Dagblaðið - 02.10.1978, Qupperneq 35
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 2. OKTÓBER 1978.
(i
Útvarp
Sjónvarp
SÓNATA EFTIR PROKOFIEFF
— Guðný Guðmundsdóttir og Philip Jenkins leika
í kvöld kl. 21.30 sýnir sjónvarpið
mynd með þeim Guðnýju Guðmunds-
dóttur og Philip Jenkins þar sem þau
leika saman. Guðný leikur á fiðlu og
Pliilip á pianó. Það er sónata nr. 2 i D-
dúr eftir Prokofieff sem þau leika. Þau
Guðný og Philip hafa haldið tónleika
saman víðs vegar um landið i sumar
—
og verið vel tekið. Guðný hefur leikið
á Guarneriusfiðlu, sem er i eigu Rikis-
útvarpsins. og er hún merkasta og dýr-
mætasta hljóðfæri, sem til er á
landinu. Fiðlan er smíðuð á 17. öld.
Philip Jenkins kemur frá London
þar sem hann starfar sem prófessor í
pianóleik við Royal Academy of
Music. Guðny Guðmundsdóttir er
konsertmeistari Sinfoniuhljómsveitar
islands. Þátturinn er tæplega
klukkustundar langur og í lit. Tage
Ammendrupstjórnaði upptöku.
-ELA.
.,,ll"l-n-
Sjónvarp kl. 21,30:
Philip Jenkins og Guðný Guðmundsdóttir.
Sjónvarp kl. 21,00:
ALLTINNIFAUÐ
Útvarp þriðjudag kl. 10.45:
Hvað er barnavernd?
Harpa Jósefsdóttir Amin ásamt sonum slnum.
DB-mynd Ari.
„Það sem ég hafði hugsað mér að
hafa i þættinum var að fá fólk frá
Barnaverndarfélagi íslands til að
koma í þáttinn og ræöa um barna-
vernd. Einnig ætlaði ég að kynna mér
störf barnaverndarráðs og forvitnast
um ráðstefnu sem verður á næstunni
og nefnist Dagur bamsins. En þar sem
svo erfitt er að ná í fólk sem vinnur
hjá þessum stofnunum, hef ég ekki
ennþá getað tekið upp þáttinn,” sagði
Harpa Jósefsdóttir Amin um þátt sem
hún stjórnar á þriðjudag kl. 10.45 og
nefnist Bamavernd.
„Þessi þáttur kom nú af þvi að ég
var að hugsa um að hafa þátt um
ættleiðingu, en þar sem þaö er svo
viðkvæmt mál og erfitt að fá fólk til að
tala um það.^arð ekkert úr því. En ég
býst samt við að ég taki til við þann
þátt seinna. En í þessum þætti um
barnaverpd ætla ég að leita svara um
hvað sé gert til að vernda börn og
hvað sé gert fyrir munaðarlaus börn
og ýmislegt fleira í sambandi við störf
barnaverndamefndar,” sagði Harpa
að lokum en þátturinn hennar er
stundarfjórðungs langur.
-ELA.
— léttogfjörugt
leikrit
Allt innifalið nefnist leikrit sem
sjónvarpið sýnir i kvöld kl. 21.00.
Leikritið lýsir veitingamanni einum sem
rekur lítið hótel. Litið er að gera hjá
honum á veturna en mjög mikið á
sumrin. Maðurinn er giftur en kona
hans hverfur alltaf yfir sumartímann en
kemur siðan aftur á haustin. Veitinga-
maðurinn, sem heitir Sam Turner, er
nokkuð léttlyndur og á ýmis ástar-
ævintýri með háskólastúlkum sem gista
á hóteli hans. Sam kynnist nú nýrri
ungri stúlku sem ekki er glæsikona en
hrífur hann samt. Þar sem kona hans
hefur beðið um skilnað reynir Sam að fá
stúlkuna, sem ólik er öllum öðrum
stúlkum sem hann hefur kynnzt, að
flytja til sín.
Stúlkan virðist fá einhverja bakþanka
og eftir umhugsun neitar hún að vera
hjá veitingamanninum. Hann situr því
eftir aleinn um haustið, en stutt er til
næsta sumars. Myndin er bæði létt og
fjörug en þó koma fram alvarlegir
þankar í henni. Leikritið er hálftima
langt og með aðalhlutverk fara Kenneth
More sem er vel þekktur og góður
leikari, Judy Parfitt og Sheridan
Fitzgerald. Leikstjóri er Dennis Vance
en leikritahöfundur er John Mortimer.
Myndin er i lit og þýðandi er Jón Thor
Haraldsson.
MESTA LAMPAURVAL
ALLAR
I GERÐIR
Notið
við
lesturinn
PÓST-
SENDUM
LJOS & ORKA
35
LANDSIIMS
Suðurlandsbraut 12
simi 84488
Kaplaskjólsvegur
3ja herb. 85 ferm íbúð á 3ju hæð.
Framnesvegur
130 ferm 6 herb. íbúð á annarri hæð í tvíbýlishúsi. Sérinngangur.
íbúðin þarfnast standsetningar. Útborgun9til lOmillj.
Hringbraut
2ja herb. íbúð, 80 ferm á fyrstu hæð.
Hagar
2ja herb. íbúð á jarðhæð í skiptum fyrir 2ja herb. ibúð á annarri hæð.
Fossvogur
4ra herb. íbúð á annarri hæð, 100 ferm í skiptum fyrir einbýlishús eða
raðhúsá Reykjavíkursvæöi. Má vera tvær íbúðir.
Safamýri
3ja herb. íbúð á fjórðu hæð.
Eignaskipti
Einbýlishús i Vesturbæ-Fossvogi.
Vantar
Fokhelt raöhús á Seltjarnamesi.
3ja, 4ra og 5 herb. íbúðir í Fossvogi, Vesturbæ og Heimum.
Húsamiðlun
fasteignasala.
Templarasundi 3, simar 11614 og 11616.
Sölustjóri Vilhelm Ingimundarson, heimasimi 30986.
Þorvaldur Lúðviksson hrl.