Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 02.10.1978, Qupperneq 17

Dagblaðið - 02.10.1978, Qupperneq 17
DAGBLAÐIÐ, MÁNUDAGUR 2. OKTÓBER 1978. ð Iþróttir Iþróttir 17 Iþróttir Iþróttir 9 2ISLENZKIR SIGRAR GEGN FÆREYJUM í ÞÓRSHÖFN — 24-17 í fyrri leiknum en 20-16 í síðari leiknum. Viggó Sigurðsson skoraði 15 mörk íÞórshöfn íslenzka landsliðið i handknattleik vann tvo sigra i Færeyjum um helgina, á föstudag 24—17 og siðan endurtóku islenzku leikmennirnir sigur, ekki eins störan þó — 20—16. tslenzka liðið var Viggó Sigurðsson — markhæstur. veðurteppt i Færeyjum i gær. tslenzka liðið byrjaði vel gegn Færeyjum, komst í 2—0, en Færeyingar náðu að jafna, 2—2 — og áhorfendur í Þórshöfn voru með á nótunum, troðfullt hús. En íslenzka liðið náði sínum bezta leikkafla i kjölfarið, komst í 7—2 en færeyska liðið náði að minnka forskot islenzka liðsins í tvö mörk, 10—8 i leikhléi. Rétt eins og í byrjun fyrri hálf- leiks byrjaði islenzka liðið síðari hálfleik mjög vel, komst mest i 7 marka forustu en leikmenn slökuðu á, misnotuðu tvö víti og Færeyingar náðu að minnka muninn í fjögur mörk fyrir leikslok, 20—16 — öruggur islenzkur sigur i Þórshöfn. Það eru greinilegar franifarir i færeyskum handknattleik þó enn eigi Færeyingar langt i land, danskt yfir- bragð. Jörgen Petersen, tslandsbaninn, dvaldi i sumar í Færeyjum við þjálfun færeyska liðsins. Mörk tslands í Færeyjum I siðari leiknum skoruðu: Viggó Sigurðsson 7, Páll Björgvinsson 4, Bjami Guðmunds- son 3, Steindór Gunnarsson 2, Ólafur Jónsson 1, Sigurður Gunnarsson 1 — en hann meiddist snemma í leiknum, i sínum fyrsta landsleik, — var þar ásamt sex öðrum nýliðum. Þorbjörn Jensson skoraði tvö mörk. Viggó Sigurðsson var markahæstur i fyrri leiknum í Færeyjum, sýndi bráðsnjallan leik í fyrri hálfleik, skoraði 8 mörk, Steindór Gunnarsson 5 og Páll Björgvínsson 3, aðrir leikmenn minna. Harpa Guðmundsdóttir skorar eitt marka sinna á móti Fram I Reykjavikurmótinu I' handknattleik kvenna á laugárdag. DB-mynd Ari. ap iiaiiutviidiuLiiv tv v viuia a tuu^ai uu^. "‘j11 Ahorfendur leystu vandann Reykjavikurmótið i handknattleik kvenna hélt áfram i gær, sunnudag. Valur sigraði Viking, 13—9. Mörk Vals: Sigrón Guðmundsdóttir 2/2, Harpa Guðmundsdóttir 2, Erna Lúðvíksdóttir 1/2, Hulda Arnljótsdóttir 2, Sólrón Guðmundsdóttir 1 og Björg Guðmundsdóttir 1 ór viti. Mörk Vikings: Ingunn Bernódusdóttir 2, Sigurrós Björnsdóttir 1, Agnes Braga- dóttir 3, Sigrón Olgeirsdóttir 2, Ástrós Guðmundsdóttir 1 og Sveinbjörg Halldórsdóttir 1. Einnig áttust við Fram og KR. Bjuggust menn við því að ekkert yrði úr þeim leik. Eftir 25 mín. bið gengu stúlkurnar af leikvelli. Enginn dómari hafði verið boðaöur til þess að dæma leikinn. Til að leysa þennan vanda bauðst hínn pólski þjálfari Víkings og einn vallargestanna til að dæma leikinn. Hvernig væri að þeir hjá Handknatt- leiksráði Reykjavíkur leystu þennan vanda, sem sífellt á sér stað? Það er ekki hægt að bjóða fólki upp á þetta öllu lengur. Fram sigraði KR, 7—3. Mörk Fram: Oddný Sigsteinsdóttir I, Ouðríður Guðjónsdóttir 1/4 og Helga Magnúsdóttir 1. Mörk KR: Olga L. Garðarsdóttir I og Hansína Melsteð 2 úr vítum. Síðasti leikurinn var á milli Þróttar og ÍR. Sigruðu ÍR stúlkurnar, 12—8. -HJ. þig inn í dæmió Sparilán Landsbankans eru í reynd einfalt dæmi. Þú safnar sparifé með mánaðarlegum greiðslum í ákveðinn tíma, t.d. 24 mánuði og færð síðan sparilán til viðbótar við sparnaðinn. Lánið verður 100% hærra en sparnaðar- upphæðin, — og þú endurgreiðir lánið á allt að 4 árum. Engin fasteignatrygging, aðeins undirskrift þín, og maka þíns. Landsbankinn greiðir þér al- menna sparisjóðsvexti af sparn- I aðinum og reiknar sér hóflega vexti af láninu . Sparilánið er helmingi hærra en sparnaðar- [ upphæðin, en þú greiðir lánið til | baka á helmingi lengri tíma en það tók þig að spara tilskylda upphæð. Biðjið Landsbankann um bæklinginn um sparilánakerfið. Sparnaður þinn eftir Mánaðarleg Sparnaður í innborgun lok tímabils Landsbankinn lánar þér Ráðstöfunarfé Mánaðarleg þitt 1) endurgreiðsla Þú endur- greiðir Lands- hámarksupphæð bankanum 12 mánuði 18 mánuði 24 mánuði 25.000 25.000 25.000 300.000 450.000 600.000 300.000 675.000 1.200.000 627.876 1.188.871 1.912.618 28.368 32.598 39.122 á 12 mánuðum á 27 mánuðum á 48 mánuðum 1) I tölum þessum er reiknað með 19% vöxtum af innlögðu fé, 24% vöxtum af lánuðu fé, svo og kostnaði vegna lántöku. Tölur þessar geta breytst miðað við hvenær sparnaður hefst. Vaxtakjör sparnaðar og láns eru háð vaxtaákvörðun Seðlabanka Islands á hverjum tíma. LANDSBANKINN Sparilán-tiygging í fnimtíð

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.