Dagblaðið - 02.10.1978, Síða 22
r
22
Chicago — Hot Streets
David Bowie — Stage
Linda Ronstadt — Living in the L.S.A.
Dan Fogelberg& Tim Weisberg — lv in S 'nsof Pifferent Mother
Shaun Cassidy — llnder Wraps
Crawler — Snake Rattle and Roll
Foxy — Get Off (Super Disco)
Janis lan — Ný
Starcastle — Reel to Reel
Dolly Parton — Hcartbrcaker
Player — Danger Zonc
Debby Boone — Midstream
Leon Redbone — Champagne Charlie
Ambrosia — Lifc Beyoud L.A.
Leroy Gomez — Gypsy Woman (Samta Esmeralda)
Donna Summer — Live and More
Sumar af þessum pliitum eru svo f;lœnýjar aö þaö kemurþér ef til vill á
óvart að sjá þcer komnar át. Þá gerir góða ferð i verzlanir okkar ef þá
vilt fylgjast með.
Litlar plötur
John Paul Young— I.ove is in the Air
Clout — Substitute
Exlle — Kiss you All Over (No. 1 i USA)
David Essex — Oh What a Circus
Status Quo — Again, and Again and Again
10CC— Dreadlock Holliday(No. 1 I Bretlandi)
City Boy — 5.7.0.5
Crown Heights Affair — Galaxy of Love
Hammilton Bohannan — Lets Start the Dance
Frankie Valli — The Grease
John Travolta & Oliva Newton John — Your are the One
o. fl. o. fl.
Við höfum sem sagt tekiö aftur upp þá iðju að flytja inn litlar plötur,
en okkur finnst ekki ástœða til að við hér upp á hjara vcraldar eigum
alltaf að biða þar til lög sem vinsœl eru komi át á LPplötu sem hefur
kannski einungis að geyma eitt gott lag.
Vinsælar plötur
Dúmbó & Steini — Dömufrí
20 góðir — Star Party
Bcssi Bjarnason — Pótur og úlfurinn
Brimkló — Kitt lag enn
Boston — Don’t I ook Back
10CC—Bloody lourists
Rocky Horror Picture Show
Foreigner — Double Vision
Olivia Newton John & John Travolta — Thc Grease
Auðvitað eigum við lika allar hinar vinstelu plötumar en þetta er þó
rjóminn.
Jass / Progressiv tónlist
Weather Report — Mr Gone
Steve Khan — The Blue Man
Stephen Graphelli — Uptown Dance
Ramsey Lewis — Legacy
Joachim Kiihn Band — Sunshower
Jcan Luc — Ponty — Cosmic Messinger
Einnig er mikið af plötum þar sem Nils Henning Örsted Petersen
kemur við sögu. Svo og magnaðar plötur með t.d. Gato Barbieri, Dan
Cherry, Jakkie Mclean, Antony Braxton, Uexter Gordon o. fl. o. fi„
sem margar h verjar hafa ekki verið fáanlegar áður hérá landi
Kamabær
Laugavegóó Sími 28155
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 2. OKTÓBER 1978.
TÍVOLÍ — Ég held að það séu mun skynsamlegri vinnubrögð að hljóm-
sveitirnar samræmi kaupkröfurnar heldur en að fitja upp á trýnið og fara i
skítkast í blöðunum, segir Ólafur Helgason hljómsveitarstjóri.
DB-mynd Ragnar Th. Sigurðsson.
Ólafur Helgason,
-— Samræmum
veröid fremur en
að fara í skítkast
,.Ég er þvi frekar hlynntur að við
tónlistarmennirnir ræðum um málin
okkar á milli en að við förum að
kasta skit hver i annan i hlöðum."
sagði Ólafur Helgason hljómsveitar
stjóri Tivoli i samtali við Dagblaðið.
Á poppsiðunni síðastliðinn miðviku
dag er vitnað i Örn Hjálmarsson git-
arleikara hljómsveitarinnar Cirkuss.
sem segir að ein hljómsveit undir
bjóði hinar á skóladansleikjamarkað-
inum og leiki fyrir 200 þúsund
krónur. þegar hinar taki þrjú hundr
uð. — Þar er átt við Tivolí.
„Ég neita þvi ekki að við tókum
tvö hundruð þúsund krónur fyrir
einn skóladansleik. Við vinnum
fjögur til fimm kvöld í viku á fullu
kaupi, svo að það skiptir okkur ekki
máli. þó að við sláum af verðinu í
eitt skipti." ságði Ólafur.
„Ég hafði dálitið gaman af þvi aö
sama daginn og Örn kom með full-
yrðingu sína i Dagblaðinu. lékum
við á skóladansleik hjá Verzlunar-
skólanum fyrir 250 þúsund krónur.”
hélt Ólafur áfram. „Önnur hljóm-
sveit hafði boðið sig fram á sama
dansleik fyrir nákvæmlega sömu
upphæð — hljómsveitin Cirkus. Ég
get fullyrt þetta með vissu, því að
upplýsingarnar fékk ég á skrifstofu
Félags islenzkra hljómlistarmanna."
Undirboð ekki
á stef nuskránni
Ólafur kvað þann háttinn hafðan
á að Félag íslenzkra hljómlistar-
manna hefði samband við hljóm-
sveitirnar. þegar dansleikur væri í
boði og kannaði fyrir hvaða upphæð
viðkomandi væri tilbúinn að vinna í
það og það skiptið. Hann sagðist
ávallt spyrjast fyrir um. hvort tilboð
Tivoli væri lægra en annarra. til að
forðast undirboð. „Það er ekki á
stefnuskránni hjá okkur að
undirbjóða aðrar hljómsveitir.” sagði
Ólafur. „Hins vegar þætti mér æski
legt að hljómsveitirnar næðu sarn-
stöðu um verðlagningu á skóladans-
leikjum. en væru ekki að bjóða hver
i sinu horni.
VerðskTáin hjá Tivoli er ekkert
leyndarmál," hélt Ólafur Helgason
áfram. „Fyrir skólaball á tímabilinu
9—1 setjum við upp 260 þúsund
krónur og 280 þúsund fyrir böll sem
standa yfir til tvö.
„Cirkusmenn af
gamla skólanum"
Mér þykja Cirkusmenn vera frem-
ur af gamla skólanum með þvi að
fara út i skitkast „án þess að nefna
nokkur nöfn”. Þess háttar andi ríkti
fyrir svo sem tiu árum, en hefur
legið blessunarlega niðri upp á síð-
kastið. Ég held að þeir hafi alls ekki
efni á að vera með neinar meiningar,
i fyrsta lagi vegna þess aö þeir hafa
aldrei farið fram á neina samræm-
ingu á verðlagningu skóladansleikja.
í öðru lagi er miklu meira leitað til
okkar i Tivoli en þeirra. sem hlýtur
að stafa af þvi að við stöndumst
fremur kröfur fólksins en Cirkus —
það eru ekki bara nokkur þúsund
krónur sern valda þvi að við erum
fullbókuð viku eftir viku nteðan
Cirkus fær eitt og eitt ball.”
Ólafur Helgason bætti þvi við að í
fyrravetur hefðu hljómsveitirnar
Poker og Tivolí samræmt taxta sina
og hefði sú samvinna gengið prýði-
lega. „Við vorum dýr hljómsveit þá.
án þess þó að það bitnaði neitt á
eftirspurninni. Ég hef heyrt að Poker
taki nú 360 þúsund krónur fyrir
hvern skóladansleik. Það er alls ekki
undarlegt þar eð þarna eru atvinnu-
menn á ferðinni, sem verða að hafa
meira upp úr spilamennskunni en
við sent höfum hana að aukastarfi.
— En ég vil itreka það að mér þættu
það mun skynsamlegri vinnubrögð
að samræma kaupkröfurnar fremur
cn að fitja upp á trýnið og fara i skít
kast.”
Hlé í nóvember
Hljómsveitin Tívoli starfar nú um
h'elgar i veitingahúsinu Klúbbnum.
Ólafur sagði að samningar hefðu
verið gerðir um að hljómsveitin léki
þrjár helgar i einu og tæki sér síðan
fri þá fjórðu. Áformað er að starfa á
þeim skilmálum út október, en fara
þá i hálfsmánaðarfri.
Til stóð að þrir af liðsmönnum
Tivoli hættu um þessi mánaðamót.
Nú mun hins vegar afráðið að
Eyþór Gunnarsson og Andrés
Helgason verða áfram i hljómsveit-
inni. en óljóst að sögn Ólafs Helga-
sonar hvort Friðrik Karlsson heldur
áfram eða hættir.
-ÁT-