Dagblaðið - 16.10.1978, Blaðsíða 8
8
DAGBLADIÐ, MÁNUDAGUR 16.0KTÓBER 1978.
Keisarinn i lran hefur átt við mikinn vanda að striða að undanförnu. Andstæðingar hans hafa gert að honum harða hrið, bæði
frá hægrí og vinstri. Ihaldssamir múhameðstrúarmenn telja keisarann brjóta lög Kóransins með þvi að koma Vmsum nýjung-
um á í landinu. Foringi þeirra hefur til skamms tima verið i útlegð i írak en er nú kominn til Frakklands. Á myndinni sést
Ayatollah Khomcini, hinn ihaldssami trúarleiðtogi múhameðstrúar trana, ræða við nokkra landa sinna sem flúið hafa þaðan.
Thailand:
Líflátnir
fyrirlOO
gr. herófn
Stjórn Thailands hyggst koma á
lögum í landinu sem kveða á um að
framleiðsla og dreifing á meiru en eitt-
hundrað grömmum af heróíni varði
dauðarefsingu. Var þetta tilkynnt í
Bangkok í morgun. Mun frumvarp í
þessa átt vera tilbúið til að leggjast
fyrir þing landsins.
í frumvarpinu mun einnig vera
ákvæði um strangari refsingar við
brotum á banni gegn lögum sem varða
morfin, kókain, ópíum, marijuana og
önnur fíknilyf. Brot gegn lögum um
heróín munu varða lifstiðarfangelsi ef
sá sem gripinn er hefur á sér minna en
tuttugu grömm. Sá sem hefur
meðferðis eitt gramm af heróíni getur
átt á hættu að fá tíu ára fangelsisdóm
samkvæmt hinu nýja lagafrumvarpi.
Hingað til hafa lífiátsdómar aðeins
verið kveðnir upp vegna stórfelldra
brota á reglum um heróinframleiðslu
og smygl. Hafa þrjár aftökur farið
fram i Bangkok i ár vegna slikra brota.
íran:
Herinn tilbúinn
öllum átökum
Herlið flykktist inn i Teheran höfuð-
borg íran í morgun. Mun hlulverk þess
vera að tryggja friðsamlega framkvæmd
útfara þeirra hund uða. sem fallið hafa i
átökuni i borginm undanfarna daga.
Flutningabifreiðir hlaðnar hermönnum
óku um götjrnar en ekki varð vart við
viðbúnað hersins á stöðum þar sem
ófriðlegt hefur verið að undanförnu,
eins og við háskólann.
Trúarleiðtogar múhameðstrúar-
manna og stjórnarandstæðingar hafa
hvatt stuðningsmenn sina til að fara
með friði í dag. Fólkið sem jarðsett
verður hefur fallið i átökum við her og
lögreglu Iandsins en ófriðlegt hefur verið
og herlög hafa gilt siðustu fimm vikur.
Hinnalátnu verður ekki aðeins minnzt í
leheran heldur öllum stærstu borgum
landsíns. Búizt er við að flestar verzlanir
og markaðir verði lokaðir á meðan á
minningarathöfninni stendur.
Vitað er um að einn maður féll i
átökum við lögreglu i hinni helgu borg
Mashhad. Þar höfðu fjögur þúsund
manns safnazt saman. Ekki er vitað um
neinar ráðagerðir um mótmælaaðgerðir
i Teheran að sögn kunnugra þar.
Svíþjóð:
Nóbelsverdlaun
i hagfræði til-
kynnt í dag
Nóbelsverðlaunin í hagfræði verða
tilkynnt I dag. Verðlaunahafinn er
valinn af sænsku vísindaakademíunni
og þá væntanlega samkvæmt til-
nefningum víðs -vegar að úr
heiminum, sem borizt hafa á undan-
förnum mánuðum. Þó svo þessi
verðlaun fyrir framúrskarandi afrek á
sviði hagfræði séu nefnd nóbelsverð-
laun kemur verðlaunaféð ekki úr
hinum raunverulega sjóði Nóbels.
Sjóðurinn sem sér fyrir verðlaununum
er i vörzlu Nóbelsstofnunarinnar í
Stokkhólmi en hann var settur á stofn
af Sænska ríkisbankanum á þrjú
hundruð ára afmæli hans árið 1968.
Unghreyfing sænsku kirkjunnar
hefur tilkynnt að hún hafi tilnefnt til
friðarverðlauna móður Theresu,
júgóslavnesku nunnuna sem unnið
hefur í áratugi meðal fátækra og
snauðra í Kalkútta á Indlandi.
Páfakjör
heldur
áfram
Kardinálasamkundan í Róm
heldur áfram tilraunum sinum li!
að velja nýjan páfa i stað
Jóhannesar Páls fyrsta. Tvisvar
barst svartur reykur upp úr
strompi Sixtinsku kapellunnar í
gær en það táknar að atkvæða-
greiðsla hafi farið fram en enginn
kardinálanna náð hreinum meiri-
hluta.
Þau brosa blitt. Ekki munu þau þú vera neinir sérstakir vinir Edward Heath fyrrum forsætisráðherra og formaður brezka
íhaldsflokksins og Margaret Thatcher núverandi formaður. Myndin er tekin á flokksþingi Íhaldsflokksins sem var haldið f
Brighton i fyrri viku. Þar voru ihaldsmenn sigurvissir og Margrét sagði að innan tiðar yrði hún forsætisráðherra Bretlands.
Bandaríkin:
Síams-
tvíburar
látnir
Tviburarnir sem iæddust
samvaxnir fyrir þrettán dögum eru
látnir. Mun dánarorsökin hafa
verið meðfæddur hjartagalli hjá
báðum stúlkunum. Hin fyrri lézt á
laugardaginn en sú langlífari lézt i
gær. Systurnar voru skildar að á
fimmtudaginn var en hin sex
klukkustunda aðgerð, sem því var
samfara, var þeim ofraun.
Orkneyjar:
Selum htíft vegna
helgi sunnudagsins
Selirnir og selkóparnir við Orkneyjar
fengu grið nú um helgina vegna óska
eyjaskeggja, sem töldu óviðeigandi að
hefja drápið á helgum degi. Flestir
hinna átján þúsund íbúa Orkneyja eru I
skozku kirkjunni og halda sunnudaginn
mjög heilagan.
Fyrirhugað er að skjóta níu hundruð
seli og um það bil fjögur þúsund selkópa
til að stemma stigu við áti selsins á
þorskinum, sem brezkir vísindamenn
telja sig hafa fært sönnur á. Segja þeir
selinn gleypa sextiu og fimm þúsund
tonnaf þorski árlega.
Nokkur fjöldi andstæðinga seladráps-
ins er kominn til Orkneyja og ætla þeir
að reyna að komast á milli veiðimann-
anna og selanna þannig að ekki verði
hægt að skjóta þá án lífshættu þeirra.
Þar á meðal eru félagar úr Greenpeace
hreyfingunni, sem meðal annars kom til
Íslands I sumar til að vara við eyðingu,
hvalastofnsins. Norsku selveiðimenn-
irnir sem fengnir hafa verið til að skjóta
selinn hafa kannað veiðislóðir undan-
farna viku og siglt umhverfis eyjarnar á
skipi sinu.
Bandaríkin:
Aðeins
14% eru
ánægðir
með
ef na-
hags-
stefnu
Carters
Jimmy Carter Bandaríkjaforseti
nýtúr ekki mikils trausts meðal
þjóðar sinnar í efnahagsmálum ef
marka má úrslit skoðanakönnunar
sem timaritiðTime birti í morgun.
Aðeins 14% voru ánægðir með
stefnu forsetans en fyrir rúmlega
einu og hálfu ári töldu þrír af
hverju hundraði Bandarikjamanna
Carter standa sig vel í efnahags-
málum. Samkvæmt skoðanakönn-
uninni töldu rúmlega sex af
hundraði að efnahagsmál væru
helzta vandamál bandarísku
þjóðarinnar. Margir hinna spurðu
töldu einnig að lækka mætti skatta
um allt að þriðjung.