Dagblaðið - 16.10.1978, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 16.QKTÓBER 1978.
)
morgunverði inniföldum, en á glæsi-
hótelum fer verðið upp i liðlega 26 þús.
Volkswagen bilaleigubil kostar, með
söluskatti og inniföldu kílómetragjaldi
þar sem vegalengdir breyta ekki verðinu,
liðlega 17 þús. á dag og 61 þús. yfir vik-
una. Leigutaki verður að kaupa bensínið
sjálfur, sem er mun ódýrara en hér.
Góður hamborgari, til að borða með
höndunum á þar til gerðum snyrtilegum
smáréttastöðum kostar um 300 kr. og
skammtur af frönskum álíka. Bjórglas
með kostar 170 kr., eða jafn mikið og
kók, kaffi, eplasafi og heitt súkkulaði.
Vel í sveit sett
Eins og áður er getið er borgin mið-
svæðis með tilliti til ákjósanlegra ferða-
mannastaða. Við bæjardyrnar eru
Rínarhéruðin og borgirnar Wisbaden og
Heidelberg, einnig skíðalöndin í Taunus
fjöllum, Spessart og Odenwald. Islenzkir
áhugamenn um skiðastökk heimsækja
einkum það fyrr nefnda en fjölskyldur
það síðarnefnda. Þá er 200 km akstur til
heilsulindanna i borginni Baden Baden,
sem full er af gömlum minjum þar sem
hún slapp að mestu við hörmungar
stríðsins. Hún er við rætur Svartaskóg-
ar.
Ótal fleiri möguleika mætti nefna og
skal hér bent á alls kyns hópferðir frá
borginni, t.d. með langferðabílum i svo
sem viku til hálfan mánuð. Verða þær
ferðir að teljast á sanngjörnu verði. enda
er verðlag allt nokkru lægra utan borg-
arinnarsjálfrar.
1 stuttu máli getur undirritaður hik-
laust mælt með Frankfurt og nágrenni
sem heppilegan stað fyrir þá ferðamenn
sem leita eftir meiri fjölbreytni en sólar-
■landaferðir bjóða upp á og bendir á með
því að samræma skemmtiferð við t.d.
vörusýningu á einhverju sviði, getur
ferðamaðurinn farið ferðina bæði til
gagns og gamans. .g.S.
Jafnhliða stórbættu neðanjarðarlestarkerfi á undanförnum árum, hefur götum
á miðborgarsvæðinu verið lokað fyrir bilaumferð og þar eru viða að spretta
upp skemmtilegir útimarkaðir.
Úr skrifstofu stórskáldsins Göte. Það hús er nú safn og opið almenningi.
Til keisarahallarinnar gengu keisarar fyrri tima eftir krýningu f dómkirkjunni,
sem er að baki Ijósmyndara, og komu út á svalirnar. Síðasti þjóðhöfðingi, sem þar
kom út, var Carter Bandarfkjaforseti í sumar.
frA LOKUM 16. ALÐAK
íinu ' ii-mh t»
f 151-ANWAJ
UIXTA.O0SFÍA
FRA OLJOSUM
HOGMYNDUM
AÐ RÉTTRIYFIRSÝN
UMÍSIAND
SEINNA BINDI KORIASÖGU ÍSLANDS
EFTIR HARALD SIGURÐSSON ER KOMIÐ ÚT
Þetta er gullfalleg og vönduð bók, eitt af afrekum
íslenskrar prentlistar og stórmerkur þáttur
landfræðisögunnar. Seinna bindi hennar, sem nú er
komið út, nær frá lokum 16. aldar til 1848, þegar
Björn Gunnlaugsson lýkur mælingu íslands og kort
hans eru gefin út. Hefur bókin að geyma, auk
textans, 165 myndir af landakortum og kortahlutum,
og eru 146 myndanna svart-hvítar en 19 litmyndir.
Er í bókinni rakin af mikilli nákvæmni saga
íslands á kortum frá dögum Guðbrands biskups
Þorlákssonar til miðrar 19. aldar og rækileg grein
gerð fyrir þróun kortagerðar af norðvestanverðri
kringlu heims á því tímabili.
Fyrra bindi Kortasögu íslands kom út 1971 og nær
frá öndverðu til loka 16. aldar.
Rit þetta er stórviðburður í sögu íslenskrar
bókaútgáfu.
BÓKAÚTGÁFA
MENNINGARSJÓÐS
OG ÞJÓÐVINAFÉLAGSINS
Skálholtsstíg 7 Sími 13652