegri en talið hafði verið. Formaður
sovéska hópsins, Viktor Baturinsky,
sagði að Karpov hafi talið stöðu sína
tapaða. Hann virtist vera orðinn úrkula
vonar um að halda skákinni og tefldi
hratt, að þvi er virtist án nokkurrar
umhugsunar.
42. -c5!
Biðleikurinn. Kortsnoj notaði um 35
mínútur á hann og átti því aðeins eftir
um 25 minútur af umhugsunartíma
sínum, til að Ijúka 56. leiknum.
43. d5
Karpov sýnir peðinu engan áhuga, því
eftir 43. dxc5 Hxd3 44. Hxd3 Hb2+ 45.
Ke3 Hxa2 hefur svartur tvö samstæð
frípeð á drottningarvæng.
43. — Hb2+ 44. Kg3
Hvítur verður að halda báðum hrók-
unum inni á borðinu til að reyna að
gera svörtum erfitt fyrir. Eftir 44. Hld2
Hxd2+ hefur svartur mun frjálsari
hendur.
44. — Hxa2 45. He3 — b4 46. e6
Ha3?!
Svartur kemst af án þessa leiks, 46. —
fxe6 o.s.frv. var einfaldasta leiðin.
47. He2?
Karpov svarar í sömu mynt! Nú
verður hvítu stöðunni ekki bjargað.
Eftir skákina sagði Kortsnoj, að Karpov
hefði líklega getað náð jafntefli með 47.
Hxa3! Peðaðstaða svarts sundrast þá og
erfiðara verður fyrir hann að knýja fram
sigur. í því tilviki eru jafnteflis
möguleikar hvits a.m.k. meiri en í
skákinni.
47. - fxe6 48. Hxe6+ Kf7 49. Hdel
Hd7 50. Hb6 Hd3 51. Hle6 H3xd5
Takist svörtum að hindra að hvítur
nái þráskák, er sigurinn I höfn.
52. Hxg6 a3 53. Hgf6+ Ke7 54.
Hfe6+ Kf8 55. Hf6+ Ke7
Eins og fyrri daginn er Kortsnoj í
kappi við klukkuna og endurtekur því
sömu leikina nokkrum sinnum.
56. Hbe6+ Kd8 57. Ha6 Hb7 58.
Hf8+ Kc7 59. Hf7+ Hd7
Svörtu hrókarnir eru nú komnir til
varnar og ekkert fær hindrað för
peðanna upp i borð.
60. Hf5 b3 61. Hxc5+ Kb8
— og hér gafst hvftur upp.
Frelsineiamir ráða nrslitnm
I , STOR
ÍRYMINGARSALA
\ á gólfteppum og bútum
AFSLATTUR
' Við erum aðeins X
að rýma fyrir nýjum
V birgðum /
Stendur i nokkra daga
TÉPPfíLfíND
Grensásvegi 13
Símar 83577 og 83430
/