Dagblaðið - 16.10.1978, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR lö.OKTÓBER 1978.
9
Noregur:
íshafs-
þorskur
minnkandi
Frá Sigurjóni Jóhannssyni frétta-
ritara DB i Noregi:
Rannsóknir
norskra fiskifræðinga benda til
að stofn íshafsþorsksins fari
minnkandi og bendir allt til að
draga verði úr veiðuni á næsta ári.
Nánari tölur verða ekki gefnar upp
fyrr en á alþjóðlegri hafrann-
sóknarráðstefnu sem haldin
verður i Kaupmannahöfn um
miðjan mánuðinn.
Dagana 21. til 22. nóvember
verður haldin hér í Osló alþjóðleg
fiskimálasýning, Nor-Fishing ’78,
og eru þátttakendur frá rúmlega
þrjátíu löndum. Til sýningarinnar
hefur verið boðið allmörgum
fulltrúum frá vanþróuðum
þjóðum, sem vinna að bættri verk-
kunnáttu og aukinni tækni við
fiskveiðar í heimalöndum sínum.
FAO tekur þátt i sýningunni og
sendir nokkra sérfræðinga.
Sænskir kratar á
móti NORSA T hnetti
Frá Sigurjóni Jóhannssyni
fréttaritara DB1 Noregi:
í grein i Aftenposten 6. október sl.
er fjallað um NORSAT sjónvarps-
hnöttinn, og bent á, að deilur um
knöttinn harðni nú, þár sem sænskir
sósíaldemókratar hafi lagzt eindregið
gegn þvi að sjónvarpshnötturinn yrði
tekinn í notkun á nýafstöðnu þingi
flokksins. Hingað til hefur kveðið
mest að mótstöðu finnskra
sósíaldemókrata og kommúnista.
Finnar lögðu nýlega til að einum
manni yrði bætt í nefndina sem fjallar
um NORSAT, og vilja með því að
athugaður verði möguleiki á sjón-
varpskapli, sem flytti valda dagskrá
milli Norðurlanda.
NORSAT nefndin á að skila
tillögum sinum fyrir 15. júní 1979, en
endanlega ákvörðun um málið tekur
Norræna ráðið árið 1980. Ef niður-
staða þess verður jákvæð er gert ráð
fyrir að Norsat hnötturinn fari á braut
árið 1985.
Vestur-Þjóðverjar eru nú að leggja
síðustu hönd á gerð sjónvarpshnattar,
sem búizt er við að verði kominn á loft
fyrri hluta árs 1980, og má ætla að
sendingar frá honum nái allar götur til
Þrándheims (sjá mynd). Þá má búast
við að Englendingar og Sovétmenn
hugsi sér til hreifings á þessu sviði.
NORSAT fylgjendur benda á, að
aðeins eigin hnöttur nái að vernda
Skandinava fyrir „ágengni” annarra
hnatta.
Danskir og norskir stjórnmálamenn
hafa flestir verið hlynntir NORSAT.
Fylgjendur hugmyndarinnar benda á,
að búast megi við, að sjónvarpsefni frá
öðrum sjónvarpshnöttum nálægra
landa muni ná yfir stóran hluta
Skandinaviu.
Af einstökum stéttum hafa leikarar
á Norðurlöndum lagzt einna harðast
gegn hugmyndinni, og starfsfólk við
norska fjölmiðla er einnig neikvætt.
Þannig hugsar teiknarínn sér vestur-þýzka sjónvarpshnöttinn sem á að hefja send-
ingar áriö 1980. Sendingarnar munu sjást i allri Danmörku og hluta af Noregi og
Sviþjóð.
HIÍN VAR
ÁLAUNUM
HJÁ NJÓSN-
ARANUM
Fyrir hálfu ári tók Arkady konunnar er Judy Chavez og munu
Shevchenko aðstoðaraðalritari Sam- þau hafa hitzt fyrir milligöngu fyrir-
einuðu þjóðanna frá Sovétrikjunum tækis, sem útvegar fólk öðrum til sam-
þá ákvörðun að hætta þeim störfum fylgdar við ýmis tækifæri. Segist Judy
og beiðast hælis sem pólitískur flótta- Chavez ætla að skrifa bók um sam-
maður i Bandarikjunum. Vakti þetta skipti sin við hinn sovézka flóttamann
að vonum mikið fjaðrafok og í byrjun en þau stóðu að hennar sögn i nokkrar
héldu Sovétmenn því fram aö vikur.
Shevchenko væri í haldi i Banda- Talsmenn CIA hafa viðurkennt að
ríkjunum vestra gegn vilja sínum. Svo þeir hafi greitt Schevchenko peninga
mun þó ekki hafa verið. Hann mun og telja ekkert undarlegt við það.
aftur á móti hafa samið við CIA, Hann hafi horfið úr vel borgaðri stöðu
og venjan sé að aðstoða þá austan-
tjaldsmenn á meðan þeir séu að koma
undir sig fótunum vestra. Að sögn
CIA manna þá hefur Schevchenko
fengið nokkur tilboð um störf við
ýmsa bandariska háskóla auk þess sem
nokkur útgáfufyrirtæki hafa boðið
honum samning um að gefa út eftir
hann bók eða bækur.
Fylgikonan Judy Chavez fékk greidda
flmm þúsund dollara á mánuði og
ætlar að skrifa bók um ævintýriö.
njósnastofnunina þar vestra, um að
gefa margháttaðar upplýsingar gegn
þvi að fá aðstoð við að koma sér fyrir í
nýju landi og undir nýju nafni.
Fyrir nokkrum dögum hélt kona ein
því fram í sjónvarpsviðtali, að
Shevchenko hefði greitt henni um það
bil fimm þúsund dollara á mánuði
fyrir samfylgd um eyjar Karabiska
hafsins og annað smálegt. Segir konan
þetta vera fjármuni sem Sovét-
maðurinn hafi fengið frá CIA. Nafn
Arkady Shevchenko fyrrverandi
aðstoðarmaöur Waldheims aðalritara
Sameinuðu þjóðanna. Á launum hjá
CIA meðan hann kemur undir sig
fótunum vestra.
Noregur:
Fjórðungs aukning
á ferskfisksölu
Erlendar
fréttir
Straussvann
Flokkur Frans Josefs Strauss
vann mikinn sigur í kosningum til
fylkisþingsins í Baiern i gær.
Strauss var áður vamarmálaráð-
herra i stjórn kristilegra demókrata
i Bonn og var mjög umdeildur í þvi
embætti. Hann er sagður hugleiða
að draga sig út úr stjórnmálalífinu
í Vestur-Þýzkalandi og i stað þess
taka við forsætisráðherraembætti í
Bajern. Þar hefur flokkur hans
öruggan meirihlua.
Frá Sigurjóni Jóhannssyni frétta-
ritaraDBi Noregi:
Útflutningurá ferskum fiski og
skeldýrum frá Noregi eykst að
öllum líki-.dtim um 25% í ár
miðað vió fyrra ár. og mun gefa í
aðra hönd um 200 milljónir n. kr.
Norðmenn hafa einkunt aukið
sölu á urriða og laxi ræktuðum í
söltu vatni, en sá fiskur er orðinn
viðurkennd gæðavara. Í Noregi
eru milli 200—250 fiskeldis-
stöðvar, sem framleiða um 5000
tonn á ári. Venjuleg stærð á laxi er
þrjú til fjögur kíló, en á urriða tvó,
Talið er að um 1400 bátar hafl i
sumar stundað laxveiðar i net utan
við Noregsstrendur. Þetta finnst
norskum árveiðimönnum allt of
mikið, og þeir fullyrða, að bátamir
„ræni" ntegninu af laxinum áður
en hann nái að ganga upp i árnar.
Heildarmagn. sem veiðist i ánuni.
er ekki yfir 200 tonn, og undan-
farið hefur lax veiddur i sjó verið
um 90% af heildarlaxveiðinni.
RiNATONE
STORA NAFNIÐ I GERÐ SJONVARPSLEIKTÆKJA
GKRA 15
Spilin em til 4 leikja — 6 leikja með byssu og 8 leikja
ÞAÐ HAUSTAR AÐ:
Nú er tími Binatone sjónvarpsspi/anna að hefjast aftur.
Altt tí! hljómflutnings fyrir
[\aaio
HEIMIUD - BILINN
OG
DISKÓTEKID
ARMULA 38 (Selmula megin) 105 REYKJAVIK
SIMAR: 31133 83177 PÓSTHÓLF1366