Dagblaðið - 16.10.1978, Blaðsíða 36

Dagblaðið - 16.10.1978, Blaðsíða 36
Marga rak i rogastanz er þeir óku • framhjá Reykjavikurflugvelli í gær og sáu þar standa fimm rússneskar her- flutningavélar i hnapp skammt frá Loftleiðahótelinu. Vélarnar eiga þó ekki annað erindi hingað frá Skotlandi á leið sinni tii Kúbu, sennilega með viðkomu i Kanada, en taka eldsneyti oghvílaáhafnirnar. Félagi Brésnev mun vera að senda félaga Castro einhverja sendingu, en þar sem skrúfuþoturnar eru bæði hægfleygar og hafa ekki mjög mikið flugþol, þurfa þær víða að koma við. Engin veit hins vegar um send- inguna, enda eru hervélar með viðkomu hér ekki tollskoðaðar. -G.S. DB-mynd H.V. Rússneski flugvélaflotinn á Reykjavikurflugvelli i morgun. Kurr í Eyrbekkingum: TOGARINN SIGUR MED AFLANN - 30-40 atvinnulausir á meðan Mikill kurr er nú í Eyrbekkingum vegna siglingar skuttogarans Bjarna Herjólfssonar með isfisk á markað erlendis á sama tímtiog 10—40 manns ganga atvinnulausir vtgna hráefnis- skorts i hraðfrystihúsinu á Eyrar- bakka. Eyrarbakkahreppur á 1/3 hluta i togaranum á móti Stokkseyrarhreppi og Selfosskaupstað, og höfðu Eybekk- ingar bundið miklar vonir við að togarinn gæti brúað það hráefnis- snauða tímabil, sem er á milli sumar- og vetrarvertiða. Sá draumur hefur nú að engu orðið þvi togarinn er sigldur með rúmlega 100 tonn af ísfiski. Áður hafði þó verið gefinn ádráttur um að aflahlut Eyrbekkinga yrði landað um leið og nokkrir skipverja færu i iand fyrir siglinguna. En við það var ekki staðið og þvi sitja rúmlega 30 manns heima og biða eftir því að frystihúsið fái fisk til að vinna úr. Stjórnarmenn Árborgar hf. eignarfélags togarans vilja engir kannast við ákvarðanir i máli þessu og framkvæmdastjóri félagsins er i einkaerindum erlendis. Hreppsnefndin kom saman til auka- fundar i síðustu viku til þess að ræða ástandið í atvinnumálunum og var stjórn Árborgar þar vitt fyrir vinnu- brögð sín á sama tima og hún fer fram á 60 milljón króna hlutafjáraukningu frá sveitarfélögunum þrem. Slíkum beiðnum visar hreppsnefnd Eyrar- bakka frá sér á meðan Árborgar- stjórnin stuðlar að atvinnuleysi á Eyrarbakka. -MKH/GAJ. Mölbrotnar gervitennurog skurdir í andliti Svo lauk skiptum farþega og leigubilstjóra i Keflavik á föstu- dagsnóttina að bílstjórinn barði farþegann svo hraustlega að gervi- tennur hans voru mölbrotnar og sauma var saman skurði i andliti farþegans. Átökin hófust er farþeginn átti ekki fyrir ökugjaldinu, rúmlega 20 þúsund krónur, er hann kom að húsi þvi sem hann ætlaði i. Vildi hann komast upp og ná i peninga en á það vildi ökumaðurinn ekki fallast og upphófust átök. Lyktaði málum með því að ökumaður fór með farþegan alblóðugan á lögreglustöð. Þar náðust sættir við aðstandendur farþegans um greiðslu ökugjalds- ins. Málið er hins vegar enn í rannsókn enda munu gervitenn- urnar einar kosta á annað hundrað þúsund króna. -ASt. 38 umf erðar- óhöpp Mikið hefur gengið á i umferðinni yfir helgina. 38 umferðaróhöpp hafa orðið og í 7 þeirra hafa orðið slys á fólki sem flytja hefur þurft í slysadeild. Á föstudag urðu óhöppin 16 og slysin þrjú. Voru fimm manns fluttir frá þeim í slysadeild. Á laugardaginn urðu óhöppin 14 og slysin aftur þrjú. Voru það allt börn eða unglingar sem meiddust, tvö i bilslysum og drengur sem hjólaði fram af klettum skamrnt frá fiskimjöls- verksmiðjunni að Kletti. Á sunnudag voru óhöppin átta og úr einu þeirra var tvennt flutt á slysadeild. V'.r það eftir árekstur við Ijósastaur. -ASt. UU’IIIJIIUll •Ullllli GLÆSILEGUR SIGUR KEFLVÍKINGA — „möluðu” íbúa vinabæjanna á Norðurlöndum í f rjálsri trimmkeppni Keflvikingar tóku á honuni stóra sinum í trimminu nú um helgina.Þeir kepptu við ibúa vinabæja sinna á Norðurlö'ic um og enginn vafi er á að Keflvikingar sigruðu glæsilega. Alls tóku 2182 þátt i trimminu. Golfhring spiluðu 61,354 hjóluðu 5 km, 417 syntu 200 m og 1350 hlupu, skokkuðu eða gengu 2.5 km. Jóhann Einvarðsson bæjarstjóri sýndi gotl fordæmi og rabbaði DB við hann í morgun Hann sagði að árangurinn væri frábær. Alls tóku 34% bæjarbúa þátt i þessum leik, en bezti árangur í hinum vinabæjunum var 7%. En aðalsigurinn hefði þó verið sá, sagði Jóhann, að fá fólkið út og fá það til þess að vera með. Yngsti trimmarinn var eins árs og sá elzti áttræður. Þeir yngstu fóru þetta á sérhönnuðum farartækjum sinum. barnavögnunum, með aðstoð góðra manna. JH Með ástarkveðju frá Brésnev til Castro frýálst, nháð dagblað MÁNUDAGUR 16.QKT, 1978. Biötími slasaðra eftir fébótum allt upp ítvö ár: Viil stytta biðtímann — segirtrygginga- ráðherra „Ég mun beita mér fyrir þvi að þeir sem lenda i slysum þurfi ekki að bíða úrskurðar um rétt sinn og bótarétt svo lengi sem raunin er nú,” sagði Magnús Magnússon, heilbrigðis- og trygginga- ráðherra á blaðamannafundi fyrir helgina. Magnús taldi að fólk liði nægilegar andlegar og likamlegar kvalir eftir slys svo ekki yrði á þær bætt fjárhagsáhyggj um. Nefndi hann dæmi um mann, sem varð að bíða eftir slíkum úrskurði i nær tvö ár, stöðugt i óvissu um fjárhagsstöðu sína. Ekki vildi Magnús að svo stöddu tíunda með hvaða hætti væri æskilegt að bæta þetta ástand, en meðal hugmynda nefndi hann að trygginga- félögin kæmu sér upp sameiginlegum sjóði með það hlutverk að greiða fólki fé uns úrskurður liggur fyrir. -G.S. Sættir í viðbyggingar- málinu á Neskaupstað: Fær að standa í átta ár — viöbyggingin ekki metin tilfjárvilji bærinn kaup? eftir þann tíma Fyrir tilstilli skipulagsstjóra ríkisins hafa nú náðst sættir í deilumáli íbúa að Egilsbraut 9 i Neskaupstað og bæjar- stjórnar vegna ólöglegrar viðbyggingar við íbúðarhúsið að Egilsbraut 9. Svo sem DB hefur rakið byggði eigandi hússins við það áður en hann hafði fengið tilskilin leyfi og reyndar eru þau ekki enn fengin. Lögbann var sett á framkvæmdina og honum gert að rífa viðbygginguna. Ekki kom þó til þess, en er hann hugðist breyta þaki hússins til viðbótar i sumar, kom enn til lögbanns og hljóp mikil harka i málið. Félagsmálaráðuneytið fól skipulags- stjóra nýlega að leita sátta í málinu og fær viðbyggingin nú að standa. Hins vegar fær eigandi ekki að breyta þakinu, eins og hann fyrirhugaði. Þá er einnig i samkomulaginu að hyggist bærinn taka áðurnefnt hús eignarnámi eftir átta ár frá samkomulaginu, skuli viðbyggingin ekki koma til mats, heldur aðeins gamli hluti hússins. Ámundi Loftsson, eigandi kjallara hússins sagði i viðtali við DB í morgun að það orkaði tvimælis hvort hann teldi rétt að halda áfram að fjárfesta i eign- inni þar sem aðeins hluti hennar yrði metinn vegna þessara kvaða. -G.S.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.