Dagblaðið - 16.10.1978, Blaðsíða 14
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 16. OKTÓBER 1978.
14
c
Adenauer kanslari nennti ekki í vinnuna alla leið til Frankf urt:
Þjóðverjar segja það meira í alvöru en
gamni að ástæðan fyrir því að Bonn er
höfuðborgin en ekki Frankfurt sé sú að
Konrad Adenauer átti gott hús skammt
frá Bonn þegar til álita kom hvort Bonn
eða Frankfurt skyldi verða höfuðborg.
Sagan segir að kanslarinn hafi ekki
nennt í vinnuna alla leið til Frankfurt og
því hafi Bonn orðið ofaná.
Hvað sem þvi líður er Frankfurt hin
raunverulega höfuðborg Vestur Þýzka-
lands, ef tillit er tekið til umsvifa þar.
DB heimsótti Frankfurt fyrir
skömmu, rétt í kjölfar hóps starfsfólks
frá frystihúsinu Norðurtanga á lsafirði.
Að sögn yfirmanna Flugleiðaskrifstof-
unnar á staðnum, Daviðs Vilhelms-
sonar, sölusvæðisstjóra og Gunnars V.
Jóhannssonar sölustjóra fór sá hópur
hress heim.
Fyrstu áhrif
Við komuna til Frankfurt vekur strax
athygli að borgin virðist öll nýrri en
aðrar borgir i Evrópu. Skýringin er ein-
faldlega sú að borginni var nærri gjör-
eytt í loftárásum undir lok'síðari heims-
styrjaldarinnar. Annað sem um leið
vekur athygli er að verulegur hluti bygg-
inga er byggður eftir þeim hugmyndum,
er voru uppi á fimmta áratugnum og
sama er viða að segja um götuskipan og
bilastæði, svoeitthvaðsé nefnt.
Það stafar af þvi að Frankfurt var á
áhrifasvæði Bandaríkjanna fyrst eftir
striðið og veittu Bandarikjamenn miklu
fé til hraðrar uppbyggingar þar eftir
strið. Þetta flýtti að vísu fyrir uppbygg-
ingu Frankfurt, sem varð mun hraðari
en borga t.d. á brezka áhrifasvæðinu.
Hins vegar er sá galli á gjöf njarðar að
þessi byggingamáti hentar ekki alls
kostar nútímakröfum, einkum er varðar
íbúðarhúsnæði, en það er of vandað og
nýtt til að verjandi sé að brjóta það
niðurfyrirnýju.
Marxistafabrikka
og kaupstefnu-
staður í senn
Fyrir utan að vera mjög vel í sveit
sett, er ótal hluti að sjá í Frankfurt og
þar eru einnig fjölmörg athyglisverð
fyrirbrigði sem ferðamaðurinn getur
ekki beinlinis þuklaðá.
Þrátt fyrir hið dæmigerða vestræna
þjóðfélag, er þar ríkir, hefur hinn frægi
30 þúsund nemenda háskóli útskrifað
menn eins og Adorno, Habermas, Bloch
og Markuse, sem allir voru nafntogaðir
leiðtogar hinna svonefndu stúdenta-
óeirða víða i Vestur-Evrópu undir lok
siðasta áratugs.
Þá státar borgin af stærsta listasafni
landsins, Staedel Museum, náttúrusafn-
inu Sinkenberg, frægasta og stærsta
dýragarði á meginlandinu, Botaniska
garðinum Palmen Garten, þar sem er að
finna ótrúlegt úrval jurta frá öllum
heimshornum, og húsi Götes, svo eitt-
hvað sé nefnt.
Einnig er borgin mesta kaupstefnu-
borg meginlandsins og fjölgar stöðugt ís-
lenzkum gestum og sýnendum á kaup-
stefnur þar.
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njálsgötu 49 - Sími 15105
í kvöld
fullkomnasta
vídeo á landínu
Eitt örfárra húsa 1 miðborginni, sem ekki varsprengt upp í stríðinu. í nýbyggingunni til vinstri er þjóðminjasafn og í
fjarska sést til fljótsins Main, sem gefur borginni mikinn svip.
Þess vegna er Frank-
f urt ekki höf uðborgin
— DB heimsækir hina „raunverulegu” verðiag kemur ekki
höf uðborg V-Þýzkalands aftan að manni
Stærsti f lugvöllur
meginlandsins
Flugvöllurinn við Frankfurt er sá
lang stærsti á meginlandi Evrópu og eru
þar 500 til 800 lendingar á dag. Á síðasta
ári fóru þar um 15 milljónir manns og
liðlega hálf milljón tonna af vörum. 106
flugfélög hafa þar aðsetur. eðá söluskrif-
stofur, og um það bil 60 flugfélög stunda
þangað áætlanaflug, þar á meðal Flug-
leiðir.
Flugleiðir fljúga þangað áætlanaflug
aðeins yfir sumartímann, enn sem
komið er, en leiguflug nokkuð lengur.
Nú er fyrirhugað að lengja áætlanatím-
ann og byrja fyrr strax næsta vor og
hætta seinna næsta haust.
Alltaföllu
Eins og aðrar alvöru stórborgir býður
Frankfurt upp á allt af öllu, eins og sagt
er. Fjölbreytt skemmtanalíf, nýjustu
bíómyndirnar, ölkrár, þar sem staðar-
drykkurinn eplavín er teigaður drjúgt,
Fljótið er bæði prýði
og gagnleg samgöngu-
leið auk þess sem fólk
getur siglt á þvi sér til
afþreyingar.
forkunna góða verzlunargötu þar sem
allt með öllu fæst og fatakaup eru sér-
lega hagstæð, gott neðanjarðarbrautar-
kerfi, til að komast á milli staða og hótel
í öllum verðflokkum. Þá geta þeir, sem
ekki verður ágengt á „ókeypis”
markaðnum, samið við greiðviknar
konur um huggun i harmi.
Það kemur þægilega á óvart fyrir
ókunnugan landann að rekast á verðlag
sem vel er hægt að sætta sig við, í kjöl-
far stöðugra frétta um hækkun þýzka
marksins gagnvart öðrum peningum.
Þokkalegt hótelherbergi fyrir einn, ekki
ósvipað litlu herbergi á Hótel Borg,
kostar innanvið 5 þús.fyrir nóttina með
Yfirmenn Flugleiðaskrifstofunnar í Frankfurt, Gunnar V. jóhannsson og Davið
Vilhelmsson.